Tölvuheimur - 01.08.2003, Síða 4

Tölvuheimur - 01.08.2003, Síða 4
R I T S T J Ó R A S P J A L L Það er gaman þegar gengur vel hjá Íslendingum í útlöndum. Í blaðinu er að þessu sinni rætt við nokkra ein- staklinga sem eru að gera það gott með hugbúnað á heimsvísu. Svo er á síðum blaðsins vitanlega að finna fasta liði og áhugavert efni um nýjustu tækni, eins og venjulega. ÁBERANDI Í NOREGI Einn þeirra sem verið hefur áberandi um nokkurra ára skeið er Jón Stephenson von Tetzchner hjá Opera Software. Hann ætlar að sigra heiminn með því að búa til Internetvafra sem öllum líkar við og hægt er að nota á öllum tækjum og tólum með hvaða stýrikerfi sem er. Opera á í samstarfi við risafyrirtæki um heim allan um þróun á vafratækni og hefur að sögn Jóns þegar tekist, fyrstu fyrirtækja, að koma Internetinu í farsíma svo vel fari. Litið er upp til Jóns og félaga í Noregi, en til marks um það er að hann var við annan mann frá Opera til- nefndur sem Netmaður áratugarins þar ytra. AÐ SLÁ Í GEGN Í BNA Minna hefur farið fyrir viðmælanda blaðsins sem prýðir Vaxtarbroddinn á blaðsíðu 58. Reyndar komst hann aðeins í fréttir fyrir u.þ.b. tveimur árum fyrir að vera með hugbúnað sem lofaði góðu og gefið hafði góða raun hér á landi. Fáa hefði grunað að einungis tveimur árum síðar væri hann fluttur úr landi með reksturinn og farinn að moka út rándýrum hugbúnaði í útlöndum. Þarna er á ferðinni Brynjar Karl Sigurðsson og fyrirtækið Sideline Sports. Fyrirtækið framleiðir hugbúnað fyrir þjálfara í hópíþróttum og virðist sem þar hafi verið þörf sem alveg átti eftir að uppfylla. Brynjar selur risastórum íþrótta- félögum og íþróttaliðum háskóla í Bandaríkjunum búnaðinn og telur allar líkur á að þeir félagar sem að fyrirtækinu standa verði margmilljónerar fyrir vikið. LANDAMÆRALAUS TÖLVULEIKUR Svo er líka í blaðinu að finna umfjöllun um íslenska hug- búnaðar- og tölvuleikjafyrirtækið CCP, en í vor hleypti fyrirtækið af stokkunum gagnvirka Internetleiknum Eve Online. Forráðamenn fyrirtækisins gera sér vonir um að fá hátt í hundrað þúsund áskrifendur að leiknum fyrsta árið frá útgáfu og eru í samstarfi við risastór útgáfu- og dreifingarfyrirtæki úti í hinum stóra heimi. Áræðni og frammistaða þessara viðmælenda blaðsins hlýtur að vera hvatning öllum sem starfa í hugbúnað- ariðnaði hér á landi. Svo virðist sem upplýsingatækni- samfélagið sé að skila frá sér fólki sem getur látið að sér kveða á heimsvísu svo eftir sé tekið. Hver veit hvað fram- tíðin ber í skauti sér varðandi íslenskt hugvit nái draum- ar ráðamanna um að hér ríki þekkingarþorp í hug- búnaðariðnaði að verða að veruleika. ÓVÆRUVARNIR OG FLOTTAR GRÆJUR Í Tölvuheimi er jafnframt að finna annað áhugavert efni frá systurútgáfunni vestan hafs. Við fjöllum um óværu- varnir og hvernig best er að bregðast við njósnabúnaði og öðrum smáforritum sem bíræfnir kaupahéðnar nota til að njósna um okkur. Þá fjöllum við um notendarýni sem finna má á Netinu og víðar og veltum fyrir okkur hvernig best er að nýta þannig fróðleik. Svo er að þessu sinni einnig að finna árvisst efni frá PC World en það er það sem þeir kalla World Class Awards. Þá velja sérfræðingar systurrits- ins vestra bestu tæki ársins. Við valið er haft í huga bæði notagildi, tækniframfarir og skapleg verðlagning. MUNUR Á VERÐLAGNINGU Lesendur Tölvuheims mega þó gæta sín á því að þó svo einhver græja sé á skaplegu verði í Bandaríkjunum getur hún verið rándýr hér. Vissulega er um tvö markaðssvæði að ræða og nokkuð aðrar aðstæður þar sem kaupendur eru fleiri og velta þar af leiðandi meiri. Þá segja mér tals- menn tölvufyrirtækja hér að 24,5 prósent virðisauka- skattur komi sem viðbót á verð í Bandaríkjunum og svo kosti nú sitt að flytja vöruna til landsins og liggja með dýran lager. Þessar skýringar eru góðra gjalda verðar, en virðast þó ekki nægja til að skýra hvernig prentari getur verið tvöfalt dýrari hér en ytra. Kannski er skýringanna að leita annars staðar. AÐAL 4 PISTILL RITSTJÓRA 5 NAPSTER RÍS UPP FRÁ DAUÐUM 5 STÓRAUKINN ÁHUGI Á OPERA 6 GLÆSILEG GAGNAGEYMSLA OG VINSÆLT NIÐURHAL 6 NORDUNET 2003 7 KYNJAMUNUR Á TÖLVUSNUÐRI 8 EVE ONLINE: SALA OG MARK- AÐSSETNING Í FULLUM GANGI 10 BESTU GRÆJUR ÁRSINS 2003 19 STEPHEN MANES TALAR UM STÍFLUGERÐ 20 TUNGUTÆKNI: ÍSLENSKA ER TÖLVUMÁL FRAMTÍÐAR 25 ÓVÆRUBANAR 31 FYRSTI GÓÐI SÍMAVAFRINN 34 FRUMKVÖÐLAR: MICHAEL DELL, FYRRI HLUTI 35 ÁLIT ALMENNINGS: ÚTTEKT Á GAGNRÝNI NOTENDA 39 SPEEDUPMYPC FRÁ LI UTILITIES 40 MAKKA-NEYÐARLÍNAN: ÓHÓFLEGA GÓÐAR FARTÖLVUR 43 MEÐ VAÐIÐ FYRIR NEÐAN SIG: NETSTJÓRINN FJALLAR UM ÖRYGGISAFRITUN 44 SVONA GERUM VIÐ: ALHLIÐA TÆKNIHJÁLP FYRIR TÖLVUNOT- ENDUR 54 NÝJUSTU TÖLVULEIKIRNIR: ENTER THE MATRIX, TOMB RAIDER, GTA VICE CITY OG HULK 58 VAXTARBRODDAR - SIDELINE SPORTS Óli Kristján Ármannsson - olikr@heimur.is NÆSTI TÖLVUHEIMUR KEMUR ÚT UM MIÐJAN SEPTEMBER Íslenskt hugvit að sigra heiminn  www.heimur.is4 Ágúst Tölvuheimur 2003 

x

Tölvuheimur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvuheimur
https://timarit.is/publication/1839

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.