Tölvuheimur - 01.08.2003, Side 44

Tölvuheimur - 01.08.2003, Side 44
Drjúgur hluti þessarar mánaðarlegu umfjöll- unar er helgaður öryggismálum og friðhelgi einkalífsins á Netinu. Ráðleggingarnar hafa hins vegar verið tíndar smám saman í lesendur þannig að það getur verið erfitt að muna (jafn- vel fyrir mig) allt sem maður ætti að vera að gera til að verja tölvuna og gögnin í henni. Í þessum mánuði hef ég safnað saman ráðlegg- ingum í öryggisgátlista til að veita heildarsýn yfir málið. Þó að ekki sé fjallað til hlítar um hvert atriði á listanum ætti hann samt sem áður að gefa ágæta mynd af því sem þið þurfið að vita og hvað þið þurfið að gera til að forðast veirur í tölvupósti, losna við snuðrara (njósna- Öryggisgátlisti til að verja tölvuna og gögnin hugbúnað) og stöðva árásir á tölvuna ykkar eða á netkerfið. Til að lesa ykkur frekar til um þetta skuluð þið lesa greinina „Internetið lagað“ í maíhefti Tölvuheims. LOKIÐ Á TÖLVUÞRJÓTA OG VEIRUR Að vera tengdur Netinu án þess að nota eld- vegg eða veiruvarnir er eins og að skilja útidyrahurðina eftir ólæsta þegar þið farið í sumarfrí – ef þið hafið heppnina með ykkur er allt á sínum stað þegar þið komið aftur heim, en það er samt áhætta sem fáránlegt er að taka. Eldvegg á allar tölvur: Jafnvel þó að þið séuð með eldveggjarvélbúnað á milli tölvunnar ykkar eða netkerfisins og Netsins þá ættuð þið samt sem áður að setja upp eldveggjarhug- búnað. Þó svo að hægt sé að stilla vélbúnaðinn þannig að hann loki á eða hleypi í gegn gögnum sem koma og fara um tengi 500 t.d. þá veit hann ekki hvaða forrit í tölvunni það er sem er að senda og taka á móti gögnunum. Eldveggjarhugbúnaður spyr í hvert sinn hvort hann ætti að leyfa tilteknu forrit að eiga sam- skipti um ákveðið tengi (sjá MYND 1) þannig að þið getið sagt hugbúnaðinum að Frábær- skyndiskilaboð.exe megi nota tengið en Vonditrójuhesturinn.exe megi það ekki. Notið tvíátta (e. bidirectional) eldvegg: Eld- veggurinn í Windows XP er betri en enginn en þó munar ekki miklu. Ókeypis eldveggir eins og ZoneAlarm 3 frá Zone Labs (find.pc- world.com/30950) og Personal Firewall 5 frá Sygate (find.pcworld.com/30953) fylgjast með og stjórna umferð sem fer inn á netkerfið og frá því og geta þannig lokað á tengingar sem fyrrnefnt Vonditrjóuhesturinn.exe forritið eða raunverulegt bakdyraforrit koma á. Ekki sleppa veiruvörninni: Ef þið eruð ekki með veiruvörn í tölvunni skuluð þið hætta að lesa þessa grein og fá ykkur slíka vörn eins og skot og halda síðan áfram að lesa þegar þið hafið sett hana upp. Ef þið eruð með Windows er það hreint og klárt ábyrgðarleysi að vera ekki með veiruvörn vegna þess hversu miklu af veirum er beint sérstaklega gegn því stýrikerfi. Jafnvel þótt þið teljið ykkur vita hvernig þið eigið að forðast veirur þá getið þið lent í því að fá veiru í tölvuna sem notar alveg nýja og óvænta aðferð. Ef tölvan ykkar smitast þá eru góðar líkur á því að aðrir í fjölskyld- unni, vinir, vinnufélagarnir og aðrir sem eru á netfangalistanum ykkar verði einnig fyrir barðinu á veirunni. Ef þið viljið ekki borga fyrir hágæða hug- búnaðarpakka eins og Norton AntiVirus frá Symantec skuluð þið að minnsta kosti hala www.heimur.is44 Ágúst Tölvuheimur 2003 SVONA GERUM VIÐ Netið

x

Tölvuheimur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvuheimur
https://timarit.is/publication/1839

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.