Veiðimaðurinn - 01.12.2018, Síða 60

Veiðimaðurinn - 01.12.2018, Síða 60
60 Veiðimaðurinn 61 Þegar góð ráð eru dýr má reyna Gammel Dansk Eitt haustið fyrir ekki svo löngu síðan vorum við tveir vinir staddir á bökkum Vatnsdalsár, eins og alla jafna á þeim sama tíma ár hvert. Fyrir mér er það nán- ast helgur staður, og enginn kærari til að fagna haustinu í náttúrunni. Þetta voru stilltir dagar, bjart og kalt, og köll hundruða álfta á Flóðinu ómuðu um dalinn kvöld sem morgna. Það var ágæt bleikjuveiði og fallegur birtingur að taka flugur, sem var vitaskuld frábært, en lítil hreyfing á laxi. Þótt hann væri blessunarlega allur enn í ánni og gott að vita af því eins og alltaf í haustinu; hann færi senn að hrygna. Félagar á öðrum svæðum árinnar reyndu vitaskuld allt hvað þeir gátu við að reisa laxa og fá einhverja til að taka, nokkrir stórir höfðu sést og einhverjir okkar verið svo heppnir að fá stóra fiska á. Takan er jú málið, að áætlunin gangi upp. Við vinur minn höfðum fengið tvo smálaxa og haft mikið fyrir þeim; vinur minn er frá New York en hann treystir engum flugum betur en Snældunum sem Grímur Jónsson heitinn hannaði og beitti þeim í ýmsum stærðum, ýmist með flotlínu eða sökkenda, og þær til- færingar skiluðu honum þessum smálöxum. Ég hafði hinsvegar einsett mér að nota smærri flugur og veiða þær með ýmsum hætti, grunnt sem djúpt, og mishratt, hafði reist fiska en engum haldið. Svo komum við undir kvöld að Vaðhvammi, einum fegursta veiðistað landsins, hvar fyrsta laxveiði- sagan íslenska átti sér stað gegn höfuð- bólinu Hofi; þar sem Ingimundur gamli var veginn vegna deilna um veiði. Þar lagði ég til að við veiddum ekki á eyrinni, eins og flestir gera, heldur undir skriðunni, sem er erfiðara þar sem ekkert rými er fyrir bakkast og þarf helst að beita spey-kasti. Þá hafði ég í huga sögur af stórlöxum sem höfðu árin á undan náðst með þeirri aðferð, þar sem flugan er í raun tekin í aðra átt en laxarnir sjá oftast. Vinur minn tók fyrst eitt rennsli en ekkert gerðist. Ægifagurt kvöld var að setjast að okkur, fullt tungl að rísa í suðaustri. Logn og hitinn ekki nema um þrjár gráður. Vatns- hitinn eitthvað aðeins hærri. Ég sagði við vin minn að nú þyrfti að hægja á rennslinu eins og unnt væri, nánast stöðva það í ólg- unni neðst í strengnum. Ég var með tví- hendu með flotlínu, lengdi tauminn talsvert, hnýti á hann tommulanga Black Sheep með tungsten haus, og bætti um betur, rótaði í túpuboxinu og fann lausa keilu sem hafði fallið af túpu sem skemmdist, og renndi henni á tauminn fyrir framan. Ekki var það fallegt, eða fínlegt, en ég var bara viss um þetta væri ráðið. Og kastaði þessum þyngslum vonglaður á ská upp fyrir mig, yfir strenginn, og mendaði sífellt meðan bugurinn barst niður á við, til að hægja eins vel á rennslinu og ég gæti. Og eftir nokkur köst, til móts við sefið í vesturbakkanum þar sem er klassískur tökustaður, sat allt fast. Ég lyfti stönginni, strekkti á línunni, og eftir smá stund fann ég örlitla hreyfinguna sem gaf til kynna að það væri að minnsta kosti ekki í grjóti. Svo færðist línan svolítið upp móti straumnum. Það fór ekki á milli mála að fiskur var á og hann stór. Eftir að hafa togast á við hann í nokkrar mínútur, án þess að nokkuð gerðist, lét ég vin minn fá stöngina. Hann hafði aldrei náð að landa laxi í yfirstærð en misst einn slíkan í Smiðshyl árið áður. Það var tekið vel á fiskinum sem byrjaði smám saman að láta okkur hreyfa sig meira og svo byrjaði hann að leita niður á við. Ég tók aftur við stönginni og tók stíft á, án þess að ráða að neinu marki við skepnuna. Sem streðaði niður ána og svo varð að vera; hún náði að bruna af stað og niður úr hylnum, yfir breiðuna sem þar tekur við og ég elti á hlaupum, alla leið niður í Áveituhyl þar fyrir neðan. Og eftir talsverðan barning, og höfðum við ekki séð fiskinn að ráði, náði ég að stranda þar afar digurri hrygnu sem var þrímæld við undrunarstunur okkar vina hundrað sentímetrar slétt. Þetta var gleðistund í húminu í Vatnsdal, áætlunin hafði gengið upp. Morguninn eftir náði annar vinur hundrað og tveggja sentímetra hæng og sá tók sér- hnýtta keilutúpu á nákvæmlega sama bletti og hrygnan mín í Vaðhvammi. Hjónin snéru þangað aftur til að huga að hrygningu – en það er önnur saga. Gleðistund í húminu í Vatnsdal Þar lagði ég til að við veiddum ekki á eyrinni, eins og flestir gera, heldur undir skriðunni, sem er erfiðara þar sem ekkert rými er fyrir bakkast og þarf helst að beita spey-kasti.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Veiðimaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.