Tölvuheimur - 01.08.2003, Side 31
Óli Kristján Ármannsson
U P P L Ý S I N G AT Æ K N I
OPERA MEÐ FYRSTA
GÓÐA SÍMAVAFRANN
Framkvæmdastjóri Opera Software ASA er sannfærður um að
Netnotkun með farsíma sé framtíðartekjulind símafyrirtækja
Íslendingurinn Jón Stephenson von Tetzchner, framkvæmda-
stjóri (CEO) og annar aðaleigandi Opera Software ASA í Noregi
var á árinu tilnefndur í vali sem fram fór í Noregi á Netmanni
áratugarins. Segir það nokkra sögu um stöðu hans og fyrir-
tækisins meðal hugbúnaðarfyrirtækja ytra. Opera Software
hannar Internetvafra fyrir einkatölvur, farsíma, sjónvörp og
fleiri tæki. Fyrirtækið stofnaði Jón árið 1995 ásamt félaga
sínum Geir Ivarsøy. Í viðtali við Tölvuheim ræðir Jón stöðu
fyrirtækisins og nánustu framtíð.
„Það hefur gengið ágætlega hjá okkur,“ segir Jón hæversklega þegar hann er inntur
eftir gengi fyrirtækisins. Þá segir hann vissulega upphefð að hafa verið tilnefndur til
verðlauna sem Netmaður áratugarins í Noregi, en staða fyrirtækisins sé þannig að
mikið sé litið upp til þeirra. „Við erum norskt fyrirtæki sem höfum verið að gera aðra
hluti en Norðmenn eiga að venjast. Þar er ekkert vanalegt að fara af stað út í samkeppni
við fyrirtæki í öðrum löndum með starfsemi sem ekki liggur í augum uppi að hægt sé að
gera betur í Noregi en annars staðar, svona eins og olíuvinnslu og öðru slíku. En þetta þýðir
auðvitað aukna vinnu fyrir okkur að standa undir þessum væntingum.“
AUKIN ÁHERSLA Á FARSÍMA
Jón segir að áherslan síðasta árið hjá Opera Software hafi færst mikið yfir á þróun vafra
fyrir farsíma og telur víst að á því sviði séu ónýttir möguleikar. „Þar verður þróunin sífellt
hraðari. Framleiðendur leggja sig fram um að koma með nýja og
spennandi hluti til að auka söluna, litaskjái, myndavélar og
fleira. Svo er Internetið í stöðugri þróun. Hann
segir ljóst að þeir sem vantrúaðir voru
á að hægt væri að gera Net-
inu skil í farsíma verði
Jón segir nokkurs misskilnings hafa gætt í fréttum
af tilnefningu hans sem netmaður áratugarins í Noregi,
því hann hafi ekki unnið verðlaunin. „Hins vegar vorum við
af þremur tilnefndum tveir frá Opera, þannig að kannski mætti
segja að fyrirtækið hafi unnið,“ sagði hann.