FLE blaðið - 01.01.2017, Page 7
5FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2017
Stjórnin hefur gert sitt besta til að halda hádegisverðarfund-
unum okkar lifandi en ekki borið árangur sem erfiði og hefur
mætingin verið slök, svo slök að við höfum þurft að fella fundi
niður þrátt fyrir að hafa fækkað þeim, stytt þá og fleira. Mér
sýnist fullreynt með fundina, að þeir séu bara að verða undir
í samkeppni við tíma félagsmanna en við ætlum allavega að
reyna að halda í jólafundinn okkar áfram og svo fund þar sem
við bjóðum nýja endurskoðendur velkomna.
Þau gleðitíðindi áttu sér stað þann 17. júní 2016 að Stefán
Svavarsson endurskoðandi hlaut riddarakross, heiðursmerki
hinnar íslensku fálkaorðu. Hann var í hópi tólf Íslendinga sem
forsetinn veitti þennan heiður. Stefán er vel að þessum heiðri
kominn enda hefur hann verið í fararbroddi í faginu okkar á
opinberum vettvangi sem og í menntun endurskoðanda og eru
þeir ófáir endurskoðendur sem hafa litið upp til hans sem eins
fremsta fræðimanns Íslands á þessu sviði.
Eins og áður hefur fjöldi félagsmanna komið að starfsemi FLE
með einum eða öðrum hætti í fastanefndum, stjórnum eða
öðrum vinnuhópum og tekið þátt í að gera félagið að því sem
það er í dag. Vill stjórn þakka öllum þessum aðilum fyrir fram-
lag þeirra á starfsárinu. Þá vill stjórn einnig færa starfsmönnum
félagsins þeim Sigurði og Hrafnhildi bestu þakkir fyrir gott sam-
starf á árinu sem og undanfarin ár. Að lokum vil ég þakka með-
stjórnarmönnum fyrir gott og árangursríkt samstarf á árinu.
Margrét Pétursdóttir formaður
Formaður undirritar samning um styrk frá Námstyrkja- og rannsóknarsjóði félagsins