Harmonikublaðið - 15.12.2020, Blaðsíða 6
Austur á Egilsstöðum býr einn af máttarstólpum harmonikugeirans á
Héraði. Hann hefur leikið á skemmtunum Harmonikufélags
Héraðsbúa frá stofnun þess og þykir hans sæti vel skipað, var fulltrúi
félagsins á aðalfúndum Sambands íslenskra harmonikuunnenda,
kjörinn formaður sambandsins árið 2005 og sat tvö kjörtímabil til
2011. Tillögugóður formaður í hvívetna og rómaður gleðimaður á
góðri stund. Þetta er Jónas Þór Jóhannsson. Ritstjórinn tókjónas Þór
tali á óhefðbundinn hátt síðastliðið sumar.
Þá voru dansleikir í Eiðaskóla
nánast um hverja helgi
Hvax og hvenær er Jónas Þór fæddur?
Ég er fæddur 11. júlí árið 1949 í því sem þá
var kallað sjúkraskýlið á Egilsstöðum en ólst
upp á Breiðavaði í Eiðaþinghá ásamt þremur
yngri bræðrum mínum. Foreldrar okkar voru
Jóhann Magnússon og Guðlaug Þórhallsdóttir
bændur á Breiðavaði.
Var mikið um tónlist á æskuheimilinu?
Já. Foreldrar mínir sungu í kirkjukór og faðir
minn í karlakórum. Móðir mín spilaði á orgel
og bróðir hennar Borgþór Þórhallsson þótti
liðtækur harmonikuleikari en hann var fluttur
til Reykjavíkur þegar ég man eftir.
Lærðir þú á hljóðfæri?
Nei það get ég varla sagt en auðvitað reyndi
ég að taka eftir því hvernig þeir sem spiluðu á
þeim tíma báru sig að og reyndi að tileinka mér
það eftir því sem ég gat. Rétt er að geta þess að
þeir sem spiluðu á þessum tímum voru aðallega
harmonikuleikarar og líklega má segja að þeir
hafi verið bítlar þesss tíma.
Danskennsla hjá Rigmor Hansen
Lærðir þú að dansa?
Reyndar sótti ég danstíma þegar ég var í
Alþýðuskólanum á Eiðum. Danskennari okkar
hét Rigmor Hansen og var hún mjög fær að
því mér fannst en því miður held ég að mér
hafi ekki tekist að ná þeirri færni í dansi sem
hún ætlaðist til af mér og það þykir mér miður
því að dans er ákaflega góð skemmtun en eins
og hér kemur fram eru hæfileikar mínir litlir á
því sviði.
Hverjar voru helstu skemmtanir á Héraði?
Það voru haldnar skemmtanir innan sveitar
enda fleira fólk í sveitum landsins á þeim tíma.
Síðan voru haldar stórar skemmtanir á vegum
stjórnmálaflokka og ekki má heldur gleyma
skemmtunum sem Ungmennasamband
Alda og Jónas Þór d góðri stund
Austurlands (UIA) stóð fýrir en það voru líklega
einar stærstu útihátíðir landsins á þeim tíma.
Voru margir harmonikuleikarar á Héraði?
Ég held að héraðið og nærsveitir hafi bara
staðið sig nokkuð vel hvað fjölda harmoniku-
leikara varðar enda töluvert mikið um dansleiki
á Héraði og harmonikan aðal hljóðfærið á
fyrstu skemmtunum sem ég man eftir enda
horfði maður á þessa snillinga með von um að
geta einhvern tíma orðið jafn góður og vinsæll
en svo kom rokkið og þá fór að halla undan
fæti hjá harmonikuleikurum þar sem
harmonikan þótti ekki henta í þeirri músík.
Var mikið um hljóðfæri almennt á Héraði?
Held að það hafi verið talsvert um hljóðfæraeign
eins og orgel, píanó og harmonikur og ef til
vill eitthvað fleira.
Byrjaði á Eiðum
Hvenær byrjaði þinn hljómsveitarferill?
Hann hófst þegar ég fór í Alþýðuskólann á
Eiðum en fram að þeim tíma hafði ég eingöngu
spilað á harmoniku en þegar þarna var komið
var einfaldlega komin tónlist sem hentaði ekki
harmonikunni nema að litlu leyti þannig að
ég fór að spila á gítar eins og reyndar margir
aðrir gerðu á Eiðum. Sú tónlist sem þá var að
yfirtaka dansleikjamarkaðinn var ekki sérlega
harmonikuvæn en gítarleikaraferill minn varð
ekki mjög langur þar sem að hljómborðin og
rafmagnsorgelin þóttu nauðsyn í flestum
hljómsveitum og það litla sem ég kunni á
harmoniku var ágætis undirstaða undir
hljómborðsleik.
Var fjörugt tónlistarlíf fyrir austan á þínum
sokkabandsárum?
Það voru dansleikir í Eiðaskóla nánast um
hverja helgi og margir tónlistarmenn stigu þar
sín fyrstu spor í spilamennskunni. Þekktastir
þeirra allra eru sjálfsagt Magni Ásgeirsson,
Jónas Sigurðsson og AgústÁrmann Þorláksson.
Síðan má nefna Friðjón Jóhannsson og Jón
Arngrímsson sem hafa haldið úti danshljóm-
sveitum nánast alla sína æfi og eru enn að.
Auðvitað mætti nefna marga aðra sem hafa
verið áberandi af þeim sem þarna voru en það
væru mörg nöfn og talsvert mikil hætta á að
maður gleymdi einhverjum og það væri alls
ekki gott.