Tölvuheimur - 01.08.2003, Síða 37
V É L B Ú N A Ð U R
nokkuð ljóst að höfundurinn ýmist þekkir ekki
vöruna nægilega vel eða hefur aldrei verslað við
þann sem hann er að fjalla um. Móðgandi texti
er sjaldnast birtur, en almennt er ekki átt við
textann á þann hátt að stafsetning sé löguð eða
orðalagi breytt. Rétt er að nefna að Product
Finder hluti PCWorld.com er keyrður af
PriceGrabber.com og PCWorld.com veitir not-
endagagnrýni í gegnum Product Finder. Tölvu-
heimur er samstarfsaðili PC World.
Vefir sem sérhæfa sig í að gefa söluaðilum
einkunn rekast öðru hverju á svikamyllur. „Fjöldi
fyrirtækja sem ekki eru vönd að virðingu sinni
lætur starfsmenn senda inn gagnrýni um viðkom-
andi fyrirtæki á ResellerRatings.com,“ segir Scott
Wainner, framkvæmdastjóri vefsins. Slík fyrirtæki
eru þá oftast með lélega einkunn og eru að reyna
að bæta ímynd sína. En einnig er það til í dæminu
að starfsmenn fyrirtækja reyni að rakka niður
keppinautana til að lækka einkunn þeirra.
Til að berjast gegn slíku athæfi beita Biz-
Rate.com, PriceGrabber.com og ResellerRatings
ýmsum aðferðum. Talsmenn allra fyrirtækjanna
segjast nota ákveðin tól til að rannsaka grunsam-
lega gagnrýni, en vildu ekki segja nánar til um það
hvernig þau tól virkuðu. Ef upp kemur að fyrir-
tæki hafi beitt svikum og prettum eru þau fjarlægð
af listum vefjanna.
FJÁRHAGSLEGUR ÁVINNINGUR?
Einnig er spurning hvort vafasöm gagnrýni sé
samin af þeim sem fá greitt fyrir skrif um vörur
eða þjónustu. Slíkar greiðslur geta ýmist verið í
formi ókeypis varnings eða hreinlega í reiðufé.
Mike Woznicki fær að eiga vörurnar sem fram-
leiðendur senda honum. Hann segir að slíkt fyrir-
komulag hafi ekki áhrif á það sem hann skrifar
vegna þess að hann velji sjálfur þær vörur sem
hann skrifar um. „Það kemur ekki til að ég hampi
einu fyrirtæki umfram annað,“ sagði hann í við-
tali. (Athugasemd: Framleiðendur senda PC
World þær vörur sem fjallað er um í blaðinu. Vél-
búnaður er svo sendur til baka eftir að prófunum
er lokið. Sumir fjölmiðlar fara öðruvísi að í þessum
efnum. Consumer Reports, til dæmis, kaupir allar
þær vörur sem fjallað er um.)
Aðstæður Woznickis virðast vera undantekning
frekar en regla. Aðrir gagnrýnendur sem haft var
samband við fyrir skrif þessarar greinar segjast ekki
fá ókeypis vörur. Epinions.com er eini vefurinn
sem við skoðuðum sem borgar fé – þó svo það sé
af skornum skammti – fyrir gagnrýni. Vefurinn
greiðir einungis þeim notendum sem fjalla um
vinsælar vörur og fá háa einkunn frá öðrum
notendum fyrir gagnrýnina að sögn talsmanns
Epinions.com. Meðalgrein á vef fyrirtækisins
skaffar höfundi sínum minna en sem nemur 75
krónum. „Mér tókst að raka saman heilum 50
dollurum (um 3.800 krónum) fyrir gagnrýniskrif
í heilt ár,“ sagði notandi Epinions.com sem
gengur undir nafninu Zero.
Í ljósi mögulegra hagsmunaárekstra og svindls
á vefjum sem bjóða upp á notendagagnrýni er því
ljóst að þið þurfið að beita dómgreindinni við að
www.heimur.is 37Ágúst Tölvuheimur 2003
VE F I R A Ð O K K A R S K A PI
Þegar þið skráið ykkur sem meðlimi á Epinions.com getið þið
ákveðið hvaða gagnrýnendur þið viljið að verði innstu koppar í
ykkar búri (1). Þegar við leituðum að vinsælu skjákorti birti
Epinions ummæli uppáhalds gagnrýnandans okkar efst (2) – rétt eins og við vildum.
Rétt eins og með alla aðra uppsprettu upplýsinga verðið þið að vita hvers þið
leitið. Hafið þessi ráð í huga næst þegar þið rennið yfir notendagagnrýni.
• HORFIÐ FRAMHJÁ EINKUNNAGJÖFINNI: Það sem einum finnst vera fimm
finnst öðrum vera þrír, þannig að oft er lítið að marka einkunnagjöfina. Þið verðið
að skoða smáatriðin til að átta ykkur á sjónarmiði notandans.
• ÞVÍ FLEIRI UMFJALLANIR ÞVÍ NYTSAMLEGRI: Þið ættuð aldrei að lesa bara
eina eða tvær umfjallanir. Sumir höfundar eru einfaldlega ekki með öllum
mjalla, en líklegt er að hægt sé að treysta tíu, tuttugu höfundum sæmilega vel.
• SKOÐIÐ FJÖLDANN: Ef þið viljið nýta ykkur meðaleinkunn vörunnar þrátt fyrir
viðvaranir okkar skuluð þið passa ykkur á að íhuga hversu margir gagn-
rýnendur eru á bak við meðaleinkunnina. Því fleiri sem þeir eru, því líklegra er
að hægt sé að taka sæmilegt mark á henni.
• NOTIÐ TÓLIN SEM Í BOÐI ERU: Nýtið ykkur síur og aðra eiginleika til að gera
leitina markvissari og fá þannig meira út úr notendagagnrýninni.
• EINBEITIÐ YKKUR AÐ ÞVÍ NEIKVÆÐA: Þótt þetta hljómi illa getið þið sparað
ykkur talsverðan tíma að heyra fyrirfram um vandamál sem fólk hefur lent í með
vörur eða seljanda. Þar að auki getur ákveðið vandamál komið til vegna þess að
tölva þess sem skrifar er sett upp á óvenjulegan hátt, en ef þið verðið vör við að
margir lendi í svipuðum vanda er líklegt að þar liggi eitthvað að baki.
• ÞEFIÐ SÉRFRÆÐINGANA UPPI: Ef þið viljið stafræna myndavél skuluð þið
fara á vef sem sérhæfir sig í notendagagnrýni um stafrænar myndavélar, eins og
t.d. PCPhotoReview.com. Fólk sem sendir inn umfjallanir á slíkum vefjum eru
oftast með mikla sérfræðiþekkingu og veitir þar af leiðandi ítarlegri upplýsingar.
• SKELLIÐ YKKUR Í UMRÆÐUNA: Ef allt annað bregst skuluð þið fara í Google-
hópana (groups.google.com) og leita að viðkomandi vöru eða seljanda í Usenet-
gagnasafninu. Þar má oft finna mjög nytsamlega ráðgjöf ef þið eruð tilbúin til að
grafa ykkur í gegnum fjölda umfjallana sem oft á tíðum fara langt frá uppruna-
legu viðfangsefni.
Nýtið notendagagnrýni til hins ítrasta