Veiðimaðurinn - 01.12.2019, Qupperneq 4
Þ að var bjartsýni í lofti
meðal stangveiðimanna
í Reykjavík vorið 1939.
Stangaveiðifélag Reykja-
víkur var stofnað þann
17. maí það ár eins og ítarlega hefur
verið fjallað um á 80 ára afmælisári
félagsins. Í fyrra afmælisblaði SVFR á
þessu ári fjölluðum við um upprunann
og höldum áfram nú. Á næsta ári gefst
svo tilefni til að fagna enn frekar þegar
málgagn stangveiðimanna fagnar 80
ára afmæli en Veiðimaðurinn kom fyrst
út árið 1940.
Líf legt afmælisár SVFR er senn að
baki. Boðið hefur verið upp á fjölmarga
skemmtilega viðburði eins og fjallað er
um í blaðinu og framundan er líflegt
félagsstarf fram á vor þar til stangveiði-
menn halda á veiðislóð á ný. Vetrar-
myrkrið reynir á þolrifin en hvað er þá
betra en að grípa góða veiðibók í hönd,
hnýta girnilega flugu sem mögulega slær
í gegn eða segja góðar veiðisögur? Já eða
auka þekkingu sína? Ný fræðslunefnd
SVFR er kynnt til leiks í blaðinu sem ætlar
að bjóða upp á metnaðarfullt starf á nýju
ári og stytta veiðimönnum biðina eftir
fyrstu köstunum.
Mikill metnaður einkenndi fyrstu starfsár
SVFR. Félagið var stofnað til að tryggja
framtíð laxveiði í Elliðaánum en félags-
starfið var ekki síður mikilvægt á fyrstu
árum félagsins. Blásið var til að mynda
til árshátíðar þar sem Albert Einarsson,
gjaldkeri félagsins, var fremstur í flokki.
Albert stofnaði árið 1940 verslunina Veiði-
manninn, eins og fjallað erum í blaðinu,
til að tryggja veiðimönnum sómasam-
legan búnað til að reyna sig við villtan
Atlantshafslaxinn. Þá var ekki auðvelt að
flytja veiðidót til landsins og fyrstu árin
þurftu veiðimenn jafnvel að sætta sig við
notaðan búnað því annað var ekki hægt
að fá, 14-17 feta stangir frá Hardy voru
staðalbúnaður. Albert bauð einnig upp á
stangir frá franska fyrirtækinu Pezon &
Mitchell sem bjuggu m.a. til veiðistangir
fyrir Hemingway. Í verslun hans voru
veiðileyfi SVFR jafnframt afgreidd á
fyrstu árunum. Þá kostaði dagur í Elliða-
ánum 75 krónur og félagsmenn höfðu að
jafnaði einn dag í viku til að reyna sig við
þann silfraða. Veiðimaðurinn var fyrsta
sérvöruverslun landsins með veiðivörur
en í dag eru fjölmargar glæsilegar versl-
anir sem veiðimenn geta skipt við og til
marks um hversu þungt landsmenn eru
haldnir af veiðidellunni.
Árshátíð SVFR var endurvakin síðastliðið
vor í tilefni 80 ára afmælis félagsins og
fór hún fram á Hótel Sögu. Þar var dansað
eins og á fyrstu árum Stangó. Boðið var
reglulega til skemmtikvölda í Þjóðleik-
húskjallaranum þar sem var m.a. boðið
upp á veiðikvikmyndir frá liðnu sumri
og svo dansæfingar í kjölfarið. Því ekki
að endurtaka leikinn?
Veiðimaðurinn lagði strax frá upphafi
áherslu á að kenna mönnum góða siði á
bakkanum og veita ráð um veiðiaðferðir
og búnað. Framandi flugur voru jafnframt
kynntar til leiks og Veiðimaðurinn er enn
við sama heygarðshornið. Í þessu blaði
kynnumst við litríkum listaverkaflugum
Harðar Filipssonar sem hnýttar eru úr
verðmætum fjöðrum framandi fugla.
Flugurnar leika í höndum Harðar sem
hnýtir þær að hætti gömlu meistaranna.
Forsíðu blaðsins prýðir Green Highlander
sem Hörður er við það að leggja loka-
hönd á en hann á einstakt safn flugna
sem aðalsmaðurinn Traherne hannaði á
sínum tíma og kom með eins og sprengja
inn á markaðinn undir lok 19. aldar.
Mannskepnan hefur með brölti sínu
þrengt víða að laxinum og nú er svo
komið að stjórn Stangaveiðifélags
Reykjavíkur hefur ákveðið að breyta
veiðifyrirkomulagi í Elliðaánum næsta
sumar. Aðeins verður veitt á flugu og
skal öllum veiddum laxi sleppt. Mark-
mið breytinganna er að tryggja framtíð
laxins í Elliðaánum en stofn ánna á undir
högg að sækja samkvæmt nýrri rannsókn
Hafrannsóknarstofnunar. Í yfirlýsingu
stjórnar félagins sem lesa má í heild sinni
á næstu síðum segir meðal annars:
„Nýverið voru niðurstöður rannsóknar
á laxastofni Elliðaánna kynntar fyrir
stjórn SVFR. Fiskifræðingar Hafrann-
sóknarstofnunar rannsökuðu vöxt og við-
gang stofnsins, þróun yfir áratuga langt
tímabil, fjölda gönguseiða, veiðihlutfall
o.fl. ... Niðurstöður vísindamannanna
kalla á aðgerðir sem hafa það að mark-
Almenningsíþrótt
verður til
4 Veiðimaðurinn 5 Leiðari
Mikill metnaður einkenndi fyrstu starfsár
SVFR. Félagið var stofnað til að tryggja
framtíð laxveiði í Elliðaánum en félagsstarfið
var ekki síður mikilvægt á fyrstu árum félagsins.