Tölvuheimur - 01.08.2003, Side 8
„Það gengur vel hjá okkur,“ segir Sigurður Ólafs-
son, markaðsstjóri CCP. Leikurinn er orðinn
þriggja mánaða og hefur þróast með nokkuð fyrir-
sjáanlegum hætti. Jafnvægi hefur verið að aukast til
muna og villum fækkað verulega,“ segir Sigurður
og bætir við að starfsfólk CCP taki svo líka rækilega
til hendinni við að útrýma þeim lúsum sem enn
leynast í leiknum nú að afloknum sumarfríum.
FRAMVINDA LEIKSINS SKÝRIST
Sigurður segir fyrstu kaflana í „sögu“ leiksins að
skýrast eftir að hann hafi nú verið leikinn í þessa
rúmu þrjá mánuði. Leikmennirnir þurfa orðið
að taka afstöðu til atburða og velja sér samherja
með tilliti til pólitískra sviptinga, ef svo má að
orði komast. „Það eru farnir að eiga sér stað at-
burðir í leiknum sem hafa áhrif á alla leikmenn,“
sagði hann og nefndi sem dæmi að nýlega hafi
umdeildur leiðtogi einna fimm höfuðkvísla ætt-
bálka eða samtaka sýndarveraldar Eve fengið
friðarverðlaun sem reyni mjög á þolrif annarra
hópa. „Þetta var svona eins og Idi Amin fengi
friðarverðlaun Nóbels. Eins og er ríkir friður í
leiknum en hann er mjög brothættur.“ Sigurður
segir þá hjá CCP hafa gert ráð fyrir því að megin-
línurnar í söguþræði og bakgrunni leiksins færu
að skýrast eftir um þriggja mánaða spilun og það
hafi gengið eftir.
ÚTGÁFUÁÆTLUN BREYTT
Í upphafi voru uppi áætlanir um að gefa leikinn út
með miklum látum og selja af honum mjög mörg
eintök á skömmum tíma. Sigurður segir þessar
áætlanir hafa verið að undirlagi dreifingaraðilans
í Bandaríkjunum, Vivendi Universal, sem hafi
séð fram á að geta mokað út 100 þúsund eintök-
um af leiknum á fyrsta mánuðinum frá útgáfu.
„Við fórum fram á breytta útgáfuáætlun sem ekki
hefði í för með sér jafnmikla áhættu og álag fyrir
fyrirtækið. Í framhaldinu var svo tekin ákvörðun
um að hafa þetta frekar svokallað „soft launch“ til
að hafa vaðið fyrir neðan okkur ef svo færi að
ófyrirséð vandamál kæmu upp,“ segir hann.
Útgáfan gekk engu að síður snurðulaust og
segir Sigurður tímann verða að leiða í ljós hvort
rétt leið hafi verið valin. „Önnur fyrirtæki hafa
brennt sig mjög illa á að fara af stað með leiki
með miklum látum,“ sagði hann og nefndi
dæmi af leiknum Anarchi Online sem væri tal-
inn skólabókardæmi um misheppnaða útgáfu
leiks. „Enn þann dag í dag byrja allar umsagnir
blaða um þann leik, sem þó er talinn einn besti
„massively multiplayer“ leikurinn sem völ er á, á
orðunum: Þrátt fyrir misheppnuðustu útgáfu
sögunnar er Anarchi Online svona og svona,“
sagði hann.
www.heimur.is8 Ágúst Tölvuheimur 2003
Sigurður Ólafsson, markaðsstjóri CCP, segir
helst hægt að líkja sýndarveruleikanum í Eve
Online við það sem fólk þekkir úr framtíðar-
spám bíómynda, nema hvað að nú geti fólk
tekið þátt í alvöru.
EVE ONLINE FRÁ CCP
Sala og markaðssetning
í fullum gangi
Internetleikurinn Eve Online kom loks út í maíbyrjun eftir að hans hafði verið beðið með
mikilli eftirvæntingu mánuðum saman. Dreifingaraðilar leiksins höfðu miklar væntingar
um sölu fyrstu mánuðina en forráðamenn CCP fyrirtækisins, sem hannar og framleiðir leik-
inn, stóðu frekar á bremsunni. Útgáfurisinn Simon & Schuster Interactive gefur leikinn út
og í Bandaríkjunum er honum svo dreift af stórfyrirtækinu Vivendi Universal. Hjá CCP
starfa nú hér heima 37 manns og tveir til viðbótar í Bandaríkjunum. Svo starfa 30 manns
til viðbótar við leikinn á vegum Símans sem tekið hefur að sér þjónustu við notendur.