Tölvuheimur - 01.08.2003, Side 45

Tölvuheimur - 01.08.2003, Side 45
niður ókeypis AVG 6 Anti-Virus System frá Grisoft (find.pcworld.com/33218). AVG er ekkert sérstaklega lagið við að grípa nýjustu þekktu veirurnar sem leika lausum hala á Netinu að mati breska veiruvarnatímaritsins Virus Bulletin (find.pcworld.com/32798). Vegna þessa galla gæti verið álíka mikil vörn í því að vera með AVG og að hafa enga veiru- vörn ef þið ræsið hvert einasta viðhengi sem þið fáið í tölvupósti án frekari umhugsunar. Ef þið búið hins vegar yfir öðrum varnarað- ferðum (eins og t.d. tölvupóstforriti sem keyrir ekki skriftu-skrár og heilbrigðri tortryggni í garð tölvupóstviðhengja) þá mun það að minnsta kosti verja ykkur fyrir þeim veirum sem eru á ferðinni árlega. Ég hef notað AVG í meira en ár með góðum árangri og litlum vandræðum, en það er samt sem áður tímabil sem ég tel vera þjálfun í áhættu- sömu líferni. UPPFÆRIÐ ALLT, OFT Ein af auðveldustu leiðunum til að koma í veg fyrir að veirur nýti sér galla í forritum ykkar og vélbúnaði er að hala niður og setja upp reglu- legar uppfærslur (stundum einnig kallað hug- búnaðarplástrar (e. software patches) sem söluaðilar bjóða upp á. Á Windows Update heimasíðu Microsoft fyrir Windows upp- færslur er að finna mikið magn af úrbætum fyrir forrit frá fyrirtækinu. Heildarumfjöllun um mikilvæga plástra sem og leiðbeiningar um hvernig eigi að hala þeim niður og setja þá upp er að finna í greininni Internetið lagað sem minnst var á hér að framan. STILLIÐ Á ÖRYGGI Þegar þið hafið uppfært hug- búnaðinn með nýjustu plástrunum og villulagfæringum skuluð þið athuga öryggisstillingar forritsins. Forritin sem þið notið daglega bjóða mörg upp á líttþekkta möguleika sem geta hjálpað til við að bægja frá veirum, losna við dúsur og halda snuðrurum frá tölvunni og net- kerfinu. Skellt í lás með vafranum: Þið getið halað niður og sett upp grilljón mismun- andi tól sem grípa dúsurnar og koma í veg fyrir að heimasíður geri eitthvað óæskilegt við tölv- una ykkar. Með vafranum getið þið hins vegar einnig náð góðri stjórn á þeim síðum sem þið skoðið. Í grein minni „Heill heimur af Netútvarpsstöðvum“ í októberheftinu frá því í fyrra (hægt að lesa á ensku á find.pc- world.com/32804), fjallaði ég um ráð fyrir Internet Explorer 6, Netscape 6.2, og Opera 6.x til að losna við dúsurnar og í greininni „Hafið varann á: Eyðið dúsunum og tæmið History möppuna“ í aprílheftinu á þessu ári (á ensku á find.pcworld.com/ 32807) bauð ég upp á leiðbeiningar um hvernig ætti að eyða dúsunum. Hér á eftir kemur stutt upprifjun á leiðbeiningum fyrir IE 6, ásamt uppfærðum leiðbeiningum fyrir Mozilla 1.1 og Netscape 7. Í Internet Explorer veljið þið Tools>Internet Options og smellið á Privacy flipann. Til að hafna eða samþykkja dúsur frá einstökum heimasíðum smellið þið á Edit hnappinn, sláið inn vefslóðina og smellið annaðhvort á Block eða Allow. Þegar þið hafið lokið ykkur af við að slá inn vefslóðir og stillingar smellið þið á OK til að loka svarglugganum. Til að loka á dúsur frá þriðju aðilum (sem tengjast venjulega auglýsingum eða einhvers konar markaðs- setningarherferðum), smellið þið á Advanced hnappinn á Privacy flipanum hakið við Override automatic cookie handling, veljið Block í „Third Party Cookies“ og smellið tvisvar á OK. Til að skoða og eyða dúsunum sem hafa verið vistaðar veljið þið Tools>Internet Options og smellið síðan á General flipann, Settings hnappinn og síðan View Files hnappinn. Í glugganum sem birtist hægrismellið þið á dúsu og veljið Delete. Til að fjarlægja allar dúsur sem IE vistar veljið þið Tools>Internet Options og smellið síðan á General flipann og svo á Delete Cookies hnapp- inn. Ef þið notið Mozilla 1.1 eða Netscape 7 veljið þið Edit>Preferences tvísmellið á Privacy & Security til að fá undirvalmöguleikana þar og veljið síðan Cookies. Til að loka á allar dúsur frá þriðju aðilum skuluð þið leita hægra megin í glugganum að valmöguleikanum Enable cookies for the originating web site only og smella á hann. Til að skoða og eyða dúsum smellið þið á Manage Stored Cookies hnappinn veljið dúsu í listanum og smellið á Remove Cookie hnappinn. Veljið Remove All Cookies til að hreinsa burt allar dúsurnar. Ef þið viljið losna við dúsur frá ákveðinni heimasíðu til frambúðar skuluð þið haka við Don´t allow removed cookies to be reaccepted later og eyðið síðan dúsunni. (Athugið að dúsustillingar fyrir hverja heimasíðu fyrir sig sem maður hefði búist við að birtust þegar maður smellti á Cookies Sites flipann í Mozilla 1.1 og Netscape 7 virðast ennþá vera í vinnslu). www.heimur.is 45Ágúst Tölvuheimur 2003 EFNISYFIRLIT 44 NETIÐ Verjið tölvuna og gögnin með þriggja skrefa gátlista fyrir friðhelgi einkalífsins og öryggismál. 47 WINDOWS Sneggri öryggisafritun fyrir allar útgáfur Windows; Ákveðið sjálf hvaða skráar- viðskeyti eru falin. 49 SKREF FYRIR SKREF Ekki henda gamla PCI-kortinu. Breytið því í skráarnetþjón, prentþjón eða notið það til að deila nettengingu. 51 VÉLBÚNAÐUR Góð ráð varðandi aflgjafa. Hversu mikið afl tölvan þarf fer eftir jaðartækjunum sem þið bætið við. 53 SPURT OG SVARAÐ Hvernig á að endurstilla Registry- möppuna, auðveld öryggisafritun á net- kerfi. Hvernig hægt er að komast hjá göllum í Power Toys fyrir Windows. A MYND 1: Eldveggjarhugbúnaður getur komið í veg fyrir að trójuhestar og önnur óæskileg forrit hafi samskipti við aðrar heimasíður MYND 2: Náið í nýjustu öryggisplástrana fyrir Windows, Internet Explorer og Outlook Explorer hér.

x

Tölvuheimur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvuheimur
https://timarit.is/publication/1839

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.