Stúdentablað Siglufjarðar - 01.12.1942, Síða 14
12
STÚDENTABLAÐ
nota þau orð ekki í slæmri merk-
ingu hér, því að við hvílumst dá-
samlega eftir veturinn. Sólskin var
allan tímann, og fólkið dásamlega
vingjamlegt, eins og allir Amerík-
anar, sem eg hef kynnzt.
Þrjá seinustu dagana vorum við
í kofa, sem Mr. Ingham á uppi í
fjöllum, í 8000 feta hæð. Það er
í miðjum greniskógi, afar fögrum
að mér þótti, fjarri öllum manna-
byggðum, nema hvað sumardval-
arstaður, mikið sóttur, er 6 eða 7
mílur þaðan. En vegur frá þeim
stað upp að kofanum er svo illfær,
að maður veit varla af mann-
fjöldanum þar niður frá. Upp að
þessum stað, sem nefnist Big Beer
Lake liggur bílvegur, dásamlegt
verk, sem bugðast upp snarbratta
fjallshlíðina, og er svo auðveldur,
að manni finnst varla nokkur
brekka, þó að hæðarmerkin við
veginn sýni með skömmu millibili
5000, 6000, 7000, 8000 fet. Eg verð
stundum reiður, þó að eg geti ekki
fundið neitt til að réttlæta þá reiði,
þegar eg hugsa um hve þetta
land er ríkt, samanborið við okk-
ar. Þeir hafa vegi um allt, brýr
um allt, skóla, söfn, allt. Þeir
byggja brýr upp á 70—80 milljón
dollara, meðan við erum að stríða
árum saman við að koma upp
lífsnauðsynlegum vegi, sem kostar
nokkur hundruð þúsund krónur.
Eg vcit vel, að við erum alveg
eins vel settir og þetta land að
mörgu leyti og betur að sumu, en
eg get ekki að því gert, að mér
finnst að okkur vanti ekkert
annað en peningana, til þess að
verða farsælasta land í heimi. Við
erum í fyrstu röð menningarlega,
þrátt fyrir fátækt, svo hvað gæt-
um við ekki gert, ef við hefðum
peningana ? Að vísu erum við illa
settir, rétt sem stendur, en þetta
stríð stendur • ekki að eilífu, og
þegar því lýkur, verðum við bet-
ur settir en flestir aðrir, ef að-
staða okkor ekki versnar“.
,,.... Við skoðuðum skólann,
sem þessi piltur gekk á, áður en
hann fór í háskóla. Eg man ekki
hvort eg hef sagt þér það, að
menntaskólarnir heima samsvara
bæði amerískum ,,highschools“
svonefndum (sem búa undir coll-
ege eða háskóla) og líka tveim
fyrstu árum í amerískum háskóla.
Þessi skóli var highschool, eða
samsvarandi fjórum fyrstu bekkj-
unum heima.
Við komum þar tvisvar og
vorum kynntir öllum kennurunum,
en stönzuðum of stutt til að eg
gæti verulega kynnzt nokkru. Af
því litla, sem eg sá, fannst mér
gleggstur munur á þessum skólum
og okkar sá, að samband kennara
og nemanda var meira familiært hér
og svo auðvitað það, hvað miklu
meiri áherzla er lögð á íþróttir
hér, þar sem hinir ýmsu kennarar
auk þess að kenna sín eigin fög,
kenndu sína íþróttina hver.
En trú mín, byggð að vísu á
mjög lítilli athugun og reynslu, er
sú, að í skólamálum sem öðru
stöndum við Ameríkönum ekki að
baki í neinu nema því, sem fjár-
magn og þjóðarauðæfi geta keypt.
Eg get ekki stillt mig um að
öfunda Ameríkana af auði þeirra.
Ef við hefðum samsvarandi fjár-
magn, værum við bezta og ham-
ingjusamasta land í heimi, því að
smæð landsins og fámenni, fjar-
vera hers og flota, frelsi frá þjóð-
ernis- eða kynflokkahatri, tiltölu-
lega lítill mismunur á kringum-
stæðum hárra og lágra, gefa okk-
ur skilyrði til að skapa fyrir-
myndar þjóðfélag. Eg trúi ekki á
Rutherford, en eg held að þarna sé
okkar mikla framtíð, að allar
kringumstæður hjálpast að til að
gera Island fyrirmyndarland fram-
tíðarinnar ....“
ÞVOTTAVINDUR
nýkonmar.
Einar Jóhannssnn & Co.
LEIR-
VÖRUR
seldar með miklum afslætti
til jóla.
HENTUGAR
JÓLAGJAFIR
Verzlun
Jónínu Tómasdóttur.
Fjölbreytt úrval af allskonar
skófatnaði.
Komið sem fyrst til mín, þá
sparið þér hlaup oy gerið
góð kaup.
Andrjes Hafliðason
Skóverzlun.
N ý k o m i ð :
Leðurskrifmöppur
og margt fleira
heppilegt til
jólagjafa.
Verzlun
Jónínu Tómasdóttur.
Nýkomið:
HANDLAÚGAR og
VATNSSALERNI
Verzlun
Egils Steíánssonar.