Tölvuheimur - 01.08.2003, Page 41

Tölvuheimur - 01.08.2003, Page 41
Á HEIMASLÓÐ Lesandi vildi vita hvernig hann gæti á ferðalögum tengst heimilismakkanum með PowerBook tölvunni. Hann hafði heyrt að OS X stýrikerfið gerði ráð fyrir þessu ef IP tala heimilistölvunnar væri slegin inn í Connect To Server glugg- ann á fartölvunni. Vandinn var bara sá að IP tala Macintoshtölvu heimilisins var síbreytileg og því vandséð hvernig ætti að bera sig að við að tengjast. Það er hárrétt athugað að við og við er skipt um IP tölur, sérstaklega ef um er að ræða ISDN eða upphringitengingu. En til að tengjast makkanum yfir Netið þarf maður að vita IP töluna sem honum hefur verið úthlutað. Internetþjónustur bjóða þó gjarnan upp á fasta IP tölu gegn ákveðnu gjaldi, en önnur leið til að komast að IP tölunni og fá þannig aðgang að heimamakkanum er að nýta sér þjónustu tengifyrirtækja (e. dynamic DNS service þar sem DNS stendur fyrir Domain Name System) sem halda utan um og miðla IP tölum. Þjónustur af því tagi virka eins og skrifstofustjórar fyrir IP tölurnar ykkar. Lítið forrit sem sett er upp á heimilis- makkanum sendir þjónustunni IP töluna í hvert skipti sem tölvan er tengd Netinu. Samband við tölvuna fæst svo með því að slá inn (í tölvuna þar sem maður er staddur) slóð til tölvunnar sem tengiþjónustan hefur úthlutað. Slóðin er á forminu makkinnþinn.dynamicdnssservice.com. Þarna er makkinnþinn nafnið sem þið hafi valið á heimilistölvuna og dynamicdnssservice.com netfang þjónustunnar, t.d. bagobolts.no-ip.com. Þegar svo þið viljið tengjast heimilistölvunni þar sem þið eruð stödd einhvers staðar víðs fjarri veljið þið bara Connect to Server úr Go valmynd OS X stýrikerfisins, sláið inn slóðina sem tengiþjónustan hefur úthlutað tölvunni ykkar og smellið á Connect. Ef þið eruð svo með merkt við möguleikann á að deila skrám (e. File Sharing) í Sharing system valmyndinni ættuð þið að geta fært skrár til og frá heimilistölvunni. Eins geta aðrir, ef kveikt er á Personal Web Sharing möguleikanum, tengst tölvunni ykkar og skoðað vefsíður sem vistaðar eru í Sites möppum hennar. Á eftirfarandi vefslóð Google leitarþjónustunnar er að finna lista yfir helstu tengiþjónustur: http://directory.google.com- /Top/Computers/Software/Inter- net/Servers/Address_Manage- ment/Dynamic_DNS_Services. Flestar bjóða þær upp á ókeypis skráningu og aðgang að viðeigandi hugbúnaði fyrir makkann. UMFJÖLLUN UM UMSLÖG Með útgáfu iSync færði lesandi nokkur sig frá því að nota Palm Desktop umsýsluforritið yfir í að nota Apple Address Book og iCal. Hann segist þó sakna þeirra eiginleika Palm Desktop að hægt var að velja hóp heimilisfanga og prenta umslög og langar að vita hvort þetta sé hægt með Address Book heimilisfangaskránni. Með hjálp viðbótarhugbúnaðar ræður Address Book við verkið. Ef þið viljið prenta mörg heimilisföng í einu á umslög skuluð þið huga að forriti Erics Hansons, iDress 1.3 (www.incarna.com). Með þessu nytjatóli má sníða til umslög og Avery límmiða með upplýsingunum úr völdum hópum í Address Book (sjá mynd hér að ofan). Veljið bara hóp heimilisfanga sem þið viljið prenta (úr uppflettivalmynd iDress úr Address Book Group), veljið á hvað skal prenta (t.d. umslag eða límmiða) og veljið svo stærðina (t.a.m. staðlað skjalaumslag af stærð númer tíu). Smellið á Go hnappinn og iDress býr til prentsnið fyrir umslögin eða límmiðana í Adobe Acrobat Reader (nauðsynlegt er að hafa Acrobat Reader skráðan sem sjálfvalið forrit tölvunnar fyrir PDF skjöl). Ef þið þurfið bara að prenta eitt umslag í einu ættuð þið að hlaða niður ókeypis forritinu Snail Mail frá Nik Sands (www.nixanz.com). Forritið er einfalt í notkun og birtir lista yfir öll nöfnin í heimilisfangaskránni. Setjið bara inn stærð umslagsins sem prenta skal á og veljið viðtakanda úr listanum (heimilisfang sendanda sækir forritið svo í upplýsingarnar sem skráðar hafa verið inn í My Card). Stillið svo prentarann á að prenta umslög og smellið á Print Envelope Immediately til að prenta umslagið þá og þegar. VIRKIR HLEKKIR Lesandi hafði samband og vildi vita hvernig fara ætti að því að senda skilaboð með virkum hlekkjum í vefsíður úr póstforrit- inu Apple Mail. www.heimur.is 41Ágúst Tölvuheimur 2003 Apple Address Book inniheldur takmarkaðan fjölda svæða til að slá inn upplýsingar. Til að komast hjá því að þurfa að búa til ný svæði í hvert sinn sem færðar eru upplýsingar inn í Address Book þá búið þið til kort sem þið notið sem sniðmát (e. template) og kallið það nafn á borð við A, Autt kort. Á því korti hafið þið öll þau svæði sem þið þurfið. Síðan þegar búa á til nýjar færslur notið þið copy og paste til að afrita sniðmátið og ýtið á 2-L til að færa inn nýjar upplýsingar. M A K K A - N E Y Ð A R L Í N A N Christopher Breen Ekkert stress með iDress iDress hugbúnaður Erics Hansens gerir manni kleift að prenta út umslög í hrönnum þar sem notuð eru heimilisföng úr Apple Address Book.

x

Tölvuheimur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tölvuheimur
https://timarit.is/publication/1839

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.