Tölvuheimur - 01.08.2003, Page 46
Tæklið tölvupóstógnina: Ef þið komið í veg
fyrir að tölvupóstforritið ykkar keyri skriftu-
skrár og viðhengi sem ykkur berast og þið
uppfærið forritið þannig að það geri við
öryggisgalla sem nýbúið er að uppgötva þá eru
góðar líkur á því að þið getið haldið veirum og
trójuhestum frá tölvunni. Nýjustu útgáfurnar
af Outlook og Outlook Express eru með sjálf-
gefnar stillingar þannig að lokað er á allar
skriftuskrár og hættuleg viðhengi með því að
setja allan póst á HTML-sniði á sérstakt
öryggissvæði (til að skoða öryggisstillingarnar í
þessum forritum veljið þið Tools>Options og
smellið á Security flipann).
Í Netráðleggingum (sem lesa má á ensku á
find.pcworld.com/32810) stakk ég upp á því
við lesendur að þeir gerðu forskoðunar-
möguleikann óvirkan til að gulltryggja að
veirusýktur tölvupóstur yrði óvirkur. Til að
gera forskoðunargluggann í Outlook Express
óvirkan veljið þið View>Layout og takið hakið
við Show preview pane af. Í Outlook smellið þið
á View og takið hakið af Preview Pane. Til að
fela forskoðunargluggann í Mail & Newsgroups
forritinu í Mozilla 1.1 og Netscape 7 veljið þið
View>Show/Hide>Message Pane.
Nokkrir lesendur höfðu samband og sögðu að
þeir þyrftu samt sem áður að hafa
einhverja leið til að gægjast í póstinn
til að sjá hvers konar skriftur eða
skrár væri þar að finna. Til að gera
þetta í Outlook Express án þess að
opna póstinn hægrismellið þið á
skeytið veljið Properties smellið á
Details flipann og síðan á Message
Source hnappinn. Nú getið þið séð
nákvæmlega allan texta skeytisins og
einnig heiti og tvíundarkóðað innihald við-
hengja. Stækkið gluggann þannið að auðveldara
sé að skoða þetta. Til að skoða á öruggan hátt
skrár í viðhengjum í Outlook hægrismellið þið á
póstinn og veljið View Attachments (sjá MYND
3). Til að skoða texta skeytisins (þ.e. heiti
skránna sem fylgja með sem viðhengi) í Mozilla
eða Netscape veljið þið póstinn og síðan
View>Message Source.
NOTIÐ MAC-SÍU Á ÞRÁÐLAUSA
STAÐARNETINU
Ef þið eruð með þráðlaust netkerfi er
ekki galið að nota margs konar
öryggismöguleika til að tryggja
öryggið. Í greininni „Út með Net-
óværuna inn með öryggið“ í síðasta
janúar/ febrúarblaði (á ensku á find.pcworld.
com/ 32813) fjallaði ég um nokkrar leiðir til að
bægja frá tölvuþrjótum sem keyrðu um til að
brjótast inn á þráðlaus net. Einn viðbótar-
öryggismöguleiki sem þráðlausi beinirinn eða
inntakspunkturinn ykkar býður upp á er
svokallað aðgangseftirlit með netfangasíun (e.
media access control (MAC) adress filtering).
Hvert netkerfistengi á staðarneti – þráðlausu
eða kapalneti – er með sérstakt netfang sem er
einu stigi fyrir neðan IP-tölu þess í stigveldi
netkerfissamskiptastaðla. Margir
beinar, einnig þráðlausir gera ykkur
kleift að takmarka aðgang þráðlausra
neta við ákveðinn fjölda MAC-netfanga sem
eru á sextándatöluformi. Þið þurfið að ná í
leiðbeiningarhandbókina sem fylgdi með bein-
inum eða inntakspunktinum til að setja þetta
upp og kafa síðan ofan í netkerfiskort hverrar
tölvu sem er tengd á netið til að finna og skrifa
niður MAC-netfang hennar eða raunverulegt
netfang hennar (sjá MYND 4). Líkt og með
IP-tölur þá er auðvelt að falsa MAC netföng.
Þar sem hún dulkóðar ekki það sem fer um
netið þá gerir MAC-síun ein og sér netkerfið
ekki öruggara. En hún er samt sem áður ein
hindrun til viðbótar til að fæla frá tölvuþrjóta
þannig að þeir snúi sér að netkerfi sem auð-
veldara er að brjótast inn í.
www.heimur.is46 Ágúst Tölvuheimur 2003
S V O N A G E R U M V I Ð N I Ð U R H A L M Á N A Ð A R I N S
Streamripper 32
Ég hlusta oft á streymandi Netútvarpsstöðvar til
að kynnast tónlist sem ekki er spiluð á
útvarpsstöðvunum í mínu nágrenni. Oft kaupi
ég geisladisk eftir að hafa heyrt í tónlistar-
manninum á Netinu. Það kemur einnig oft fyrir
að ég kemst að því að mér líki við lag 10
sekúndum eftir að það er búið og þá er of seint
að sjá í spilaranum hvað lagið heitir og með
hverjum það er.
Það er að sjálfsögðu til lausn við þessu.
Ókeypis Streamripper 32 tólið frá Oddsock.org
með opnum kerfiskóða (find.pcworld.com/
33866) tekur upp tónlistarstrauminn, brýtur
hann niður í einstök lög og vistar þau á harða
diskinum ásamt ID3 merkjum (með heiti
lagsins, flytjanda og lengd). Það er jafnvel hægt
að stilla það þannig að það grípi einungis þau
lög sem þið ákveðið. Þetta er hins vegar ekki
nýr Napster þannig að þeir hjá Stefi geta alveg
verið rólegir yfir þessu. Gæðin á flestum
útsendingum á streymandi tónlist eru verulega
lakari en á geisladiskum og á mörgum stöðvum
renna lögin saman eða sett eru inn á þau skila-
boð frá útvarpsstöðvunum sjálfum þannig að
það sem kemur út úr því að ná í þess háttar
streymandi tónlist hefur frekar upplýsingagildi
um listamanninn og lagið heldur en að vera
eitthvað sem kemur í stað geisladiska.
MYND 3: Skoðið
viðhengi á öruggan hátt
í tölvupóstforritinu með
því að skoða texta sem
segir til um uppruna
skeytisins (source) eða
með því að nota
þennan vallista í
Outlook.
MYND 4: Haldið þráðlausum þrjótum í hæfi-
legri fjarlægð með því að takmarka aðgang
við þekkt MAC- netföng, eins og sýnt er í
þessum Windows XP svarglugga.