Tölvuheimur - 01.08.2003, Blaðsíða 42
Ef þið viljið alltaf hafa þann háttinn á að hlekkir í bréfum
séu virkir veljið þið Preferences úr Mail valmynd Mail for-
ritsins, smellið á Composing hnappinn í glugganum sem
birtist og veljið svo Rich Text úr Format uppflettivalmynd-
inni. Ef þið aftur á móti sendið alla jafna skilaboð sem „plain
text“ (hinn valkosturinn í uppflettivalmyndinni) búið þið bara
til ný skilaboð og veljið Make Rich Text (shift-2-T). Þegar
þessi uppsetning bréfa hefur verið valin getið þið slegið inn
vefföng (e. URL) sem viðtakendur skilaboðanna sjá sem virka
hlekki sem smella má á. Eins er hægt að draga myndir inn í
meginmál bréfanna þar sem þær eiga að birtast (en það kann
að fara eftir stillingum póstforrita viðtakenda bréfanna
hvernig þær koma fram).
Hafið þó eftirfarandi varnaðarorð í huga: Rich Text upp-
setningu ber að nota sparlega. Margir kjósa fremur að fá bréf
sem strípaðan texta (e. plain text) vegna þess að þá eru þau
auðveldari aflestrar og opnast hraðar. Þá hiksta margir póst-
listar á Rich Text skilaboðum (og sendandinn fær að öllum
líkindum á sig harðorðar og opinberar skammir frá
umsjónarmanni listans).
SKRÁR SEM EKKI LÁTA AÐ STJÓRN
StuffIt skrá nokkur á skjáborði tölvu með OS X stýrikerfi
olli lesanda blaðsins hugarangri. Hann gat ekki með nokkru
móti komið henni í ruslið. Skráin lítur út eins og hún hafi
rifnað í tvennt og viðvörunin „Item is being used by another
task right now“ (eða í lauslegri þýðingu „skráin er í
notkun“) birtist þegar reynt er að setja hana í ruslið.
Ef einungis á að henda einni skrá er hægt að opna Terminal
(nokkurs konar skipanaglugga, en hann er að finna í Utilities
möppunni), skrifa inn rm –f og svo bil, draga síðan vand-
ræðaskrána inn í Terminal gluggann til að fá fram slóðina í
hana og slá svo á Return hnappinn á lyklaborðinu. Skránni
verður þar með eytt án þess að farið verði fram á frekari
staðfestingar.
Til að henda möppu (eða directory á Unix máli) er slegið
inn rm –R og svo einu sinni á bilstöngina. Vandræðamappan
er dregin inn í Terminal gluggann til að kalla fram slóðina og
ýtt á Return. Farið samt mjög varlega með rm –R skipunina.
–R stendur fyrir „recursive“ (eða endurkvæm) og þýðir að
möppunni með öllu innihaldi verði fargað fyrir fyrir fullt og
allt (ekki bara sett í ruslið) án nokkurra viðvarana. Lendi
maður í því að draga ranga möppu í Terminal gluggann og
ýta á Return, þá er hún horfin að fullu. Svo er líka enn verra
að slá inn rm –R *, því þá verður öllu innihaldi virku möpp-
unnar (að öllum líkindum notendamappa viðkomandi) eytt.
BANNAÐ AÐ HENDA Í RUSLIÐ
Starfsmaður á barnabókasafni greindi frá því að á safninu
væru fjórar gamlar iMac tölvur þar sem boðið væri upp á
leiki á geisladiskum fyrir börn. Vegna þess að leikirnir virka
ekki í OS X umhverfi er notast við OS 9.2. Vandinn sem
starfsmaðurinn lenti í er að bæði börnin og foreldrar þeirra
eru gjörn á að fjarlægja diskana úr tölvunni með því að
draga íkon þeirra í ruslið og vildi vita hvernig mætti koma í
veg fyrir þetta framferði þeirra.
Fyrsti kosturinn er að hætta notkun geisladiskanna. Keyrið
einfaldlega upp Disk Copy — sem finna má í Utilities möpp-
unni í Applictions möppunni (Mac OS 9) í rót harða drifsins
— og dragið diskinn yfir í Disk Copy gluggann. Þegar Save
Disk Image As valmyndin kemur upp veljið þið Read Only úr
Format uppflettivalmyndinni og 663,000 K (CD-Rom, 12
cm, Full) úr Size uppflettivalmyndinni. Smellið á Save og
mynd geisladisksins verður vistuð á harða drifið.
Færið nú afritið sem tekið hefur verið af geisladiskinum yfir
í möppu sem þið komið fyrir djúpt í iðrum iMac tölvunnar
— þangað sem ólíklegt verður að teljast að börn, eða
foreldrar, þeirra hætti sér. Opnið svo Launcher tól Apple
(ræsivalmynd) og dragið geisladisksafritið þangað. Svo þegar
smellt er á mynd disksins er hún keyrð upp rétt eins og um
geisladisk í drifi væri að ræða. Jafnvel þótt enn sé hægt að
draga „diskinn“ í ruslið er hann samt enn aðgengilegur með
einum smelli í ræsivalmynd makkans.
Já, já, allt í lagi. Það er ennþá hægt að henda diskunum í
ruslið. Ef þið viljið grípa til harkalegri aðgerða er líka hægt að
beita fyrir sig forritum sem skerða athafnafrelsi notenda
tölvunnar til muna.
Eitt slíkt nytjatól er On Guard frá Power On Software
(www.poweronsoftware.com). Einn af fjölmörgum þáttum
forritsins er hæfileikinn til að meina notendum að fjarlægja
diska úr tölvum. Þegar þið eruð svo tilbúin í diskaskiptin þarf
bara að slá inn aðgangsorð til að endurheimta fulla stjórn á
vélinni. Útgáfa On Guard sem hlaða má niður af Netinu
kostar 60 Bandaríkjadali og er forritið samhæft útgáfum OS
7.X til 9.X af stýrikerfum makkans, en ekki OS X, enn sem
komið er.
www.heimur.is42 Ágúst Tölvuheimur 2003
Ef þið hafið sett upp lófatölvuhluta iSync — þ.e. Install iSync Palm Conduits
pakkann — og reynið svo í gamni síðar að samstilla lófatölvuna við Palm
Desktop þá kemur fljótlega í ljós að iSync hefur tilhneigingu til að vera með
óþarfa yfirgang við aðrar samstillingarrásir. Dæmi um yfirganginn er að þið
komið ekki til með að geta samstillt lófatölvuna við Palm Desktop, Microsoft
Enourage eða Now Up-to-Date & Contact frá Now Software.
Þegar settar eru upp lófatölvurásir iSync (e. iSync Palm conduits) færir
uppsetningarforritið allar rásir sem það telur vera ósamhæfðar í eftirfarandi
möppu: Library: Application Support: Palm HotSync: Disabled Conduits. Ef þið
komist svo að raun um að þið þurfið öflugri samhæfingu við forrit sem þið
notuðuð áður verðið þið að færa rásirnar sem gerðar hafa verið óvirkar úr
möppunni yfir í Library: Application Support: Palm HotSync: Conduits og stilla
svo rásirnar með HotSync Manager tóli Palm.
Ó U M B E Ð I N R Á Ð
M A K K A - N E Y Ð A R L Í N A N