Veiðimaðurinn - 01.12.2018, Side 110
110 Veiðimaðurinn 111 Veiðkonur eru skemmtilegar konur
„Þá fór ég í Langadalsá með nokkuð
stórum hópi fólks. Mér fannst mjög nota-
legt að vera við ána. Ég fékk ekki lax og
í fullri hreinskilni þá féll ég ekki fyrir
stangaveiðinni í þessari ferð. Það gerðist
aftur á móti árið eftir en þá veiddum við
bæði í Langadalsá og Hvannadalsá. Þá
náði ég maríulaxinum og hann mér.
Það sem heillar mig er auðvitað að tak-
ast á við fiskinn en ekki síður útiveran
og nálægðin við náttúruna. Síðan er það
félagsskapurinn, mér finnst hann vera
mjög stór hluti af upplifuninni. Maður
kynnist fólki öðruvísi í veiðiferðum
en annars staðar. Í veiðiferð eru allir á
sömu blaðsíðunni, fólk er komið til að
hafa gaman, gera vel við sig og veiða. Ef
ég á að velja á milli þess að fara í helg-
arferð til London eða í veiði þá vel ég alltaf
veiðina - hún gerir miklu meira fyrir mig.
Á sumrin vil ég miklu frekar fara í veiði
en til útlanda. Ég vil njóta íslenskrar nátt-
úru með góðum vinum við fallega á - ég
elska það.“ Lilja segir að silungsveiðin
heilli hana alveg eins og laxveiðin. „Ég
fór í Laxá í Mývatnssveit fyrir tveimur til
þremur árum. Það er töluvert ódýrara en
að fara í laxveiði en virkilega skemmtilegt.
Ég naut mín vel á bökkum Laxár. Einnig
finnst mér Veiðikortið vera ómissandi.
Það eru mikil lífsgæði fólgin í því að geta
skroppið á Þingvelli að veiða fyrir lítinn
sem engan pening.“
Draga konur fram í dagsljósið
Eins og áður sagði þá gekk Kristín Ósk
Reynisdóttir í árnefnd Langár á sama tíma
og Lilja. Kristín hefur látið til sín taka í
félagsstörfum Stangaveiðifélagsins. Fyrir
um fimm árum síðan stóð hún, ásamt
fleiri konum, að stofnun Kvennadeildar
félagsins.
Kristín segir of algengt að konur veiði
„bakvið mennina sína“ eins og hún orðar
það. Kvennadeildin hafi ekki síst verið
stofnuð til þess að draga þessar konur
fram í dagsljósið og segir hún það hafa
tekist vel. Frá stofnun Kvennadeildar-
innar hafi konur orðið mun meira áber-
andi í félaginu.
„Þetta hefur lukkast mjög vel,“ segir
Kristín. „Það eru mjög margar konur sem
taka þátt í viðburðum á vegum deildar-
innar og síðan höfum við skipulagt veiði-
ferðir. Það hefur ekki verið vandamál að
fá konur til mæta í þær. Síðasta vor fórum
til að mynda til Skotlands að veiða í Dee
og það var alveg geggjað,“ segir hún eins
og lesa má um á síðum blaðsins.
Sniðugt að hafa árnefndir blandaðar
Kristín, sem er nú hætt í stjórn Kvenna-
deildarinnar, ákvað síðasta vor að slá til
og ganga í árnefndina.
„Mér fannst mjög gaman að taka þátt í
störfum nefndarinnar og sjá afrakstur-
inn þegar búið er að gera allt klárt fyrir
sumarið. Ég er alveg viss um að flestir
veiðimenn, sem koma að veiðihúsi og á,
gera sér ekki grein fyrir því hversu mikil
vinna liggur á bakvið að gera allt klárt.
Að mínu viti er mjög sniðugt að hafa
árnefndirnar blandaðar. Ég held að konur
hafi kannski ekki sótt um því þær hafi
haldið að þær ættu ekki möguleika á að
komast inn en nú hefur það breyst. Ég er
alveg viss um að fleiri konur munu fara
í þessar nefndir og veit af nokkrum sem
hafa sótt um.
Þó ég hafi oft veitt í Langá var mjög gaman
að fá að loka ánni með árnefndinni síðasta
haust. Þegar maður tekur þátt í svona
árnefndarstörfum þá kynnist maður ánni
betur. Ég er alveg gallhörð á því að fá að
merkja ána næsta vor því þannig kynnist
maður henni enn betur.“
Þegar maður tekur þátt í svona árnefndarstörfum þá kynnist
maður ánni betur. Ég er alveg gallhörð á því að fá að merkja
ána næsta vor því þannig kynnist maður henni enn betur.“