Tölvuheimur - 01.08.2003, Síða 21

Tölvuheimur - 01.08.2003, Síða 21
U P P L Ý S I N G AT Æ K N I að segja við dauðans dyr þegar kemur að tækni- legum málefnum; hugtök og heiti eru mörg, ef ekki flest, á ensku og er málið því vart lengur not- hæft þegar kemur að umræðu um tölvur og tækni- búnað hvers konar. Telja skýrsluhöfundar aukna hættu steðja að tilvist tungumálsins verði ekkert gert til að sporna við yfirgangi enskrar tungu í tæknisamfélaginu og benda þeir á nauðsyn tungu- tækni í íslensku samfélagi. STULDUR Á HUGBÚNAÐI SKAÐLEGUR Í sjálfu sér er ekkert nema gott að segja um íslenska tungutækni í hug- og tæknibúnaði hér á landi. Það hefði jafnvel mátt kanna málið töluvert fyrr, og þá af meiri krafti. En landslag hug- búnaðarnotkunar hér á landi er vart til þess fallið. Í skýrslu starfshópsins frá árinu 1999 kemur fram að virðing fyrir höfundarrétti hugbúnaðar sé fremur lítil hér á landi og sé það næstum regla fremur en undantekning að notendur noti ólög- lega afritaðan hugbúnað. Er það reyndar mál manna að hlutfallslega stundi Íslendingar rányrkju á hugbúnaði í ríkari mæli en gengur og gerist í viðmiðunarlöndunum enda veiki slíkt markaðslíkur hugbúnaðar hér á landi sem og stöðu íslenskunnar sem tungumáls þegar semja á við erlenda framleiðendur um þýð- ingu á forritum og aðlögun þeirra að málinu. Menn sáu ofsjónum yfir þessu vaxandi vandamáli árið 1998 og átti samningur ríkisstjórnarinnar við Microsoft um ísenska þýðingu á Windows 98 stýrikerfinu og tengdum hugbúnaði að marka upphaf átaks gegn stuldi á hug- verkum hér á landi. Komst málið á síður erlendra dagblaða þar eð svo smátt málsvæði hafði aldrei fyrr gert þvílíkan samning við fyrirtækið. En þótt íslenskun stýrikerfis- ins, sem var bæði kostnaðarsöm og mannfrek, hafi í sjálfu sér verið jákvæð byrjun, er með öllu óvíst hvað orðið hafi um stýrikerfið utan skólakerfisins. Að undanskildum ýmsum ambögum á kerfinu í heild sinni, gleymdist með öllu að þýða hverja einustu uppfærslu sem fylgir í kjölfar útgáfu stýrikerfis, rekla, smá- búnað og þess háttar, svo ekki sé minnst á nýrri uppfærslur stýrikerfisins. Það má því gera því skóna að eitt kostnaðarsamasta upphafsverkefni íslenskrar tungutækni hafi mistekist hrapallega enda eru fá eða engin merki þess að stuldur á hugbúnaði hafi minnkað að ráði. Þvert á móti hafa ólöglegar afritanir aukist til muna með bættri tækni og auknum tengihraða. En nú eru blikur á lofti. VIÐREISN TUNGUMÁLSINS Það er greinilegt að stjórnvöld lærðu mikið af þýðingu stýrikerfisins árið 1998. Niðurstöður um slælega stöðu tungumálsins í þekkingarsam- félaginu vöktu að vonum ugg og var allt sett á fullt við endurreisn tungumálsins. Í setningar- ræðu sinni á einni af fyrstu ráðstefnunum Menntamálaráðuneytisins um tungutækni í nóv- ember árið 2001 lagði Björn Bjarnason áherslu á að þekkingarþjóðfélagið hefði tekið stórstígum framförum, samskipti við og í gegnum tölvur hefðu aukist til muna og skipti máli að tengja breytingarnar og tungumálið saman. Sagði hann því mikilvægt að tryggja íslenskri tungu öruggan sess í hinum nýja heimi. www.heimur.is 21Ágúst Tölvuheimur 2003 Tungutækni er þýðing á enska orðinu „Human language technology“. Hlutverk tungutækni er að koma málgetu inn í tölvu - og tækjabúnað, hvort heldur það er hugbúnaður, vélbúnaður eða upplýsingakerfi, svo hægt sé að hafa gagnvirk samskipti við tækin á móður- málinu.Villu - og beygingarpúki Friðriks Skúlasonar og Tölvuorðabók Eddu - miðlunar er gott dæmi um tungutækni á íslensku. Í framtíðinni verður hægt að stjórna útvörpi, sjónvörpi og síma með raddbeitingu á íslensku. Árið 1998 sáu menn ofsjónum yfir hverfandi hlut íslenskunnar í hugbúnaðargerð og var í kjölfarið gengið til samninga við tölvurisann Microsoft um þýðingu á Windows 98 stýrikerfinu.

x

Tölvuheimur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvuheimur
https://timarit.is/publication/1839

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.