Veiðimaðurinn - 01.12.2018, Qupperneq 15
14 Veiðimaðurinn 15 Laugardalsá – Veiðistaðalýsing
Affall
Affall heitir efsti veiðistaður Laugar-
dalsár neðan Laugabólsvatns. Affallið
er einn af albestu veiðistöðum árinnar.
Hann minnir um margt á Langhyl í Laxá
á Ásum, er lygn efst þar sem áin rennur úr
vatninu, en þrengist lítillega eftir því sem
fjær því dregur og straums fer að gæta.
Sammerkt Affallinu og Langhyl er að
gáruhjúpur verður að vera á hylnum, en
í hægri sunnan eða vestangolu er Affallið
draumaveiðistaður fluguveiðimannsins.
Í logni er betra að láta Affallið bíða betri
tíma. Þar sem áin rennur úr vatninu er
hún breið og lygn miðað við það sem
hún síðar verður. Í Affallinu gildir sama
lögmál og í Laugardalsánni allri: Þegar
komið er að ánni verður að fara varlega
því laxinn er auðstyggður.
Þegar komið er að Affallinu er vænlegast
að byrja efst, þótt straums sé tæpast farið
að gæta þar. Marga laxa hef ég veitt efst í
Affallinu og mun ofar en straums er farið
að gæta svo nokkru nemi. Reyndar er það
þannig í Laugardalsá að umtalsverður
fjöldi laxa gengur upp í Laugabólsvatn
sem heldur sig þar sumarlangt. Gjarnan
lætur laxinn sig sakka niður í Affallið á
kvöldin og færir sig svo aftur upp í vatnið
þegar farið er að skarka í honum. Vænleg-
ast er að byrja með stuttum köstum, því
oft getur laxinn legið nálægt landi. Hafi
menn færni til er sjálfsagt að reyna að
láta fluguna falla undir hinum bakkanum
einnig, enda á það sama við þar. Í þessum
hæga straumi gefst oft vel að draga flug-
una hratt, „strippa“ eins og kallað er.
Kemur þá laxinn oft á eftir flugunni með
látum og hvolfir sér yfir hana. Er þá eins
gott að taugarnar beri veiðimanninn ekki
ofurliði, heldur leyfa laxinum að draga út
línustubb áður en brugðið er við. Síðan
er rétt að fikra sig rólega niður eftir veiði-
staðnum uns komið er að öðrum tveggja
aðaltökustaða í Affallinu, en sá er út af
steini sem er í bakkanum að austanverðu,
þ.e. þeim megin sem komið er að ánni,
enda er réttast að veiða Affallið frá þeim
bakkanum. Ef lax tekur efst í Affallinu,
eða út af téðum steini, er best að leiða
hann rólega upp eftir ánni og þess vegna
upp undir vatn og þreyta hann þar, svo
síður komi styggð að þeim löxum sem
fyrir eru á þessum gjöfula veiðistað.
Skammt hér neðan við er annar góður
tökustaður. Hann er undir landinu
handan ár, þ.e. að vestanverðu þar sem
áin breikkar lítillega til vesturs. Þar er
nokkuð dýpi og geta þar oft leynst furðu
margir laxar. Þarna reynir nokkuð á kast-
hæfileika fluguveiðimannsins. Þó er unnt
er að komast nær staðnum með því að
vaða rólega í átt að legustað laxanna.
Einnig má veiða þennan stað að vest-
anverðu, en þá verður að vaða yfir ána
nokkru neðar og nálgast staðinn varlega
frá hinu landinu. Þegar menn hafa veitt
nægju sína í Affallinu liggur leiðin að
næsta veiðistað fyrir neðan sem heitir
Ruðningar. Betra er að fara sér hægt á
þeirri leið því oft má sjá lax á stangli á
milli þessara staða, einkum að austan-
verðu. Á aðal göngutíma laxins getur víða
leynst sporður á þessari leið. Laxar sem
staldra við á göngu sinni á milli þessara
staða eru oft auðveiddir – og auðséðir
ef athyglin er í lagi, því áin er hæg og
grunn á þessum slóðum. Ég bendi veiði-
mönnum á að hyggja vel að laxi undir
báðum bökkum árinnar á þessum kafla,
enda getur hér hvarvetna leynst fiskur
undir steini.
Ruðningar
Næsti veiðistaður neðan Affallsins er
Ruðningar. Þetta er fremur grunnur
strengur með grófum malarbotni. Ruðn-
ingar geta verið magnaður veiðistaður
þegar laxinn er í göngu, en mín reynsla
er sú að hann staldri þar fremur stutt
við. Ruðningar er fremur auðveiddir og
krefjast ekki langra kasta. Laxinn liggur
venjulega um eða ofan við miðjan streng
og hér gildir það sama og annars staðar í
Laugardalsá, að fara ekki of nálægt ánni
til þess að forðast að styggja laxinn.
Indriði G. Þorsteinsson, heitinn, rithöf-
undur með meiru sagði mér eitt sinn
frá atburði sem varð þegar hann var að
veiðum í Laugardalsá og á gangi með
Ruðningunum. Varð honum fótaskortur
á göngunni og datt við það kylliflatur.
Skipti þá engum togum að áin ólgaði af
laxi sem óð upp úr Ruðningunum eins
og síldartorfa og öslaði upp ána í átt að
Affallinu. Hafði slík styggð komið að lax-
inum við fall Indriða að áin kraumaði
öll á þessum stað. Gefur þetta einhverja
hugmynd um laxamergðina sem þarna
var – og auðvitað líka um dynkinn við
fallið.
Hólmastrengur
Það verður að segjast eins og er að bæði
Ruðningar sem að framan er lýst og
Hólmastrengur, gjalda þess nokkuð að
vera á milli tveggja af bestu veiðistöðum
Laugardalsár, Affallsins og Dagmálafljóts.
Vilja menn oft hraða sér úr einni veislunni
í aðra, en skeyta lítt um smáréttina sem
kunna að gefast á leiðinni. Hólmastrengur
lætur lítið yfir sér. Hann er nokkurn spöl
Væn hrygna úr Laugardalsá.
Ljósmynd frá Bjarna Brynjólfssyni.