Veiðimaðurinn - 01.12.2018, Síða 28
28 Veiðimaðurinn 29 Laugardalsá – Veiðistaðalýsing
Hinn veiðistaðurinn er djúpur pyttur
beint undir Nefinu sjálfu. Þann stað er
best að veiða að ofanverðu. Þá ganga
menn niður brekkuna ofan Nefsins og
láta fluguna berast að landinu að vest-
anverðu, þ.e. þeim megin sem staðið er.
Tilvalið er að prófa þennan stað þegar
menn hafa lokið sér af í Skáfossi.
Enga hvet ég til að ganga fram á Nefið
sjálft og skyggnast þar um. Bæði veldur
það styggð í hylnum, en er auðvitað lífs-
hættulegt, enda dæmi þess að brotnað
hafi úr Nefinu og orðið mönnum að fjör-
tjóni, eða allt að því.
Berghylur
Berghyl er að finna undir hamrinum að
vestanverðu, örskammt neðan Nefsins.
Ætli menn sér þangað eftir að hafa reynt
sig við Nefið, verða menn að vaða varlega
yfir ána á milli þessara staða, enda Berg-
hylur veiddur austanmegin frá.
Aðal tökustaðurinn í Berghyl er í fyssinu
efst í strengnum, en oft má sjá laxa um
miðjan hylinn eða neðar þar sem hann
liggur gjarnan í skjóli staksteina. Þarna
getur verið þröngt um bakkastið eins
og víðar á þessum slóðum og eru þær
aðstæður veiðimönnum áskorun.
Svörtuloft
Svörtuloft eru rétt ofan við gömlu brúna
yfir Laugardalsá. Mikill klettur er þarna
út í ánni og stoppar laxinn í smá holum
og pyttum bæði neðan við, en þó einkum
ofan við klett þennan. Þarna er til þess
að gera auðvelt að sjá laxinn. Svörtuloft
eru venjulega veidd af vesturbakkanum.
Það er ekkert einfalt við það að veiða
Svörtuloftin með flugu. Besti kosturinn er
að prófa örsmáar þyngdar túpur og vippa
þeim andstreymis og láta þær skjótast yfir
laxinn. Einnig geta lufsu-túpur eins og
Sunray Shadow eða eitthvað álíka gefið
veiði. En eitt er þó víst: Ef laxinn er í
göngu þá stoppar hann í Svörtuloftum
– og er þá veiðimönnum boðið til veislu.
Brúarfljót
Mér er í barnsminni boðarnir af laxa-
torfum í oddasundi renna inn í Brúar-
fljótið á háflæði. Margsinnis hrukku
göngurnar frá og syntu til baka, en svo
kom að því að laxarnir sættust við ána,
héldu kyrru fyrir í fljótinu og tifuðu
uggunum á meðan þeir voru að venja sig
við ferskvatnið. Slík sjón er ógleymanleg.
Stundum er Brúarfljótið krökkt af laxi.
Þá er eins gott að gína ekki yfir þeim
af brúnni. Laxinn er þarna ljónstyggur
og allt getur orðið vitlaust í hylnum,
sé óvarlega farið.Venjulega liggur lax-
inn í straumnum rétt neðan við brúna,
í námunda við klett sem upp úr ánni
stendur. Einnig nýtir hann sér stundum
skugga af brúnni, þegar hans gætir.
Reyndar hef ég séð laxa víðsvegar um
Brúarfljótið og þess vegna niður undir sjó,
en ef menn ætla sér að skyggna þennan
veiðistað er eins gott að fara varlega. Ég
læt veiðimönnum það eftir að finna réttu
aðferðina til að veiða Brúarfljótið með
flugu, en einfaldara er að standa vestan-
megin ár við slíkar tilraunir.
Það er venjulega áskorun
að fá laxinn til að taka
fluguna í Berghyl.
Horft upp eftir Laugar-
dalsá af gömlu brúnni.
Næst á myndinni eru
Svörtuloft.