Tölvuheimur - 01.08.2003, Blaðsíða 35
V É L B Ú N A Ð U R
MIKE WOZNICKI hefur skrifað gagnrýni um vélbúnað,
hugbúnað, bækur og myndbönd á Amazon.com síðastliðin
fimm ár. Woznicki, sem er upplýsingatæknistjóri og býr í
Holland í Massachusetts-fylki í Bandaríkjunum, veit hvað
hann syngur. Hann er núna í ellefta sæti yfir bestu gagn-
rýnendur á Amazon.com, en það er metið eftir því hversu
hjálpleg gagnrýni hans er að mati þeirra sem lesa hana.
En Woznicki er ekki hefðbundinn almennur gagnrýnandi.
Í fyrsta lagi fær hann flestar vörurnar sem hann gagnrýnir
ókeypis frá framleiðendum. Í öðru lagi hefur hann skrifað um
fleiri en 1.500 vörur. Það vekur mann til umhugsunar. Getur
verið að það hafi áhrif á gagnrýni hans að hann fái vörurnar
ókeypis? Og getur einhver í alvörunni haft góða þekkingu á
svona mörgum mismunandi vörum?
Það er óalgengt að finna dæmi á borð við þetta, en efa-
semdir um notendagagnrýni eru daglegt brauð. Hefur gagn-
rýnandinn almennilega þekkingu á því sviði sem hann eða
hún skrifar um? Gæti lævíst fyrirtæki sent inn frábæra dóma
um sjálft sig til að keyra upp einkunnina? Það er ávallt ærið
verkefni að finna gagnrýni sem hægt er að treysta.
Við fórum bak við tjöldin til að reyna að komast að því
hversu vel megi treysta notendagagnrýni. Við tókum viðtöl
við sérfræðinga í stétt gagnrýnenda og fólk sem vinnur við að
halda úti vefjum með notendagagnrýni auk þess að prufu-
Víða um Vefinn skrifar alls
kyns fólk um reynslu sína
af hátæknibúnaði. Er hægt
að treysta slíkri gagnrýni?
Við könnum málið.
EFTIR MICHAEL GOWAN MYNDIR: BILLY O’CONNELL
www.heimur.is 35Ágúst Tölvuheimur 2003
Mike Woznicki um-
kringdur hluta þeirra
1.500 bóka og vara
sem hann hefur
skrifað um.
notenda
ÁLIT
ALMENNINGS:
úttekt á gagnrýni