Foreldrablaðið - 15.12.1942, Síða 12
12
FORELDRABLAÐIÐ
III. Aðalhlutverk æfinga í þessum
flokki er samstilling taugakerfis
á hreyfingunum:
1. Jafnvægisæfingar.
IV. Þessar æfingar hafa sérstaklega
þann tilgang að þroska afl, þol
og einoeitni:
1. Gangur.
2. Hlaup.
3. Stökk.
4. Fimleikar á dýnu.
5. Leikar og íþróttir.
Af því, sem nú hefur verið skráð, má
sjá, að leikfimi er ekki iðkuð út í blá-
inn, heldur til að auka afl, hreysti, lík-
amsfegurð, heilbrigði, þroska og vinna
gegn þeim vondu líkamlegu áhrifum,
sem af einhliða starfi leiðir, eins og t.
d. langri setu á skólabekkjum og skrif-
stofuvinnu.
Með hinum nýju íþróttalögum, sem
gengu í gildi 1940, hefur verið stigið
stórt spor, sem miðar í áttina til fram-
fara æskulýðsins í líkamsrækt. Leik-
fimi hefur með þessum lögum, verið
gerð að skyldunámsgrein í barnaskól-
um. Börn 11 ára og eldri eiga að taka
próf í henni eins og öðrum námsgrein-
um. Leikfimieinkunnin reiknast með til
aðaleinkunnar sem einkunnir í öðrum
skyldufögum skólanna. Unga fólkið um
land allt fagnar þessari nýskipan ríkis-
ins. Æskan hér á Akranesi hefur ótví-
rætt sýnt það, að hún gleðst yfir þeirri
guðlegu gjöf, sér til handa, sem ríki og
bær veitir henni með hinu nýbyggða
fimleikahúsi. — Börnin biðu með ó-
þreyju eftir því, að húsið tæki til starfa.
Og nú, þegar leikfimikennslan er byrj-
uð, virðist, eftir litlu andlitunum að
dæma, að þau séu mjög ánægð með að>
verða þeirrar hamingju aðnjótandi að
íá að iðka leikfimi. Þó hafa sum, ef til
vill mörg þeirra, orðið fyrir vonbrigð-
um fyrst í stað, hvað leikfimi og leik-
fimikennslu snertir. Strax hafa þau
mátt beygja sig undir hinn stranga og.
skilyrðislausa aga, sem leikfimináminu
fylgir.
Enn sem komið er þarf ekki að kvarta
undan því, að þau hafi „röflað“ eða
viljandi brotið þau lög, er sett hafa ver-
ið. Og sannarlega hefur það verið gleði-
legt, hve fljótt þau hafa skilið agann
sem blákalda nauðsyn þess, að allt fari
fram í röð og reglu í kennslustundinni.
Að vísu hefur sumt verið háð ýmsum
byrjunarörðugleikum, eins og t. d. ýms-
um misgripum barnanna í búningsher-
bergjunum. —En þessi mistök eru nú
sem óðast að hverfa, eftir því sem börn-
in læra að ganga vel og snyrtilega frá
fatnaði sínum, og hafa hann á einum
og vissum stað. Eitt vildi ég minna
mæður vinsamlega á, og það er að hafa
leikfimifatnað barnanna vel merktan.
— Það eitt fyrir sig, að fötin séu vel
og greinilega merkt, kemur að mestu
leyti í veg fyrir að ruglingur og reiði-
leysi geti átt sér stað í búningsherbergj-
um. — Oft er það t. d. ekki gott fyrir
drengina, þar sem þeir eiga allir sam-
litar leikfimibuxur, að þekkja hvað
hver á, þegar fangamarkið vantar. —
Allt þarf að vera merkt, handklæðin og
hvað annað, sem börnin þurfa að nota
við leikíiminám.
í þetta skipti verður því ekki komið
við að lýsa leikfimikennslunni, hvernig
hún fer fram og hvernig henni er hag-
að. — Það væri efni í aðra grein og
fyllilegá það. — Eins og gefur að skilja