FLE blaðið - 01.01.2017, Page 11
9FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2017
Frá Skattadegi félagsins
Undanfarin tvö til þrjú ár hefur verið vinna í gangi og umræða
innan NRF hvað varðar svo kallaðan SASE staðal til notkunar við
endurskoðun lítilla viðskiptavina. Þó nokkur umræða og litrík
skoðanaskipti hafa verið í gangi síðastliðið ár í Evrópu sem og
alþjóðavettvangi og sitt sýnist hverjum. Alla vega er ljóst að
þetta útspil Norðurlandanna hefur leitt af sér miklar vangaveltur.
Í janúar 2017 verður haldin vinnuráðstefna í París um endur-
skoðun lítilla fyrirtækja og þarfir endurskoðenda í þeim efnum og
verður SASE m.a. tekinn til umfjöllunar. Ráðstefnan verður lokað-
ur vettvangur en að henni standa Alþjóðlega staðlaráðið (IAASB
sem gefa út ISA,s) bandaríska og franska endurskoðendasam-
bandið svo og NRF. Fyrir utan fulltrúa frá framangreindum sam-
tökum verður jafnframt boðið völdum fulltrúum frá B4 og öðrum
alþjóðlegum endurskoðunarfyrirtækjum sem og frá minni endur-
skoðunarfyrirtækjum og fulltrúum frá ýmsum endurskoðenda-
samtökum svo dæmi séu tekin. Gera má ráð fyrir að fjöldi þátt-
takenda verði á bilinu 80- 100 manns, en þetta verður 2ja daga
vinnuráðstefna sem Norðurlöndin gera sér miklar vonir um að
skili jákvæðri niðurstöðu, en eins og þið vitið hafa þessi málefni
verið baráttumál innan NRF síðastliðin ár en gengið erfiðlega að
ná eyrum IAASB sem nú virðist aftur á móti að vera bera árangur.
styrkir
Eins og fram kemur í ársskýrslu félagsins veitti Námstyrkja- og
rannsóknarsjóður FLE nú í fyrsta sinn styrki til eflingar rann-
sókna sem falla undir markmið sjóðsins. Veittir voru tveir styrkir
á starfsárinu, annars vegar til rannsóknar á gæðum reikningsskila
og mikilvægra forsenduþátta fyrir gæðum endurskoðunar og
hins vegar til samanburðarrannsóknar á endurskoðunarnefndum,
starfsumhverfi þeirra og umfangi.
Eins og kemur fram í markmiðum sjóðsins er það ósk og von
félagsins að slíkir styrkir auki faglega umfjöllun um störf okkar
sem og að viðhalda og auka faglega þekkingu endurskoðenda
eða styrkja rannsóknir sem snerta beint hagsmuni FLE eða lög-
bundið hlutverk þess. Gerir félagið sér því vonir um að áframhald
verði á í þessum efnum.
Ég vil að lokum þakka fráfarandi stjórn og nefndum fyrir ánægju-
legt samstarf á liðnu ári, og ykkur félagsmenn góðir að hafa tekið
þátt í þeim atburðum sem félagið hefur staðið fyrir á liðnu starfs-
ári.
Sigurður B. Arnþórsson