Tölvuheimur - 01.08.2003, Side 23
Norðlenski hreimurinn kemur að
góðum notum, segir Sæmundur
Þorsteinsson hjá Símanum
Eitt af þeim verkefnum sem hlutu styrk úr Tungutæknisjóði menntamálaráðuneytisins árið 2002 var
Hjal - samstarfsverkefni Símans, Nýherja, Háskóla Íslands, Grunns gagnalausna og Hex hug-
búnaðar. Sæmundur Þorsteinsson, forstöðumaður rannsóknardeildar Símans og formaður stýrihóps
um Hjal, segir heiti verkefnisins vera einkennandi fyrir þessa nýjung í tölvutækni, en Hjal vísar í fyrstu
hljóðin sem ungabarn myndar þegar það lærir að tala. Á sama hátt og foreldri kennir barni sínu smátt
og smátt felst hlutverk Símans í söfnun upplýsinga til gerðar íslensks talgreinis fyrir tölvur og annan
tækjabúnað. Auglýst var eftir sjálfboðaliðum vegna hljóðdæma í gagnagrunninn og segir Sæmundur að
í júlímánuði hafi um 2000 einstaklingar tekið þátt í verkefninu og búist hann fastlega við að þróunar-
vinna við gerð talgreinis hefjist á haustdögum þessa árs.
„Við höfum raddir fólks á öllum aldri með mismunandi talanda, áherslur og jafnvel hreim,“ segir
Sæmundur og bendir á að norðlenski hreimurinn gagnist afar vel þegar kemur að þróun gagnagrunns-
ins. „Það skiptir máli fyrir þróunarvinnu sem þessa að fá raddir eins breiðs hóps og mögulegt er svo
hægt verði að þróa talgreini sem skilur mismunandi raddblæ,“ segir Sæmundur og bætir við að þar sem
allir hafi aðgang að gangagrunninum komi vel til greina að selja aðgang að hljóðdæmum til þeirra sem
hyggist búa til sinn eigin talgreini í framtíðinni.
Talgervlar eru forrit
sem bera fram texta
sem skráður er í tölvu.
Í dag eru algengustu
talgervlar forrit sem
keyrð eru á venjulegri
PC-tölvu og nýta
hljóðkerfi hennar til
að bera fram hljóðið.
Með tilkomu
fullkomnari talgervla
sem skilja munu
íslensku verður
sérstök skipun í
ritvinnsluforritum
sem notandi getur
kallað á til þess að
bera fram textann
sem er verið að
skoða eða skrifa í
ritvinnsluforritinu.
Notandi þarf því
ekki annað en
forritið og
heimilistölvu.
www.heimur.is 23Ágúst Tölvuheimur 2003
„Það skiptir máli fyrir þróunarvinnu sem þessa að fá raddir eins breiðs hóps og mögulegt er
svo hægt verði að þróa talgreini sem skilur mismunandi raddblæ,“ segir Sæmundur Þorsteins-
son, formaður stýrihóps um verkefnið Hjal.
U P P L Ý S I N G AT Æ K N I