FLE blaðið - 01.01.2017, Qupperneq 15

FLE blaðið - 01.01.2017, Qupperneq 15
13FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2017 fram kom hér að framan er einnig heimilt að hafa þennan kafla með í áritunum endurskoðanda á ársreikninga þeirra eininga sem ekki eru með skráð verðbréf í kauphöll. Tilgangur þess að gera grein fyrir lykilatriðum endurskoðunar- innar er að auka verðmæti áritunarinnar með því að veita meira gagnsæi um framkvæmd hennar enda er áritunin eins og flestir vita það eina sem notandi reikningsskilanna sér sem sönnun um vinnu endurskoðandans og eru einnig oft einu samskipti endur- skoðandans við lesandann. Tilgangurinn er jafnframt að veita frekari upplýsingar til notenda reikningsskilanna til að aðstoða þá við að öðlast skilning á þeim atriðum, sem samkvæmt faglegu mati endurskoðandans voru þýðingarmest í endurskoðun ársins. Kaflinn um lykilatriði endurskoðunarinnar getur einnig aðstoðað notendur við að skilja starfsemi félagsins og hvaða liðir eru háðir reikningshaldslegu mati stjórnenda. Kaflinn í árituninni kemur ekki í stað skýringa eða upplýsinga í ársreikningi, kemur ekki í stað fyrirvara í áritun, neikvæðs álits eða áritunar án álits og kemur ekki í staðinn fyrir kafla um rekstrarhæfi þegar vafi leikur á að rekstrarhæfi sé til staðar. Þessi lykilatriði eru einnig oft á tíðum útskýrð í skýringum við ársreikninginn sem settur er fram af stjórnendum en hingað til hefur áritunin ekkert sagt um hvað endurskoðandinn gerði til þess að ná sér í nægjanlega vissu um að þessi málefni væru án verulegrar skekkju. Lykilatriði endurskoðunar eru þau atriði sem samkvæmt faglegu mati endurskoðandans höfðu mesta þýðingu í endurskoðun ársins. Ekki er látið í ljós sérstakt álit varðandi þessi lykilatriði, einungis er látið í ljós álit á ársreikningnum í heild. Í umfjöllun um lykilatriði endurskoðunar þarf að koma fram tilvísun í skýr- ingar, útskýring á því af hverju viðkomandi atriði voru talin hafa mikla þýðingu í endurskoðuninni skilgreind lykilatriði og hvernig endurskoðun var framkvæmd er varðar þessi tilteknu lykilatriði. Atriðin eru valin úr þeim atriðum sem upplýst er um til stjórnar og endurskoðunarnefndar. Til dæmis getur verið um að ræða verulega áhættuliði, matskennda liði eða verulega viðburði á tímabilinu. Sviksemisáhætta í tekjuskráningu og sniðganga stjórnenda á innra eftirliti sem eru alltaf verulegir áhættuliðir í endurskoðun sbr. kröfur ISA þurfa ekki endilega að vera lykilatriði endurskoðunarinnar. Þessi atriði standa jafnhliða öðrum atriðum sem upplýst voru til stjórnar og endurskoðunarnefndar við val á lykilatriðum endurskoðunarinnar. Það þarf því að huga að því snemma í endurskoðuninni hvaða atriði það geta mögulega verið sem endurskoðandinn vill setja fram í áritun sinni þannig að hægt sé að hefja umræður við stjórn og endurskoðunarnefnd um þau atriði sem fyrst þannig allir aðilar máls séu upplýstir. Heimild er í ISA 701 til þess að upplýsa ekki um lykilatriði endur- skoðunar í einstaka tilfellum. Það á við ef lög eða reglur leyfa ekki að upplýst sé opinberlega um tiltekin atriði eða í algjörum undan- tekningartilfellum þegar mat endurskoðandans er að neikvæðar afleiðingar af birtingu slíkra upplýsinga vegi þyngra en ávinningur almennings af birtingu upplýsinganna. Í vinnupappírum endur- skoðandans þurfa að koma fram þau atriði sem kröfðust mikillar athygli í endurskoðuninni og rökstuðningur á því hvort þau voru skilgreind lykilatriði endurskoðunarinnar eða ekki. Eftirfarandi er dæmi um hvernig umfjöllun um lykilatriði í endur- skoðuninni gæti litið út, en það ber að nefna að þetta getur orðið mjög mismunandi milli eininga, enda skal hver áritun aðlöguð að hverri einingu fyrir sig. Hér er tekið dæmi um það að mat á við- skiptavild sé lykilatriði í endurskoðuninni en slík atriði geta einnig verið sem dæmi endurskoðun á tekjum, mat á fjármálagerning- um, skattamál, aflögð starfsemi, mat á lífeyrisskuldbindingu eða tjónaskuld, stórar fjárfestingar eða jafnvel eitthvað verulegt sem gerst hefur á árinu í starfsemi einingarinnar. dæmi um Framsetningu á ViðskiptaVild sem lykilatriði Í endurskoðuninni Samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum (IFRS) er félaginu skylt að framkvæma árlegt virðisrýrnunarpróf á við- skiptavild. Viðskiptavild er verulegur hluti af heildareignum X hf. og er samkvæmt okkar faglega mati mikilvægt atriði í endurskoðun okkar á félaginu. Virðisrýrnunarprófið sem er framkvæmt er flókið og eru margar undirliggjandi forsendur sem byggðar eru á rekstraráætlunum félagsins og vaxta- kjörum þess. Viðskiptavildin sem um ræðir er að mestu leyti tilkomin vegna kaupa félagsins á dótturfélagi þess í Suður- Ameríku. Framkvæmd virðisrýrnunarprófsins og forsendum þess er lýst í skýringu nr. x við ársreikninginn og koma allar helstu forsendur þar fram. Í skýringunni er sérstaklega tekið fram að smávægileg breyting í undirliggjandi forsendum getur haft þau áhrif að færa þurfi virðisrýrnun á viðskipta- vildinni í framtíðinni. Við endurskoðun okkar á viðskipta- vild yfirfórum við allar helstu forsendur virðisrýrnunarpróf- sins, við fengum til liðs við okkur verðmatssérfræðing sem aðstoðaði okkur við að meta þessar undirliggjandi forsendur sem og að skoða þann tekjuvöxt sem gert var ráð fyrir í virðisrýrnunarprófinu. Hann yfirfór einnig rekstraráætlanir stjórnenda og þann tekjuvöxt sem gert var ráð fyrir í áætlun- unum. Við yfirfórum einnig hvort okkur þætti skýringar við ársreikninginn nægjanlega upplýsandi er varðar skýringar á þessum helstu forsendum prófsins. ársskýrslur Það er vert að nefna að ef eining gefur út ársskýrslu sem inni- felur ársreikning áritaðan af endurskoðanda félagsins ber endur- skoðandanum skylda til þess að lesa ársskýrsluna og mynda sér skoðun á því hvort innihaldið sé í samræmi við niðurstöður endur- skoðunarinnar og skal áritunin bera þess merki sbr. ákvæði í ISA 720. Fyrirmyndir að áritunum Endurskoðunarnefnd FLE hefur útbúið fyrirmynd að breyttum áritunum á íslensku fyrir félagsmenn og má finna þessar fyrir- myndir á innri vef FLE, www.fle.is Helga Hjálmrós Bjarnadóttir og Elín Hanna Pétursdóttir

x

FLE blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: FLE blaðið
https://timarit.is/publication/1259

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.