Tölvuheimur - 01.08.2003, Blaðsíða 50

Tölvuheimur - 01.08.2003, Blaðsíða 50
S V O N A G E R U M V I Ð Samnýtið diskana. Tvísmellið á My Computer, hægrismellið á íkonið fyrir diskinn eða möppuna sem þið viljið samnýta og veljið Sharing. Fylgið leiðbeiningunum á skjánum til að setja samnýtinguna upp. Þið getið tilgreint ótak- markaðan aðgang, einungis lesaðgang (read-only) eða aðgang sem háður er aðgangsorði. Endurtakið þetta fyrir alla aðra diska. Gerið skráasamnýtingu virka. Hægri- smellið á Network Neighborhood (Windows 98) eða My Network Places (ME, 2000 eða XP) og veljið Properties. Í 98 eða ME smellið þið á File and Print Sharing hnappinn, hakið við I want to be able to give others access to my files, og smellið á OK. Í 2000 eða XP hægrismellið þið á staðarnetsteng- inguna veljið Proper- ties og hakið við File and Printer Sharing for Microsoft Net- works. Endurræsið síðan tölvuna. Netkerfistengd tölva sem notuð er til að geyma skrár þarf ekki að vera mikill vinnuþjarkur. Ef gamla tölvan ykkar er með 20 GB harðan disk eða stærri er líklega nóg pláss fyrir hendi fyrir einfalda skráasamnýtingu og öryggisafritun. Ef þið viljið hins vegar geyma mikið magn af skrám, taka stærri öryggisafrit eða geyma stafræna miðla (myndir eða mp3-skrár), er líklega ráðlegt að bæta við stærri hörðum diski. 1 VERKEFNI: SKRÁAMIÐLARI Á NETKERFI Örgjörvi: Pentium 133 eða hraðari Vinnsluminni: 32MB eða meira Harður diskur: 10GB eða stærri Stýrikerfi: Windows 98 eða nýrra Netkerfiskort nauðsynlegt: Já Önnur ráðlögð viðbót: Stór (80 GB+) harður diskur (frá 10.000 krónum) 2 Gerið Printer Sharing möguleikann virkan. Fylgið leiðbeiningum úr verkefninu hér á undan þar sem sagt er hvernig eigi að gera samnýtingu skráa virka. Í 98 og Me skuluð þið einn- ig haka við I want to be able to allow others to print to my printer(s) í svarglugganum í fyrsta skrefi í verkefninu hér á undan. Endurræsið síðan tölvuna. Að kaupa prentara fyrir hverja tölvu á heimilinu getur verið ansi dýrt. Það er auðveldara fyrir alla ef einn prentari er samnýttur. Þið getið notað gamla tölvu sem prentaramiðlara og síðan sett prentarann á stað sem hentar öllum. Athugið að þið getið sameinað skráa- og prentarasamnýtingu á einni tölvu. 2 VERKEFNI: PRENTMIÐLARI Á NETKERFI Örgjörvi: Pentium 133 eða hraðari Vinnsluminni: 32MB eða meira Harður diskur: 1GB eða stærri Stýrikerfi: Windows 98 eða nýrra Netkerfiskort nauðsynlegt: Já Önnur nauðsynleg viðbót: Prentari Samnýtið prentarann. Í Windows 98 og Me eða 2000 veljið þið Start>Sett- ings>Printers, í XP veljið þið Start>Printers and Faxes. Hægrismellið á íkon prentarans sem þið viljið samnýta og veljið Sharing. Fylgið leiðbeiningunum. Mögulegt er að krefjast að- gangsorðs til að fá aðgang að prentar- anum. 3Setjið prentarann upp. Fylgið leiðbein- ingum framleiðandans um hvernig eigi að tengja hann og hvaða rekla eigi að setja upp. 1 Að samnýta Nettengingu er að verða sífellt vin- sælla á heimilum og hjá smærri fyrirtækjum. Það er alveg rétt að þið getið keypt ykkur sérstakan beini til að nota sem miðlægan tengipunkt fyrir sam- nýtta breiðbands- eða upphringitengingu á Netið, en gamla tölvan er alveg tilvalinn kostur á lágu verði. VERKEFNI: SAMNÝTINGARPUNKTUR FYRIR NETTENGINGU Örgjörvi: Pentium 266 eða hraðari Vinnsluminni: 64MB eða meira Harður diskur: 5GB eða stærri Stýrikerfi: Windows 98 SE eða nýrra Netkerfiskort nauðsynlegt: Já Önnur nauðsynleg viðbót: Mótald, annað netkerfiskort eða USB-tengi. Setjið mótaldið eða netkerfiskortið/kortin í tölvuna. Ef þið eruð með upphringitengingu verðið þið að vera með mótald. Ef þið eruð með breiðbandstengingu þurfið þið netkerfiskort til að tengjast staðarnetinu ykkar (sjá 3. lið almenna undirbúningsins. Þið þurfið annað netkerfiskort fyrir kapal eða DSL mótaldið, nema þið séuð með USB breiðbandsmótald. 1 Setjið upp Internet Connection Sharing. Í 98 eða Me opnið þið Add/Remove Programs í Control Panel möppunni og veljið Windows Setup flipann. Tvísmellið á Internet Tools (98) eða Communications (Me). Hakið við Internet Connection Sharing, smellið á OK og keyrið Internet Connection Sharing hjálparálfinn eða Home Networking hjálparálfinn. Í 2000 eða XP hægrismellið þið á My Network Places veljið Properties hægrismellið á breiðbandsmótaldstenginguna og veljið Properties. Í 2000 smellið þið á Sharing flipann og hakið við Enable Internet Connection Sharing for this connection, í XP smellið þið á Advanced flipann og veljið Allow other network users to connnect through this computer´s Internet connection. 2 www.heimur.is50 Ágúst Tölvuheimur 2003
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tölvuheimur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvuheimur
https://timarit.is/publication/1839

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.