FLE blaðið - 01.01.2017, Blaðsíða 9
7FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2017
Endurskoðunarnefndin hefur lagt alla sína krafta undan-
farin misseri í það að kynna sér til hlítar nýja staðla um árit-
anir en nefndin sendi frá sér tillögu að nýrri áritun stuttu fyrir
árslok 2016, að teknu tilliti til þeirra ábendinga sem komu frá
félagsmönnum bæði beint og í tengslum við vinnustofu á
Haustráðstefnunni.
Fyrir utan hefðbundin störf Skattanefndarinnar þá hafa frest-
mál og samskipti við RSK risið einna hæst á liðnu starfsári.
Það er ljóst að hér er mikið hagsmunamál á ferðinni fyrir
okkur endurskoðendur þar sem mikilvægt er að ná farsælli og
viðunandi lendingu fyrir alla aðila. Formaður, varaformaður og
framkvæmdastjóri munu funda áfram með RSK þar sem þessi
mál verða tekin til umræðu.
Störf Gæðanefndarinnar hafa verið í föstum skorðum undan
farin ár og hafa aðallega tengst yfirferð gæðaeftirlitsskýrslna
en lögbundið gæðaeftirlit er með störfum okkar undir yfir-
stjórn Endurskoðendaráðs. Ef að líkum lætur þá mun það eftir-
lit hverfa af borði félagsins á þessu eða næsta ári. Hvar og
hvernig því verður fyrirkomið, liggur enn ekki fyrir, en félagið
mun leitast við að tryggja ásættanlega lendingu fyrir stéttina.
Ímyndarmál
Stjórn félagsins hefur sett á laggirnar nefnd um ímyndarmál
sem hefur það að markmiði; að greina niðurstöður viðhorfs-
könnunar; gera tillögu að því hvaða þætti þarf að bæta og finna
leiðir til að styrkja stöðu endurskoðandans sem fagmanns í
Fjölmenni var á Reikningsskiladegi félagsins
Heiðursfólk á hádegisfundi í tilefni jóla