Tölvuheimur - 01.08.2003, Page 13
U P P L Ý S I N G AT Æ K N I
www.heimur.is 13Ágúst Tölvuheimur 2003
STÝRIKERFI
Microsoft Windows XP Professional
(find.pcworld.com/35525)
Stýrikerfið er stöðugt og með alla virkni innan-
borðs auk þess að vera tilbúið undir netteng-
ingar. Pro útgáfan er sú besta af Windows
stýrikerfunum.
HUGBÚNAÐARVÖNDLAR
Microsoft Office XP Professional
(find.pcworld.com/35528)
Þar til Office 2003 kemur á markað undir lok
ársins er XP besti kosturinn. Ef þið viljið sýna
aðhald í efnahagsmálum ættuð þið samt
kannski að kíkja á OpenOffice.org
(www.openoffice.org).
HJÁLPARTÆKJAVÖNDLAR
Symantec Norton SystemWorks 2003
(find.pcworld.com/34559)
SystemWorks samanstendur af uppáhaldsvírus-
vörninni okkar ásamt fjölda gagnlegra grein-
ingar- og hjálparforrita vöndluðum saman í
einn pakka.
LEITARVÉLAR
Google
(www.google.com)
Google er langvinsælasta leitarvélin á Netinu,
reyndar svo mjög að í enskri tungu er farið að
nota nafnið sem sögn þegar rætt er um að leita
að einhverju á Netinu. Leitarvélin er enn fljót-
virk, örugg og ómissandi.
FJÁRUMSÝSLUFORRIT HEIMILISINS
Microsoft Money 2003 Deluxe
(find.pcworld.com/30392)
Money er sjónarmun framar en Quicken í
kapphlaupi þar sem á báðum bæjum er reynt
að bæta við forritin vefþjónustu af ýmsum toga.
VIÐSKIPTAHUGBÚNAÐUR
ACCPAC Simply Accounting Basic
(find.pcworld.com/33314)
Virkni og möguleikar sigurvegarans í flokki
forrita fyrir endurskoðendur fara langt með að
standa jafnfætis þeim sem dýrari forrit á borð
við QuickBooks bjóða upp á.
LÓFATÖLVUFORRIT
Documents To Go Premium 5 frá DataViz
(find.pcworld.com/35537)
Bráðnauðsynlegur hugbúnaður til að tryggja
aðgang að mikilvægum Office skjölum í lófa-
tölvunni.
Fleiri vinningshafar
NAUÐSYNJAR
H
E
L
S
TU Kæfusía
IHateSpam frá Sunbelt Software fyrir Outlook
(find.pcworld.com/31556)
EF ÞIÐ VILJIÐ EKKI heyra af fleiri
nígerískum fjárplógsleiðum og hafið fengið nóg
af vafasömum viagratilboðum er kominn tími
til að verða sér út um kæfusíu (e. spam filter).
Notendur Outlook tölvupóstforritsins ættu að
reyna IHateSpam 3.2 frá Sunbelt Software.
Einföld tólastika býður upp á viðbótarsíur fyrir kæfupóst sem forritinu kann að sjást yfir,
þar má setja upp lista yfir póstföng sem maður treystir og senda kvartanir til Internetþjón-
usta kæfusenda. IHateSpam gómaði 94 prósent allra kæfusendinga í fyrstu prófunum
okkar og varð svo enn öflugra með meiri reynslu.
Jaðartæki
Logitech Cordless Elite Duo
(find.pcworld.com/35120)
ALLT FRÁ STAÐARNETUM til lófatölva,
lyklaborða og músa, virðist sem þráðlaus tækni
sé sú vinsælasta um þessar mundir. USB tengda
Cordless Elite Duo tvíeykið frá Logitech uppfærir innsláttinn hjá ykkur um leið
og greitt er úr flækjum sem fylgja vilja jaðartækjum. Bæði músin (sem er með ljósnema) og lyklaborðið
eru með innbyggð skrunhjól sem auðvelda gagnavinnslu og vafur um vefsíður. Þá er hægt að forrita ýmsa
aukahnappa með flýtiaðgangi að skrám, forritum og vefsíðum. Þráðlausa tengingin byggir á útvarps-
bylgjum (RF eða Radio Frequency) sem þýðir að ekki þarf að vera í sjónlínu við nemann þegar tækin eru
notuð og músin er einfaldari í notkun sökum nýrrar hönnunar og endurhleðslumöguleika.
Frístandandi forrit
Sandra Professional frá SiSoftware
(find.pcworld.com/33083)
ERUÐ ÞIÐ MEÐ hjálparforrit við höndina?
Vitanlega. Almennilegt hjálpartækjasafn heimil-
istölva er samt ekki fullkomið nema að í því sé
Sandra Professional forritið frá SiSoftware
(kostar um 2.600 kr. eða 35 USD að hlaða því
niður af Netinu, en sé pantaður diskur kostar
hann um 4.400 kr. m/VSK eða 47 USD) en það
mætti kalla svissneskan vasahníf greiningarhug-
búnaðar. Forritið er með 58 mismunandi staðl-
aðar greiningaraðferðir og gerir notendum því kleift að komast að leyndustu fylgsnum tölvunnar til að
kalla fram upplýsingar sem annars væri erfitt að komast í, s.s. upplýsingar um örgjörvann, móðurborðið,
vinnsluminni, viðbótarkort, jaðartæki og hugbúnaðarumhverfi Windows. Ókeypis útgáfa forritsins
(Standard version) sem hægt er að hlaða niður af Netinu sleppir nokkrum af flóknari prófununum en með
því má engu að síður kalla fram hafsjó af gagnlegum upplýsingum og meira en nóg af samanburðarpróf-
unum til að sníða af helstu vankanta sem oft hrjá PC tölvur.