Tölvuheimur - 01.08.2003, Blaðsíða 57

Tölvuheimur - 01.08.2003, Blaðsíða 57
Nýjasta ofurhetjuæðið þessa dagana snýst um gamal- gróinn grænan jaxl, Hulk að nafni. Sá er ekki aldeilis nýr af nálinni í myndasöguheimum, hefur verið til í tugi ára og notið fádæma vinsælda í þeim geira. Í kjölfar nýrrar kvik- myndar um kappann er auðvitað kominn tölvuleikur, eins og vera ber þegar tekið er á í alvöru í kynningar- málum í Hollywood. Ekki er sjálfgefið að tölvuleikir sem fylgja sumarsmellum kvikmyndahúsanna séu vel úr garði gerðir en í tilfelli Hulk hefur framleiðendum tekist ágætlega til. Hulk er í raun leikinn í tveimur hlutum. Sum borðin eru leikin í hlutverki Bruce Banners og sum í gervi Hulks. Fyrir vikið verður leikurinn mun fjöl- breyttari og heppnast þessi framsetning hér ágætlega. Sagan er svo sem ekkert stórvirki en þjónar sínu hlutverki. Í stuttu máli snýst þetta allt saman um baráttu Bruce Banners við illmennin Madman, Flux og Half Life. Leiknum, eins og svo mörgum öðrum, er svo stillt upp sem röð borða og verkefna sem þarf að leysa, annaðhvort í gerfi Bruce Banners eða risans Hulk. HULK BRÝTUR ALLT OG BRAMLAR Í verkefnum Bruce Banners er leikstíllinn meira byggður á læðupokaskap og almennu snuðri. En í þeim sem Hulk leysir af hendi er áherslan meiri á bar- daga og slagsmál. Þá gerir stærð Hulks það að verkum að spilarinn getur beitt ýmsum stórkarlalegum bellibrögðum sem minna helst á tortímandann í Tekken. Rúsínan í pylsuendanum, þegar spilað er sem Hulk, er svo að hægt er að brjóta nánast allt í umhverfinu og bramla að hætti Red Faction. Grafíkin í Hulk er ágætlega gerð. Þar er ekki neitt sem truflar, en heldur ekkert sem vekur sérstaka athygli, fyrir utan reyndar grafíkina í stuttmyndunum milli verkefna sem er öll í anda áttunda áratugarins. Einhvern veginn passar það mjög vel við myndasöguarfleifðina. BANNER FÆR ERFIÐ VERKEFNI Hljóðið er í fínu lagi, brellur vel gerðar og umhverfishljóð raunveruleg. Tónlistin er frekar daufleg en pirrar samt aldrei nógu mikið til að slökkt sé á henni. Tæknilega séð er leikurinn mjög vel heppnaður. Allar hreyfingar persóna eru liprar og ýmis bellibrögð eru höfð í frammi þegar Hulk brýtur allt og bramlar. Helsta umkvörtunarefnið varðandi tæknilega útfærslu er að sjónar- horn á atburðarás leiksins eru stundum pirrandi. Hulk er skemmtilegur í spilun, en stundum eru Bruce Banner verkefnin ívið löng og erfið. Þegar svo spilað er sem Hulk færist heldur betur fjör í leikinn. Leikurinn er svo sem ekkert ógurlega flókinn eða djúpur, en skilar sínu mjög vel. Helst mætti setja út á að hann sé of stuttur og þá sérstaklega borðin sem spiluð eru sem Hulk. Óhætt er að mæla með Hulk fyrir aðdáendur hasarleikja því leikurinn er hin besta skemmtun og frábært að sjá vel heppnaðan leik um þessa sígildu ofurhetju. T Ö LV U L E I K I R VEL HEPPNAÐUR HASARLEIKUR Bruce Banner og Hulk leysa vandann www.heimur.is 57Ágúst Tölvuheimur 2003 GRAFÍK 4.0 Flott grafík, ekkert einstök en virkar vel. Stuttmyndirnar á milli verkefna eru sérlega vel heppn- aðar. HLJÓÐ 4.0 Allt í sóma í Oklahóma, ekkert sem pirrar og aldrei ástæða til að slökkva á neinu. TÆKNI 4.5 Mjög vel heppnaður leikur tækni- lega séð, fá „bögg“ og allt rennur áfram eins og vel smurt. LEIKHÆFNI 4.0 Frábær skemmtun, aðallega þegar spilað er sem Hulk. Eini gallinn er að leikurinn er full- stuttur. 
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tölvuheimur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvuheimur
https://timarit.is/publication/1839

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.