Tölvuheimur - 01.08.2003, Qupperneq 18
U P P L Ý S I N G AT Æ K N I
www.heimur.is18 Ágúst Tölvuheimur 2003
Skjáir með fljótandi kristal (LCD)
Samsung Syncmaster 172T
(find.pcworld.com/31385)
GEFIÐ GAUM 17 TOMMU STÓRA SAMSUNG 172T kristalsskjánum sem kalla mætti jógaiðkanda
kristalsskjáa: Hann er mjósleginn, fágaður og getur „farið í brú“ ef þannig stendur á. Skjárinn er tæpir
þrír sentímetrar á þykkt og er komið fyrir á standi með tveimur lömum þannig að bæði er hægt að hafa
stjórn á hæð og halla skjásins. Silfurlitur og glæsilegur skjárinn varpar ekki skugga á stíl eigandans né
heldur er hann frekur á borðplássið, - svo er meira að segja hægt að leggja hann alveg saman og hengja á
vegg fyrir ofan skrifborðið. Þegar horft er til þessara eiginleika og jafn-
framt haft í huga hvað skjárinn er léttur (rétt rúmlega
4,5 kg og þar með einn af léttustu 17 tommu skjám
sem við höfum prófað) er augljóst að hann er
góður kandídat í töluverð ferðalög.
Þótt maður gæti lent í að taka ekki eftir 172T
skjánum þegar á hann er horft frá hlið er engin
slík hætta þegar litið er beint framan á hann.
Á 17 tommu stórum áhorfsfleti skjásins
birtast bjartir litir, eðlilegir húðlitir og
skarpur svartur texti, allt með jafnmiklum
myndarbrag. Uppsetningarleiðbeining-
arnar sem fylgja og aðstoðin sem til boða
stendur hjá framleiðandanum öllum stundum
sólarhringsins hjálpa svo til við að leysa úr
hverjum þeim vanda sem notendur gætu
hugsanlega lent í.
Stafrænn tónlistarspilari
Nomad Jukebox Zen frá Creative
(find.pcworld.com/32531)
ERTU MEÐ ALLT GEISLADISKASAFNIÐ í vasanum eða ertu
bara..., nei annars, vondur brandari. En Creative Nomad Zen spilar-
inn með sín 20 GB af geymslurými getur engu að síður hýst allt geisla-
diskasafnið því hann rúmar ein 5.000 lög. Sá möguleiki gæti jafnvel
valdið straumhvörfum í lífi alvöru tónlistarunnenda.
MP3 spilarar með hörðum diski eru samt auðvitað engin nýjung og
önnur tæki af sama toga, líkt og iPod spilari Apple, gerði val vinningshafa
í þessum flokki erfitt. Nomad Zen spilarinn hlýtur atkvæði okkar fyrst
og fremst fyrir aðlaðandi blöndu góðar hönnunar og notagildis. Útgáfur með hvort heldur sem er USB 2.0
eða Firewire tengjum fást í mattri álumgjörð með kristalsskjá sem þægilegur er aflestrar. Þó svo að Nomad
spilarinn sé aðeins stærri en keppinautarnir sem fara aðrar leiðir, er viðmót hans sérstaklega hannað með það
í huga að auðvelt sé að stýra tónlistarvalinu hvar sem maður er á ferðinni. Nota má einfalda skífu og vallista
til að bæta við listamönnum, plötum, stökum lögum og/eða afspilunarlistum við lista spilarans yfir lög sem
verið er að spila (e. Now Playing list) hvar sem maður er á hlaupum. Rafhlaða spilarans er fljót að hlaða sig
og þar sem hún býður upp á allt að 8 tíma af tónlistarflutningi fullhlaðin er lítil hætta á að spilarinn deyi í
höndunum á manni þótt lagt sé í langferðir. Niðurstaðan er því: Þótt smæð og flott útlit iPod spilarans líti
vel út fær maður fyrir sama verð helmingi meira geymslurými í Nomad Zen spilaranum.
HLJÓÐ OG MYND
HEFÐBUNDINN TÖLVUSKJÁR (CRT)
Samsung SyncMaster 957mb
(find.pcworld.com/35177)
Skaplega verðlagður og með hágæðaupplausn
gæti 19 tommu stóri SyncMaster 957mb
orðið síðasti hefðbundni skjárinn sem þið
festið kaup á.
SKJÁKORT
ATI Radeon 9700 Pro
(find.pcworld.com/31505)
9700 Pro skjákortið frá ATI stal þrívíddar-
hraðatitlinum frá NVidia sl. haust. Kortið er
enn verulega hraðvirkt.
TÖLVUHÁTALARAKERFI
Logitech Z-680
(find.pcworld.com/33260)
Þetta THX vottaða 5.1 hátalarasett tekur við
þar sem vinningshafa síðasta árs sleppti og
færir gæðin upp á næsta stig.
SKJÁVARPI
Dell 3200MP
(find.pcworld.com/33782)
3200MP skjávarpinn frá Dell stendur sig jafn
vel í að sýna hvort heldur sem er kynningar
eða kvikmyndir.
HLJÓÐKORT
M-Audio Revolution 7.1
(find.pcworld.com/33683)
Gefur frá sér kristalstæran hljóm í 7.1 rása-
uppsetningu.
SPILARAHUGBÚNAÐUR
Musicmatch Jukebox Plus 8
(find.pcworld.com/35558)
Musicmatch heldur áfram að standa sig vel í
að koma reglu á tónlistarskrár og afspilunar-
lista.
VÍDEÓVINNSLUBÚNAÐUR
Pinnacle Studio 8
(find.pcworld.com/34484)
Öflugur vídeóvinnsluhugbúnaður á viðráðan-
legu verði.
HLJÓÐSTREYMI Á NETINU
Listen.com Rhapsody
(www.listen.com)
Mánaðaráskrift að hljóðstreymi kostar 10
dollara. Real festi nýlega kaup á Listen.com.
Vonum bara að fyrirtækið stilli sig um að gera
miklar breytingar.
Fleiri vinningshafar