Tölvuheimur - 01.08.2003, Blaðsíða 6
FORSÍÐAN
Hönnun: Hallgrímur Egilsson
Hugbúnaður: Photoshop 6.0 og
QuarkXPress 4.1
Útgefandi
í samvinnu við
RITSTJÓRN, AUGLÝSINGAR,
ÁSKRIFT
Borgartúni 23, 105 Reykjavík.
Sími 512 7575 – Fax 561 8646
Ritstjóri
Óli Kristján Ármannsson (ábm.)
olikr@heimur.is
Framkvæmdastjóri
Benedikt Jóhannesson
benedikt@heimur.is
Auglýsingastjóri
Vilhjálmur Kjartansson
villi@heimur.is
Áskriftar- og dreifingarstjóri
Guðrún Jóhannsdóttir
gudrun@heimur.is
Pennar
Jón Aðalsteinn Bergsveinsson
jonab@centrum.is
Kári Örlygsson
korlyx@hotmail.com
Kristinn Jón Arnarson
kidnon@hotmail.com
Sigurður Haraldsson
netstjori@guru.is
Snorri Gunnarsson
snogun@isl.is
Útlitshönnun
Hallgrímur Egilsson
halli@heimur.is
Ljósmyndari
Geir Ólafsson
geir@heimur.is
Prófarkalesari
Sveinn M. Árnason
sveinnma@heimur.is
Prentvinnsla
Gutenberg ehf
www.gutenberg.is
Tölvuheimur kemur út tíu sinnum á ári.
Eintaksverð í lausasölu er krónur 799 (m/vsk).
Hálfsársáskrift kostar krónur 3.280 (m/vsk) ef
greitt er með greiðslukorti, annars 3.645 (m/vsk).
© Tölvuheimur 2003
Efni Tölvuheims má ekki afrita með neinum
hætti, svo sem með ljósmyndun, prentun,
ljósritun, hljóðritun, eða á annan hátt, að hluta
eða í heild, án skriflegs leyfis útgefanda.
ISSN 1025-5516
Endanleg mynd er komin á dagskrá NORDUnet 2003
ráðstefnunnar og heimasíða hennar verið uppfærð til sam-
ræmis við það og útliti breytt. Senn líður að ráðstefnunni
sjálfri en hún verður haldin dagana 24. til 27. ágúst í Há-
skólabíói í Reykjavík. Ráðstefnan er sú 21 í röðinni, en þær
eru haldnar árlega, síðast í Kaupmannahöfn í apríl í fyrra.
MARGVÍSLEGUR ÁVINNINGUR AF
SAMSTARFINU
NORDUnet er samráðs- og samstarfsvettvangur rann-
sókna- og háskólaneta á Norðurlöndum. Í gegnum það
samstarf tengist Rannsókna- og háskólanet Íslands
(RHnet) stofnunum og og háskólum um heim allan.
RHnet var stofnað í byrjun árs 2001 en fyrir þann tíma
hafði Háskóli Íslands verið aðili að NORDUnet.
Jón Ingi Einarsson, framkvæmdastjóri RHnets og for-
maður skipulagsnefndar ráðstefnunnar, segir erfitt að
svara í fáum orðum hvert gildi slíks samstarfs sé fyrir
okkur. „Þetta er svona svipað og að spyrja hvert er gildi
menntunar. Mér finnst óvefengjanlega mikils virði fyrir
okkur sem eyþjóð að finna að aðrar þjóðir horfa jákvætt
til okkar og eru tilbúnar að teygja til okkar höndina um
samstarf á borð við þetta. Það er auðvitað mjög mikil-
vægt, bæði hvað varðar upplýsingastreymi og svo til að
viðhalda áhuganeistanum í vísindasamfélaginu hér,“ segir
hann og bætir við að svo sé raunar um fjárhagslegan
ávinning að ræða líka þar sem NORDUnet beri
meginþorra kostnaðar af millilandatengingu netsins. „Við
greiðum um eitt prósent af rekstrarkostnaði NORDUnet
A/S en af því við erum hér langt úti í hafi er raunkostn-
aður við tenginguna til okkar vitanlega töluvert hærri en
það sem við greiðum til samstarfsins,“ sagði hann.
Rannsókna- og háskólanet Íslands (RHnet) heldur
NORDUnet ráðstefnuna í samvinnu við ýmsa aðila jafnt
innanlands sem erlendis. Má þar nefna Háskóla Íslands,
Háskólann í Reykjavík, Kennaraháskólann, Nýherja,
EJS, NORDUnet A/S og TeliaSonora. Nánari upplýs-
ingar um Nordunet 2003 ráðstefnuna er að finna á slóð-
inni: www.nordunet2003.is.
www.heimur.is6 Ágúst Tölvuheimur 2003
F Y R S T O G F R E M S T
5 VINSÆLUSTU NIÐURHÖLIN
Bregðið ykkur til find.pcworld.com/36224 til að
finna eftirfarandi skrár.
1. CLEAN SYSTEM DIRECTORY 1.7 70 KB
Búnaður sem hjálpar til við að hreinsa burt aflóga
.dll skrár af harða drifinu.
2. SPYBOT SEARCH & DESTROY 1.2 3,5 MB
Verndið viðkvæmar persónuupplýsingar með því
að hafa upp á og eyða njósnabúnaði og setja í stað-
inn skaðlaus gerviforrit.
3. ZONEALARM 3.7.143 3,6 MB
Þessi fyrirmyndareldveggur er algjör nauðsyn til
að vernda ykkur fyrir óværu og hökkurum á Net-
inu, sérstaklega fyrir sítengda notendur.
4. WEBWASHER CLASSIC 3.3 1,1 MB
Verndið viðkvæmar skrár fyrir hættu sem að kann
að steðja hvort heldur sem er innan eða utan
staðarnetsins.
5. SPAMCATCHER 2.2 MB
Síið kæfuna úr tölvupóstinum með því að búa til
reglur sem bera kennsl á og stöðva rafrænan rusl-
póst.
SPENNANDI GRÆJUR
GLÆSILEG GAGNAGEYMSLA: FlashTrax heitir handhæg sambyggð gagnageymsla og spilari í einu tæki frá
framleiðandanum SmartDisk. Í tækinu er að finna 30 GB harðan disk, 3,5 tommu stóran kristalsskjá og rauf fyrir
CompactFlash minniskort. Tækið getur vistað og sýnt allar tegundir margmiðlunarskráa, þar með talið stafrænar
myndir, MP3 tónlistarskrár og vídeóskrár. Tækið, sem ber verðmiða upp á 499 Bandaríkjadali vestra, má svo tengja
við borðtölvur um USB 2.0 tengi. Nú er bara að sjá hvort einhver hleypur til og býður það til sölu hér á landi.
NORDUnet 2003 ráðstefnan í Háskólabíói:
Endanleg mynd komin á dagskrá
Fyrirlesarar úr röðum færustu og þekktustu sér-
fræðinga í alþjóðlega netsamfélaginu taka þátt í
ráðstefnu um rannsókna- og háskólanet í Háskóla-
bíói í ágústlok. Þar á meðal eru Vinton G. Cerf, einn
helsti hugmyndasmiður um uppbyggingu Internets-
ins og Dr. Vesselin Bontchev, einn virtasti vírussér-
fræðingur veraldar.