Veiðimaðurinn - 01.12.2019, Blaðsíða 66
rokið upp. Þessi fjárfesting mín, að hafa
átt þessar fjaðrir, er mun betri heldur en
bestu hlutabréf sem ég hef nokkru sinni
átt. Ég er voða ánægður með að hafa misst
mig á sínum tíma og geta fengið eitthvað
af fjárfestingunni til baka.“
Leitin að listinni
Það er ekki mikið af upplýsingum að
finna um klassískar laxaflugur á netinu
og segist Hörður hafa þurft að leita sér
upplýsinga víða. En hannar hann sínar
eigin fjaðraflugur? Má það?
„Já svo sannarlega. Fyrir einhverjum
árum byrjaði ég að hanna mínar eigin
flugur. Mér finnst það ótrúlega gaman.
Þær eru í klassískum stíl en ég hanna
mín eigin mynstur,“ segir hann og
dregur fram sérviskulega útgáfu að hætti
hússins. „Hún var hönnuð fyrir viðskipta-
vin sem kom aldrei til að sækja fluguna en
bíður nú nýs eiganda. Að dunda með eina
flugu í þrjá til fjóra daga og ögra sjálfum
sér er einstakt. Stundum er allt vonlaust,
stundum gengur allt upp. Þetta er ofboðs-
lega flókið stundum, sérstaklega þegar þú
ert að kljást við flóknustu flugurnar. Líka
þegar þú ert að hanna eitthvað sjálfur og
teiknar einhverja vitleysu sem er nánast
ógerlegt að hnýta. En þá eru verðlaunin
líka meiri þegar maður er búinn með
hana. Þá hugsar maður með sér. Já, þetta
gat ég! Það finnst mér mest spennandi
við þetta, að ögra sjálfum sér og búa til
eitthvað nýtt og að geta hnýtt klassísku
flugurnar í upprunalegri mynd.
Veiðidellan er ótrúlegt fyrirbæri og
Hörður viðurkennir það en best líður
honum í góðra vina hópi á bakkanum
þar sem ekki er sótt of stíft á miðin. Þar
sem svigrúm er gefið til að segja góðar
veiðisögur og hlæja saman ekki síður
en að kasta flugum fyrir spræka fiska.
Hörður er þakklátur Helga Þórðarsyni,
Valgarði Erni Ragnarssyni og fleirum
góðum veiðifélögum fyrir að opna fyrir
sér töfra fluguhnýtinganna.
„Þeir eru allir þrusugóðir hnýtarar og
þegar ég var að veiða með þeim hugsaði
með mér: Mikið væri nú gaman að veiða á
flugu sem maður hnýtir sjálfur. Valli sem
var að vinna hjá mér á þeim tíma þegar
ég var að byrja að veiða kenndi mér hell-
ing. Meðal annars að veiða. Svo fékk ég
bara delluna ... að hnýta á kvöldin í stað-
inn fyrir að horfa á sjónvarpið. Því betri
tökum sem maður náði á hnýtingunum
því meira gaman varð þetta.
Uppáhaldsflugurnar?
„Green Highlander, Popham og Butcher
eru mínar uppáhaldsflugur. Ég hef fengið
lax á Hálendinginn og Slátrararann en
Popham bíður eftir sínu tækifæri.“
„Það er ekkert eðlilegt
við að kasta 200 þúsund
króna flugu út í á,“
Blue Boyne stærð 6/0.
Vantar þig flugu?
Sendu Herði línu á hfilips@simnet.is
Veiðimaðurinn 67 66 Litríkar listaverkaflugur