Tölvuheimur - 01.08.2003, Blaðsíða 9

Tölvuheimur - 01.08.2003, Blaðsíða 9
VERSTU MÁNUÐIRNIR AÐ BAKI Fjöldi áskrifenda að leiknum, segir Sigurður, hefur aukist jafnt og þétt, en bendir jafnframt á að mánuðirnir júlí og ágúst séu almennt þeir mögrustu hvað varðar leikjasölu á heimsvísu. „Heildarsala tölvuleikja þessa tvo mánuði er innan við 5 prósent af heildarsölu alls ársins. Við eigum því von á stór- aukinni nýliðun að afloknum fríum,“ sagði hann og tiltók að um 30 þúsund manns spili leikinn um þessar mundir. Í stað upphaflegra áætlana Vivendi Universal um sölu leiksins segir Sigurður að stefnt sé að því að ná inn 80 til 100 þúsund áskrifendum fyrsta árið frá útgáfu leiksins. „Þær áætlanir þóttu okkur raun- særri. Ef í alvöru hefðu selst 100 þúsund leikir fyrsta mánuðinn eins og Vivendi ætlaði þá hefðum við hreinlega lagst á hliðina vegna álagsins.“ Sigurður bætti jafnframt við að 10 þúsund nýir áskrifendur á mánuði væri fullásættanlegur árangur og CCP sæi fram á að ná sölumarkmiðum sínum á þessum 12 mánuðum. „Við erum bara mjög brött hér og líst vel á hlutina,“ sagði hann „Núna erum við að sigla út úr verstu mánuðum ársins því fólk spilar ekki mikið yfir sumarið.“ MEÐ NÝJA MARKAÐI Í SIGTINU Sigurður segir að um þessar mundir sé verið að hleypa leiknum af stokkunum víðar í heiminum, í Ástralíu og í nokkrum Evrópulöndum, s.s. í Frakklandi og í Þýskalandi. Hann segir leikinn hafa fengið töluverða athygli fjölmiðla í þeim löndum vegna þessa. „Við erum á forsíðum nokkurra blaða í Þýskalandi þar sem er að fara í gang tilboð á leiknum og svo vorum við að senda okkar fyrstu sendingu til Ástralíu. Við eigum þannig eftir að halda innreið okkar inn á ansi mörg markaðssvæði ennþá,“ sagði hann. CCP framseldi dreifingarréttinn á leiknum fyrir Evrópu og Bandaríkjamarkað en hafa sjálfir fullt vald yfir markaðssetningu í Eyjaálfu og Asíu. „Þetta eru kannski 20 vænlegir markaðir sem við eigum eftir að fara inn á,“ sagði hann og nefndi sem dæmi um sölumöguleikana að í Frakklandi einu byggju um 60 milljón manns. REKSTURINN STENDUR UNDIR SÉR Sigurður er bjartsýnn á framtíð CCP og gengi Eve Online, þegar hann var spurður út í fjárhag fyrirtækisins, en þróunarkostnað við leikinn segir hann hafa farið nokkuð yfir hálfan milljarð króna. „Fyrirtækið er sem slíkt ekkert sérstaklega skuldsett. Það er fjármagnað með áhættufjármagni og í dag stendur reksturinn undir sér. Við þyrftum svo að vera með um 50 þúsund áskrifendur til að hafa góð tök á að standa að frekari þróun. Svo þegar við náum 80 þúsund áskrifendum og þaðan af fleirum má vænta verulegs arðs af fjárfestingunni. Svo er aftur erfiðara að segja nákvæmlega til um hvenær við komum til með að borga upp þróunarkostnaðinn því þar hafa svo margar breytur áhrif,“ sagði hann og nefndi gengi markaðssetningar í Asíu, gengisþróun Banda- ríkjadals (því tekjur fyrirtækisins eru í þeim gjaldmiðli meðan þróunarkostnaðurinn er í krónum), aukna samkeppni og fleiri þætti. „Gengisþróunin hefur til dæmis ekki hjálpað okkur frá því við lögðum upp með verkefnið, en við sjáum nú samt varla fram á að hún geti orðið verri. Þannig gerum við ráð fyrir að okkar ytri rekstraraðstæður fari bara batnandi á næstu mánuðum og það er margt í spilunum sem gefur tilefni til bjartsýni.“ www.heimur.is 9Ágúst Tölvuheimur 2003  Varla þarf nokkurn að undra þótt fólki brygði við að svona gaur fengi friðarverðlaun Nóbels. En kannski er hann ómaklega dæmdur af útlitinu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tölvuheimur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvuheimur
https://timarit.is/publication/1839

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.