Veiðimaðurinn - 01.12.2018, Síða 65
64 Þegar góð ráð eru dýr má reyna Gammel Dansk
„Margar af skemmtilegustu minn-
ingunum eru tengdar fjölskylduveiði í
smærri ám eins t.d. Tunguá. Ein eftir-
minnilegasta ferðin þangað var þegar ég
gekk með dóttur mína og var að aðstoða 9
ára son minn við að landa laxi, ekki mátti
hann sleppa og stökk ég því til og tók
magalendingu á fiskinn þegar sonurinn
dró hann upp á litla eyri. Bumbubúanum
varð ekki meint af, heldur þvert á móti
enda komin með veiðibakteríu á hæsta
stigi 12 ára gömul! Áhuginn er reyndar
engu minni hjá yngsta fjölskyldumeð-
limnum sem er 6 ára en hann hefur veitt
nokkra fiska upp á eigin spýtur í Gufu-
dalsá síðustu árin. Það er því óhætt að
segja að fjölskyldan öll bíður spennt eftir
sumrinu og þeim ævintýrum sem veiði-
ferðirnar færa okkur,“ segir Esther.
Bitter og tvinnaspotti
„Ég mundi segja að almennt eru það
þolinmæði og eljusemi sem eru bestu
húsráðin þegar illa árar. Þá þarf bara að
reyna og reyna,“ segir Esther og bætir við
að hún sé dugleg að skipta um agn, reyna
nýjar flugur, stórar sem smáar og alla liti.
„Mikill vindur er ekki vinur veiðimanns-
ins en í slíkum aðstæðum legg ég nú fyrst
og fremst áherslu á að koma agninu út
í vatnið því í loftinu eða á bakkanum
gerir það lítið gagn,“ segir Esther og
brosir. „Sökktaumur og þungar flugur,
t.d. keilutúpur hafa oft reynst vel. Í þeim
ám sem leyfa annað agn en flugu, reyni ég
hiklaust fyrir mér með maðki eða jafnvel
spún enda oft auðveldara að koma því út
en flugunni. Vatnsleysi getur verið erfitt
að eiga við og sjálfsagt er það undarleg-
asta sem ég hef séð í þeim efnum þegar
laxarnir lágu niðrí móti í ánni og það var
ekki séns að eiga við þá. En í vatnsleysi er
um að gera að fara varlega að hyljunum
svo maður fæli ekki fiskinn. Þá er líka
nauðsynlegt að færa sig neðar á veiði-
stöðum, tökustaðurinn getur verið allt
annar en venjulega,“ segir Esther og bætir
við að í mikilli birtu og sól hafa litlar og
bjartar flugur reynst henni best, fyrir
utan þolinmæðina. „Ég hef sem betur fer
ekki lent oft í miklu skoluðu vatni enda
eru það með leiðinlegri aðstæðum, en
standi ég frammi fyrir slíku get ég nefnt
tvö leynitrikk sem ég hef notað. Annað er
að binda rautt girni um haus flugunnar og
hitt er að dýfa flugunni í Gammel Dansk,
þá steinliggur hann!,“ segir Esther.
Það sem vel er grænt
Esther segir að þegar fluga er valin sé um
að gera að staldra við og líta í kringum
sig, skoða litina í landslaginu í kring og
velja svo flugu í þeim sömu litum. „Þetta
var einmitt ráðið sem ég beitti í Langá
síðasta sumar þegar lítið gekk. Síðasta
morguninn var ég aflalaus og fór á efsta
veiðistaðinn í ánni, Ármótafljót uppi á
fjalli. Eftir þó nokkur köst og umferðir
með mismunandi flugum, settist ég á
bakkann og leit í kringum mig. Umhverfið
við ána var vel grænt, frekar skært og
rauðbrúnt. Ég skoðaði í öll box og fann
að lokum flugu sem var í sömu litum og
umhverfið. Ég setti hana á og viti menn,
hann var á! Sjálfsagt er þó mikilvægast
af öllu, í hvaða aðstæðum sem er, að hafa
trú á veiðarfærunum og sjálfum sér og
fyrst og fremst að njóta útiverunnar
og umhverfisins, og ekki spillir að vera
vel nestaður í góðum félagsskap,“ segir
Esther að lokum.
Almanak
Háskóla Íslands 2019
H Á S K Ó L A Ú T G Á F A N
haskolautgafan.hi.is – hu@hi.is – s. 525 4003
Almanak (ásamt Árbók)
Þjóðvinafélagsins 2019
ALMANAKHins íslenska
Árbók Íslands
2019
2017
145. árgangur
Fást í helstu bókaverslunum um land allt
FLÓÐATÖFLUR