FLE blaðið - 01.01.2017, Qupperneq 33
31FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2017
Sumarið 2016 var gott golfsumar um mestallt land og hygg ég
að endurskoðendur, sem hafa tileinkað sér þessa hollu og
skemmtilegu íþrótt, hafi stundað hana af kappi.
Meistaramót FLE í golfi fór þetta árið fram föstudaginn 2. sept-
ember á Garðavelli á Akranesi í miklu blíðskaparveðri við frá-
bærar aðstæður.
Að þessu sinni mættu 13 hressir kylfingar til leiks en það vakti
athygli að engin kona tók þátt og var það annað árið í röð sem
það gerðist.
Leikfyrirkomulag meistaramótsins var eins og áður höggleikur
með og án forgjafar og var keppt í þremur flokkum, í yngri
flokki karla með forgjöf, í flokki karla 55 ára og eldri með for-
gjöf og svo í opnum flokki án forgjafar. Þar að auki voru í þetta
skiptið veitt verðlaun fyrir að vera næstur holu eftir eitt högg á
tveimur par 3 brautum, annars vegar á þriðju braut og hins
vegar á þeirri átjándu. Sá merki atburður átti sér stað að tveir
keppendur voru nákvæmlega jafn langt frá holu á þriðju braut,
þeir nafnarnir Guðmundur Frímannsson og Guðmundur Friðrik
Sigurðsson. Þeir léku ekki í sama ráshópi og áttu báðir eftir
6,18m að holu. Hins vegar var Guðmundur Frímannsson næst-
ur holu á þeirri átjándu, 5,11m frá holu.
Keppnin í höggleiknum var líka jöfn og spennandi en helstu
úrslit voru eftirfarandi:
Höggleikur karla (yngri flokkur) með forgjöf (5 þátttakendur)
1. Kristófer Ómarsson 73 högg nettó
2. Auðunn Guðjónsson 76 högg nettó
3. Sveinbjörn Sveinbjörnsson 76 högg nettó
Höggleikur karla (eldri flokkur) með forgjöf (8 þátttakendur)
1. Guðmundur Friðrik Sigurðsson 74 högg nettó
2. Rögnvaldur Dofri Pétursson 79 högg nettó
3. Guðmundur Frímannsson 79 högg nettó
Höggleikur án forgjafar (opinn flokkur)
1. Kristófer Ómarsson 83 högg
2. Rögnvaldur Dofri Pétursson 90 högg
3. Guðmundur Friðrik Sigurðsson 90 högg
Keppandi með lægsta
skor með forgjöf fékk
farandbikar. Þetta árið
var það Kristófer og er
hann því Golfmeistari
FLE árið 2016. Auk
þess voru veitt glæsileg
verðlaun sem gefin
voru af Hótel Selfossi
og aukaverðlaun frá
FLE. Úrslit voru til -
kynnt, verðlaun afhent
og Golfmeistari FLE
útnefndur á Gleðistund
FLE sem haldin var síð-
degis þann sama dag
og meistaramótið fór
fram og mættu þátttak-
endur þangað útiteknir
og sælir eftir skemmti-
legan dag í góðum
félagsskap.
Umsjónarmenn þakka þeim sem þátt tóku og vonast til að
áfram verði með einum eða öðrum hætti staðið að mótahaldi
innan stéttarinnar og að kylfingar úr röðum endurskoðenda af
báðum kynjum taki þátt. Starfsmönnum vallarins eru jafnframt
þakkaðar góðar móttökur og Hótel Selfoss fyrir veglegan
stuðning.
Auðunn Guðjónsson
Kristófer Ómarsson
golFannáll endurskoðenda
sumarið 2016
Auðunn Guðjónsson er endurskoðandi hjá KPMG