Harmonikublaðið - 15.12.2020, Side 2

Harmonikublaðið - 15.12.2020, Side 2
Komið þið sæl kæru félagar Starfsemi SIHU og harmonikufélaganna hefur verið með minnsta móti þetta árið. Fátt fréttnæmt hjá okkur en stjórn SIHU hefur haldið nokkra símafundi og svo erum við alltaf í tölvupóstsambandi. Allir við góða heilsu, er það ekki málið núna. Já margt fór öðru vísi en ætlað var á þessu herrans ári. Það átti að vera glæsilegt harmonikulandsmót í sumar í Stykkishólmi, FHUR var á lokametrunum við undirbúninginn þegar ákveðið var að blása mótið af vegna ástandsins í samfélaginu. Þannig fór einnig með aðrar skipulagðar samkomur félaganna. Menn hittust þó í smærri hópum, gerðu sér glaðan dag og létu nikkuna hljóma. Það er hið besta mál. Vonandi eru harmonikuleikararnir okkar duglegir að spila þó ekki sé mikið verið að hittast. Það er landsmót framundan og þar hafa harmonikufélögin alltaf mætt með fjölbreytta, skemmtilega og metnaðarfulla dagskrá. Eg skora á alla harmonikuunnendur að taka frá þessa daga sem fyrirhugað er að landsmótið standi og gera GJAFAKÖRFUR! Langar þig að gefa gott í kroppinn? Rjómabúið Erpsstaðir býður gjafakörfur með úrvaii afurða & úr framleiðslu sinni. körfurnar innihalda osta, skyrkonfekt, berjadrykk og ósamt ýmsu öðru góðgœti. Verð er frá 6.200.- til 9. Vinsamlega pantið timanlega i gegnum netfangió erpur a simnet.is eóa i sima 8680357 RJÓMABÚID ERPSSTAÐIR ráðstafanir með gistingu í tæka tíð, þeir sem þess þurfa. Munið landsmótið í Stykkishólmi 1.- 4. júlí 2021. Gaman er að sjá harmonikuleikara nota netmiðlana eins og t.d. fésbókina. Þar eru nokkrir að setja inn lög sem þeir eru að spila eða eldri upptökur. Kann ég þeim öllum mínar bestu þakkir fyrir, ég hef notið þess að horfa og hlusta og deili svo endalaust áfram svo aðrir geti hlustað líka. Gerið endilega meira af þessu. Senn er árið 2020 á enda, þetta skrítna og ógleymanlega ár. Eg er farin að hlakka til næsta árs, ef við gætum nú farið að hittast svona með vordögum. Haldið glæsilegt landsmót og fleiri skemmtanir, notið tónlistar og dansleikja í okkar góða félagsskap. Við horfum bjartsýn fram á veginn, vonandi tekst vel til við að kveða niður Covid óværuna þannig að létt verði á samkomutakmörkunum og lífið færist í eðlilegt horf. En þangað til þá eiga þessi vísukorn Hákons Aðalsteinssonar frá Vaðbrekku vel við: Nú skal róa Nú skal beita í nœðinginn nú skal rétta bakið. Nú skal róa nafni minn, nú skal herða takið. Brdtt mun reiddur brandurinn, brátt munfrestur runninn. Brátt munfalla brotsjórinn, brátt mun sigur unninn. Nú styttist í að jólahátíðin gangi í garð og glittir í nýtt ár handan við hornið. Eg vil þakka öllum samstarfsmönnum mínum í stjórn sambandsins, formönnum aðildarfélaganna, svo og öllum harmoniku- unnendum fyrir frábært samstarf á árinu 2020 og er það von mín að árið 2021 verði okkur öllum gjöfult, gæfuríkt og gott harmonikuár. Oska ykkur öllum gleðilegrar jólahátíðar og farsæls komandi árs. Gleðileg jól! Filippía Sigurjónsdóttir, formaður SIHU Harmonikusafn Ásgeirs S. Sigurðssonar býður öldruðum harmonikum farsælt ævikvöld á Byggðasafni Vestfjarða. Sími 456 3291 - byggdasafn@isafjordur.is - www.nedsti.is Vfiifi 2

x

Harmonikublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.