FLE blaðið - 01.01.2017, Page 21
19FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2017
annars sagt okkur frá kynnum sínum af kóngum og drottning-
um sem varð okkur mikill innblástur. Til viðbótar við okkur þá
æfir Auður Þórisdóttir með okkur hjá Jónsa í WorldClass en þar
sem golfbakterían hefur heltekið hana þá hefur ekki verið rúm
fyrir göngutúra í hennar dagskrá.
Til að viðhalda líkamlegri vellíðan á göngunni og á kvöldin þá
nýttum við okkur æfingar sem við lærðum á Jakobsveginum af
Auði Bjarnadóttur jógakennara. Þessar æfingar tókum við með
reglulegu millibili á göngunni og gerði það mikið fyrir okkur.
Einnig nýttum við okkur kalda sturtu og aðra tækni eins og
kælikrem og hnjáhlífar.
Til að rata á milli þorpanna þá studdumst við við Garmin,
Iphone og skriflegar leiðarlýsingar frá On foot holidays.
Nauðsynlegt var að notast við allt þetta til að komast réttu leið-
ina. Þegar ein tæknin brást þá kom önnur til bjargar. Lengsta
dagleiðin endaði með því að það var komið fram í myrkur þegar
við komum niður í þorpið og voru þorpsbúar farnir að leita að
okkur, það var mikill fögnuður hjá þorpsbúum þegar þeir sáu
okkur koma.
Það var einstaklega vel hugsað um okkur í hverju þorpi og gisti-
húsaeigendurnir gerðu allt til að láta okkur líða vel. Maturinn
sem okkur var boðið uppá var hreint út sagt frábær, þarna var
ekta ítalskur sveitamatur borinn á borð sem útbúinn var sam-
kvæmt leyndum uppskriftum hverrar fjölskyldu úr hráefni úr
héraðinu. Betra getur það ekki orðið.
Þetta var ólýsanlega falleg leið og erfitt að lýsa því í orðum. Við
látum hér fylgja nokkrar myndir sem ættu að hjálpa til við það.
Ánægjan með þessa gönguferð var það mikil að við höfum nú
þegar skráð okkur í aðra gönguferð hjá On foot holidays næsta
haust og þá verður Frakkland fyrir valinu. Fyrir áhugasama þá
er hér nánari lýsing á gönguleiðinni á eftirfarandi slóð hjá On
foot holidays http://www.onfootholidays.co.uk/Default.aspx/
viewTour.49. Við getum eindregið mælt með ferðum skipu-
lögðum af þessu breska fyrirtæki.
Kristrún Helga Ingólfsdóttir