Stúdentablað Siglufjarðar - 01.12.1942, Side 8
6
STÚDENTABLAÐ
7 millj. króna í erlendum gjald-
eyri, 1937 tæpum 14 millj., en það
ár var flutt út fyrir alls 59 millj.
króna. Af erlendum gjaldeyri það
árið hafa því 24% komið fyrir út-
flutt mjöl og lýsi.
1 þessum iðnaði hafa orðið
miklar framfarir hér á landi síð-
asta áratuginn. Af nýjungum, sem
teknar voru upp á þessum tíma
og nú eru í öllum verksmiðjun-
um, má nefna skilvindurnar og sí-
urnar. Má heita, að á hverju ári
komi nýjungar, sem mikil fram-
för er að.
Til nýjungar má og telja það,
að komið hefir verið á mjög full-
komnu eftirliti efnafræðinga með
framleiðslunni. Þegar síldarverk-
smiðja ríkisins tók til sarfa árið
1930 var forstjóri Efnarann-
sóknastofu ríkisins ráðinn til þess
að hafa með höndum efnarann-
sóknir fyrir verksmiðjuna og
eftirlit með rekstrinum. Hafði
hann þetta starf fyrir verksmiðj-
urnar í 8 ár eða þar til Atvinnu-
deild Háskólans var stofnuð 1937
og hann tók við forstöðu þar.
Með starfi sínu hjá Síldarverk-
smiðjum ríkisins lagði hann grund-
völlinn að því rannsókna- og eftir-
litsstarfi, sem nú er talið nauð-
synlegt, að lærðir efnafræðingar
hafi í síldarverksmiðjunum. Er
skylt að geta þess, að forráða-
menn Síldarverksmiðja ríkisins
hafa alltaf sýnt fyllsta skilning á
þessum málum. Var þegar í upp-
hafi sett á stofn rannsóknarstofa
fyrir verksmiðjurnar, og hefir hún
nú síðustu árin verið útbúin öllum
nýtízku og fullkomnustu tækjum
til þeirra rannsókna, sem þessi
iðnaður þarfnast.
Að þessum rannsóknum störf-
uðu s. 1. sumar 2 efnafræðingar á
Siglufirði og 1 á Raufarhöfn, auk
aðstoðarfólks. Síldarverksmiðjur
ríkisins höfðu því 3 efnafræðinga
í sinni þjónustu á s. 1. sumri.
Aðrar verksmiðjur hafa svipað
eftirlit og rannsóknir fyrir rekst-
urinn og eru 2 þeirra nú að koma
sér upp vel útbúnum rannsóknar-
stofum. Hefir ungur og mjög dug-
legur efnafræðingur þegar verið
fastráðinn hjá annarri þessara
verksmiðja, verksmiðju h.f. Kveld-
úlfs á Hjalteyri. Er gleðilegt til
þess að vita, að forráðamenn
verksmiðjanna sýna þessum mál-
um slíkan skilning. Síldariðnaður
vor er enn ungur, en hann hefur
þegar komið á hjá sér rannsókna-
starfi, sem mikils má vænta sér
af í framtíðinni.
Afurðir síldarverksmiðjanna
hafa á síðustu árum selst vel.
Hefur verð á mjöli og lýsi farið
hækkandi síðustu 10 árin. Skiln-
ingur manna á gildi síldarmjöls-
ins til fóðurs hefur farið mjög
vaxandi á síðustu árum. Síðan
stríðið brauzt út og gömlu mark-
aðirnir lokuðust, hefur verið
nokkur tregða á sölu síldarmjöls
á erlendum markaði, en sú tregða
mun eingöngu stafa af því, að
síldarmjölið hefir verið mjög
lítið þekkt á þeim mörkuðum, er
nú er um að ræða.
Þegar hægt verður að koma
mjöli aftur til meginlandsins, mun
verða mikil eftirspurn eftir því
þar, sérstaklega í Þýzkalandi,
Hollandi og Belgíu, þar sem það
er velþekkt vara. Gildi síldarmjöls
ins liggur í því, að það er auðugt
af eggjahvítuefnum, kalki og fos-
fór, sem allt eru sérstaklega mik-
ilvæg næringarefni. 1 íslenzku síld-
armjöli eru að jafnaði 68 70%
eggjahvítuefni og 10% kalk og
fosfór.
Síldarlýsið mun mestmegnis
vera notað í smjörlíki og aðra
fitu, sem notuð er til manneldis
(edible fats), eftir að það hefur
verið hreinsað og hert. íslenzkt
síldarlýsi er vel til hreinsunar og
herzlu fallið, því að joðtala þess
er tiltölulega lág, en því lægri,
sem joðtalan er, því minna þarf
að herða. Það kemur og nú orðið
hreint og sýrulítið á markaðinn.
Framleiðsla allskonar lýsisteg-
unda hefur aukizt stórlega síðustu
áratugina, og er vöxturinn í síld-
ariðnaði vorum því ekkert sér-
stakur. Eftirspurn eftir lýsinu
hefur jafnframt vaxið ört. Stendur
þannig á því, að lýsið er ódýr fita,
t. d. að jafnaði mun ódýrari en
flestar tegundir jurtaolía, og skil-
yrðin til að nota það hafa stórum
batnað á síðustu árum. Þau skil-
yrði skapast eftir því sem tækn-
inni fleygir fram. Þegar, nokkrum
árum fyrir stríð, mun íslenzkt
síldarlýsi hafa verið notað nokkuð
í stað jurtaolía í málningu.
I Canada hafa farið fram mjög
víðtækar rannsóknir á allskonar
lýsi og skilyrðunum til að nota
það. Hafa niðurstöður þeirra
rannsókna birzt í myndarlegu riti,
sem út kom s. 1. ár. Bandaríkja-
menn hafa einnig unnið kappsam-
lega að þessum rannsóknum.
Nýlega birtu þeir niðurstöður
rannsókna, sem þeir hafa gert á
að nota lýsi í málningu, lökk og
fernisa og eru þær niðurstöður
hinar athyglisverðustu. Þær eru,
í fáum orðum sagt, á þá leið að
vinna megi úr lýsi fitu, sem lítið
eða ekkert stendur að baki þeim
jurtaolíum, sem beztar þykja í
málningu, lökk og fernisa. Lýsið
er fyrst klofið í fitusýrur og glyc-
erína, fitusýrurnar destiller-
aðar og aðgreindar, eftir því hve
„þornandi" (drying) fita þessi á
að vera. Hinar eftirsóttu jurtaol-
íur eru einmitt „þornandi“. Mun
nú þegar framleitt mikið af slík-
um olíum úr lýsi í Bandaríkjunum.
Aðra aðferð hafa Bandaríkja-
menn einnig fundið upp til að gera
lýsið nothæft í málningu o. þ. h.
Byggist hún á svonefndri hávaku-
um destillation, sem mjög hefir
rutt sér til rúms við margskonar
rannsóknir. En ekki er kunnugt
um, hvort þessi nýjung hefir orðið
mikla praktiska þýðingu.
Línur þessar bera yfirskriftina,
Siglufjörður og síldin. Öllum mun
ljóst, hvaða þýðingu Siglufjörður
hefur fyrir síldarútveginn og gagn