FLE blaðið - 01.01.2021, Side 12
12 FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2021
FRÁSÖGNIN
Eins og lesa má út úr umfjölluninni hér að framan er verðmæti
félaga í dag í auknum mæli falið í eignum sem ekki er skýrt frá
í hefðbundnum ársreikningum og skortur er á að þær upplýs-
ingar séu settar fram með samræmdum hætti. Þessar óefnis-
legu eignir eru t.d. vörumerki, nýsköpun, þekking og reynsla
starfsfólks auk áhrifa á samfélagið og umhverfið. Mikilvægi
þessara upplýsinga og vönduð frásögn þeirra er óumdeilt en
áskoranir við samræma framsetningu eru miklar.
Það er erfitt að vita hvar á að byrja þegar fjalla á um þá staðla
og leiðbeiningar sem til eru um framsetningu á ófjárhagslegum
upplýsingum. Ekki bara vegna þess að fjöldi reglna, staðla og
leiðbeininga eru á milli 700 og 800 talsins heldur líka vegna
þess að nánast á hverjum degi berast fréttir af nýrri þróun mála
í þessum efnum og frá því að þessi grein er skrifuð þar til hún
verður birt mun verða ný þróun! Breytingarnar eru svo hraðar
að það er nánast ógerningur að fylgjast með þeim. Stjórnendur
sem vilja gera vel í frásögn sinni út á markaðinn vita varla í
hvorn fótinn þeir eiga að stíga, um svo margar aðferðir og
blöndun aðferða er að ræða að erfitt getur reynst að fóta sig.
Sumir velja sér einn staðal og halda sig við hann á meðan
aðrir velja nokkra og taka það sem þykir henta í hverju tilviki.
Við þetta ástand er nánast ógerningur fyrir notendur að bera
saman upplýsingar á milli félaga og því gríðarlega mikilvægt
WORLD ECONOMIC FORUM
Stöðugt er kallað eftir samræmingu í framsetningu ófjárhagslegra upplýsinga af hálfu
hagsmunaaðila og í ágúst 2019 var hleypt af stokkunum verkefni á vegum World
Economic Forum´s International Business Council (WEB-IBC) til að vinna að því mark-
miði. Hópurinn samanstóð af yfir 120 framkvæmdastjórum frá öllum heiminum, var stýrt
af Bank of America og samstarf var einnig við fjögur stærstu endurskoðunarfyrirtækin.
Þannig þótti tryggt að nægjanlega margir kæmu að verkefninu svo það næði framgöngu.
Markmið samstarfsins var að greina samræmda þætti til að hjálpa fyrirtækjum að skýra
frá aðgerðum sínum í átt til sjálfbærni og langtímavirði. Ekki var um það að ræða að
skrifaður yrði nýr staðall heldur tekið saman það besta af því sem til var á þeim tíma í
þeim stöðlum sem til voru. Þótti verkefnið marka kaflaskil í átt að samræmdum reglum
til upplýsingagjafar fyrirtækja til hagsmunaaðila.
Drögin að afurðinni sem lágu fyrir í janúar 2020 fóru síðan í ítarlegan rýniferil, þar sem
meira en helmingur af meðlimum hópsins veittu endurgjöf og einnig komu athugasemd-
ir frá öðrum fyrirtækjum, fjárfestum, staðlaráðum, yfirvöldum ýmsum og fleirum þ.a.
verkefnið fékk mjög yfirgripsmikla rýni og athygli. Í september s.l. leit síðan afurðin,
UN Sustainable
development goals
Sustainability Accounting
Standards Board (SASB)
Global Reporting
Initiative (GRI)
Climate Disclosure
Standards Board (CDSB)
Future Fit Benchmark FTSE ESG Rating Model
European Federation
of Financial Analysts
Societies (EFFAS)
Social and Human
Capital Protocol
Task Force on Climate-
Related Financial
Disclosures (TCFD)
Principles of Responsible
Investment (PRI)
Measurement
Framework for Equality
and Human Rights
Investor research on
social issues (LGT
Capital Partners)
Óefnislegar eignir
Hvorki mældar
né skýrt frá þeim
Bókfært virði
óefnislegra eigna
Bókfært virði
efnislegra eigna
Óefnislegar eignir
Hvorki mældar
né skýrt frá þeim
Óefnislegar eignir
áreiðanlega mældar
og skýrt frá
Bókfært virði
óefnislegra eigna
Bókfært virði
efnislegra eigna
Markaðsvirði
Hefðbundin
sjónarmið
Sjónarmið um
langtímavirði
að við færumst í átt til samræmingar. Gjarnan er vitnað til allra
þessar staðla sem stafrófs súpunnar (e. alphabet soup). Það
eru þessi fimm stóru sem eru GRI, CDSB, CDP, IR og SASB
og síðan öll hin.