Jökull - 01.01.2017, Page 57
Snævarr Guðmundsson og Helgi Björnsson
1. mynd/Figure 1. Suðausturland og Vatnajökull. Stjörnur vísa á myndatökustaði sem koma við sögu. – A
map showing the southeastern Vatnajökull ice cap. Stars indicate where the photographs below were taken.
Heimildir/References. Landmælingar Íslands.
ingana Sigurð Þórarinsson (1912–1983) og Steinþór
Sigurðsson (1904–1947) auk Helga Arasonar (1893–
1972) frá Fagurhólsmýri og Flosa Björnssonar (1906–
1993) á Kvískerjum í Öræfasveit.
Elstu myndirnar sem við beinum athygli að í þetta
sinn tóku danskir landmælingamenn um 1904. Þá
stóð danska herforingjaráðið að kortlagningu Íslands.
Árin 1903 og 1904 var Austur-Skaftafellssýsla mæld
(Ágúst Böðvarsson, 1996). Mælingamönnum til að-
stoðar var þjóð- og fornleifafræðingurinn Daniel Bru-
un (1856–1931) sem ferðaðist mikið um Ísland á
fyrstu árum 20. aldar. Hann ritaði nokkrar bækur um
land og þjóð og skildi eftir sig safn mynda og teikn-
inga, m.a. frá Vatnajökli norðan- og sunnanverðum.
Þegar landmælingarnar fóru fram voru jöklar eilít-
ið teknir að hopa, eftir að hafa náð hámarksútbreiðslu
um 1880–1890, á sögulegum tíma. Það árabil mark-
ar lok tímaskeiðs sem gjarnan er nefnt litla ísöldin
og hafði þá staðið yfir í nokkrar aldir. Á því skeiði
var loftslag kaldara en nú er, hafís tíður við strend-
ur landsins og jöklar döfnuðu og stækkuðu. Á 16. til
19. öld gengu jöklar fram dali og niður á láglendi. Í
Austur-Skaftafellssýslu höfðu þeir mikil áhrif á lífs-
viðurværi fólks. Jökulhlaup féllu frá inniluktum döl-
um, þar sem lón höfðu safnast upp, sumstaðar árlega
og jökulkvíslar frá skriðjökulstungum flæmdust yfir
sléttlendi og spilltu ræktarlöndum. Sú varð raunin
fram á 20. öld (Helgi Björnsson, 2009). Eftir 1890
stóðu jöklar í stað eða tóku að hopa. Kort danska her-
foringjaráðsins sýna því jökla einungis 15–20 árum
eftir að þeir höfðu náð hámarksstærð.
Aðrar myndir sem koma hér við sögu voru tekn-
ar á fjórða áratug 20. aldar, af Sigurði Þórarins-
syni, Helga Arasyni og frá loftskipinu Graf Zeppel-
in. Myndir þeirra sýna stöðu jöklanna á tímabili þar
52 JÖKULL No. 67, 2017