Tölvuheimur - 01.08.2003, Qupperneq 51

Tölvuheimur - 01.08.2003, Qupperneq 51
Þær líta ekki út fyrir það, en tölvur eru einstak- lega matvönd grey. Þær þrífast einungis á óhindruðum, nákvæmlega skömmtuðum raf- straumi. Ef þær fá of litla orku fara þær að hegða sér undarlega eða slökkva alveg á sér og ef þær fá of mikið steikjast agnarsmáu rásirnar í þeim varanlega (hver þeirra er fjórðihundraðasti af breidd mannshárs eða þynnri. Hér á eftir fylgir örlítil næringarráðgjöf fyrir tölvuna ykkar. ÖRYGGIÐ FYRST Mesta ógnin sem steðjar að tölvunni er skyndi- leg aukning – eða toppur – í magni þess raf- straums sem flæðir til hennar. Að öllu jöfnu þá stjórnar aflgjafi tölvunnar rafmagnsflæðinu úr innstungunni í veggnum yfir í tölvuna. Ef raf- magnslína fellur um koll, eldingu slær niður, eða grafa slítur jarðstreng getur spennuhnykkur sem af því hlýst auðveldlega verið aflgjafanum ofviða og sent banvænan rafstraum beint í móður- borðið. Þið skuluð verja móðurborðið með hágæða spennuhnykksvörn. Þið getið búist við að eyða að minnsta kosti 2- til 3.000 krónum (20-30$) í slíkan varnarbúnað, ódýrari gerðir veita líklega ekki þá vörn sem tölvan ykkar þarfnast. Spennuhnykksvörnin sem þið kaupið ætti að uppfylla UL 1449-staðal Underwriters Labora- tories (á flestum er það tilgreint á umbúðunum). Ef oft eru grafnar upp götur þar sem þið búið eða ef rafmagnsdreifikerfið er óstöðugt skuluð þið fá ykkur spennuhnykksvörn með ljósi sem sýnir að tækið virki rétt. Margar spennuhnykksvarnir hætta að geta varist of miklum rafstraumi eftir að hafa fengið í sig háspennuhnykk einu sinni. Þar sem tækið sendir ennþá straum í tölvuna er ekki hægt að vita hvort það hafi tapað varnargetunni ef það er ekkert ljós sem segir til um það. Athugið að á sumum varnarbúnaði eins og Smart- Sockets borðtækinu frá Kensington sem kostar um 4.000 krónur 40$ (find.pc- world.com/32777), er hljóðviðvörun sem lætur vita af því að spennuhnykkur hafi skemmt tækið. Ekki gleyma símalínunum: Mótaldið og símalínurnar eru alveg jafnberskjaldaðar fyrir rafmagnstoppum (e. power spikes) eins og tölvan ykkar. Hægt er að kaupa sérstaka síma- línuvörn, en hún getur einnig verið innbyggð í spennuhnykksvörnina. Að tölvan fái of lítið rafmagn getur verið alveg jafnslæmt og að hún fái of mikið. Ef rafmagnið fer skyndilega af tölvunni getur það skemmt óvistuð gögn eða mikilvægar kerfisskrár, sem hvort tveggja getur verið óbætanlegt tjón fyrir fyrirtæki. Til að komast hjá slíkum vandræðum skuluð þið fá ykkur aflgjafa sem veitir óhindr- aðan straum (UPS uninterruptible power supply). Þegar rafmagnið fer sér slíkt tæki tölvunni fyrir nægum straumi til að hún geti haldið áfram vinnslu (vanalega, þó ekki lengur en í 10 mínútur) svo þið getið vistað gögnin og slökkt á réttan hátt á tölvunni. Slíkum afl- gjöfum fylgir venjulega hugbúnaður sem sér um að vista og slökkva sjálfvirkt ef þið eruð ekki á staðnum þegar þetta gerist. Flestir slíkir UPS-aflgjafar kosta minna en 9.000 krónur (100$). Fyrirtækið American Power Conversion (www.apc.com) býður upp á mikið úrval af varnarbúnaði fyrir aflgjafa á viðráðanlegu verði, þar á meðal Back-UPS ES 350VA á 3.500 krónur (40$). Þið skuluð samt ekki vera að spá í hverja einustu krónu í þessu sambandi. UPS-aflgjafinn verður að geta upp- fyllt þörf tölvunnar ykkar fyrir óhindraðan raf- straum. Áður en þið festið kaup á slíku tæki skuluð þið skoða upplýsingarnar um hámarks- tímann sem tækið getur verið í gangi og vöttin og berið þær saman við það sem tölvan ykkar þarfnast (sjá hér að neðan). Þið skuluð vera á verði: Sumir söluaðilar tilgreina keyrslutímann fyrir „helmingsálag“ eða helming af þeim vöttum sem tilgreind eru á tölvunni. Það er sjaldgæft að allir íhlutir tölvu séu í gangi á fullri keyrslu á sama tíma þannig að söluaðilar halda því fram að tækið haldi tölvunni gangandi í x mínútur og er mínútufjöldinn þá miðaður við algengt álag á tölvunni en ekki hámarks- orkunotkun hennar. VÖTTIN SKIPTA MÁLI Hvað notar tölvan ykkar mörg vött? Sumar vélar eru orkuþyrstar skepnur, sérstaklega ef þið hafið bætt við hörðum diski, aukið við minnið eða bætt einhverjum öðrum vélbúnaði við tölvuna. Til að reikna út orkuþörfina eru vöttin sem hver íhlutur tölvunnar notar lögð saman, www.heimur.is 51Ágúst Tölvuheimur 2003 S V O N A G E R U M V I Ð MYND 1: BACK-UPS ES 350VA frá APC heldur tölvu gangandi nógu lengi til að hægt sé að vista gögn sem verið var að vinna með. L J Ó S M Y N D IR : R IC K R IZ N E R Ef þið eruð heppin þurfið þið aldrei að nota Windows- geisladiskinn ykkar. En ef þið hafið þurft að bæta við eða setja aftur upp vélbúnað eða laga skemmda kerfisskrá þá er þessi diskur alveg lífsnauðsynlegur – og ef þið eruð ekki með hann við höndina getur verið að þið tapið miklum tíma. Þið komist hjá vandræðum ef þið afritið allar .cab-skrárnar (þjappaðar Windows- skrár) á diskinum og setjið þær í möppu á harða diskinum. Kallið möppuna sama nafni og vörunúmer- ið sem stendur á diskinum. Þegar Windows biður um að þið setjið geisladiskinn í drifið getið þið nú ein- faldlega beint henni í þessa möppu. HAFIÐ KERFISSKRÁRNAR VIÐ HÖNDINA Órofinn straumur fyrir tölvuna Vélbúnaður ORKUÞÖRFIN REIKNUÐ ÚT LÆSILEIKI CD-R OG CD-RW DISKA VISTIÐ SKRÁRNAR AF WINDOWS- DISKINUM Á TÖLVUNNI

x

Tölvuheimur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvuheimur
https://timarit.is/publication/1839

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.