Jökull - 01.01.2017, Side 63
Snævarr Guðmundsson og Helgi Björnsson
6. mynd/Figure 6. Ofar: Fláajökull árið 1935, séð frá Hólmi á Mýrum. Merkifell (Jökulfell) er hér fyrir miðri
mynd. Neðar: Sama sjónarhorn, 17. janúar 2018. Rauðar línur sýna hvar jökuljaðarinn var þegar Sigurður tók
sína mynd. – Fláajökull glacier outlet in 1935. The glacier capped hill in the centre, is Merkifell (Jökulfell).
Below: Same angle 17 January 2018. Red lines depict the lateral margins in 1935. Ljósm./Photos. Sigurður
Þórarinsson, 10. ágúst 1935; Snævarr Guðmundsson, 17. janúar 2018.
Þegar Bruun fór yfir Breiðamerkursand ásamt
mælingamönnum herforingjaráðsins, var Breiðamerk-
urjökull farin að hopa en vart meira en 0,15–0,3 km.
Á ljósmynd frá 2017 (8. mynd), sýnir rauð lína hæð
jökulsins á fyrstu árum 20. aldar. Línan er dregin eft-
ir yfirborði ljósmyndar og teikningar Bruuns og land-
líkani (DEM) af Breiðamerkurjökli frá þessum tíma
(Guðmundsson o.fl., 2017). Frá Reynivöllum séð mun
yfirborð Breiðamerkurjökuls hafa borið yfir Breiða-
merkurfjall. Þar sem yfirborðið ber við Öræfajökul of-
an Breiðamerkurfjalls (Rákartind), mun hæð þess hafa
verið í um 350 m y.s. Á yfirlitsmynd af svæðinu (9.
mynd) eru jaðrar Breiðamerkurjökuls dregnir upp þau
ár sem koma hér við sögu eða nálægt þeim tíma, þegar
jökullinn var í hámarksstöðu (1890), landmælingaárið
1904, um 1930 eftir mynd Zeppelin (10. mynd), 1945
eftir loftmyndum AMS og að síðustu haustið 2017.
Bláa brotalínan sýnir ágiskaða hæð jökulyfir-
borðsins árið 1932. Línan miðast við hvar Þor-
steinn Guðmundsson á Reynivöllum, sem mældi
sporðastöðu Breiðamerkurjökuls fyrir miðja 20. öld,
dró hæð jökulyfirborðsins og notaði þá Rákartind
í Breiðamerkurfjalli sem viðmið (Jón Eyþórsson,
1937). Árið 1932 hafði yfirborðið lækkað tæpa 50
m á sama stað (1,6 m/ár), þ.e. miðað við sjónlínu í
Rákartind og jökuljaðarinn jafnframt hopað 0,4–0,8
km. Brotalínan er dregin í viðmið Þorsteins og fram
að þeim stað sem jökuljaðarinn lá á það ár.
Árið 1936 (gul brotalína) hafði yfirborðið lækk-
að enn aðra 22 m (5,5 m/ár), samkvæmt viðmiði Þor-
steins á Reynivöllum, og jökullinn hopað aðra 400 m
(Jón Eyþórsson, 1937). Er það í kjölfar þess að lofts-
lag hlýnaði talsvert eftir 1930. Notuð var sama heim-
ild til þess að draga upp hæð yfirborðsins í sjónlínu
58 JÖKULL No. 67, 2017