Verzlunartíðindi - 01.06.1964, Page 7

Verzlunartíðindi - 01.06.1964, Page 7
því fengið aukið öryggi um afkomu sína næsta árið. Gengi krónunnar er ekki lengur í hættu. Menn þurfa nú ekki lengur að flýta sér með iramkvæmdir af ótta við yfirvofandi kaup- og verðlagshækkanir. Ef áframhald verður á þeirri stefnu í launa- tnálum, sem mörkuð var með samkomulaginu nú i þessum mánuði, má í raun og veru segja, að ný viðhorf hafi skapazt í íslenzkum launamálum. Vonir ættu þá að standa til þess, að árlegar grunn- kaupshækkanir verði ekki meiri en svarar til árlegrar framleiðniaukningar, þannig að verðlag mnanlands og gengi erlends gjaldeyris ætti að geta haldizt stöðugt um langt tímabil. En þar með væru einmitt fengnar forsendurnar fyrir því, að hagvöxturinn gæti orðið sem örastur og lífs- kjarabótin sem mest. Jafnframt væri þá fenginn binn æskilegasti grundvöllur fyrir þvi að afnema þær hömlur á viðskiptum, sem óvissan, sem siglt liefur í kjölíar ringulreiðarinnar í kaupgjalds- og verðlagsmálunum, hefur enn gert nauðsynleg- ar. Þetta er að mínu viti meginþýðing launasam- komulagsins, sem nú hefur verið gert. Ég þykist vita, að ýmsir hafi nokkrar áhyggjur af því, að einn þáttur þessa samkomulags gerir táð fyrir vísitöluuppbótum á laun. Það er ekki oeðlilegt, af því að enginn vafi er á, að vísitölu- kerfið, sem hér var við lýði 1939—1960, var stór- skaðlegt íslenzkri efnahagsþróun. En höfuðástæða þess, að það var stórskaðlegt, var sú, að allt þetta tímabil áttu sér stað alltaf öðru hvoru óraun- bæfar hækkanir á almennu kaupgjaldi, hækkan- lr> sem voru mun meiri en samtíma hækkun á iramleiðni þjóðarbúsins. Jafnvel án visitölukerf- isins hefðu átt sér stað hér skaðlegar víxlhækk- anir verðlags og kaupgjalds. En vísitölukerfið margfaldaði síðan áhrif þessara víxlhækkana og gerði þær þar með ennþá miklu skaðlegri. Ef hér hefði verið jafnvægi í þróun kaupgjalds og verðlags, svo sem átt heiur sér stað í sumum ná- iaegum löndum, hefði vísitölufyrirkomulag á launagreiðslum alls ekki þurft að vera skaðlegt, heldur hefði það getað verið einn þáttur þess að tryggja slíkt jafnvægi. Og það er einmitt þetta sjónarmið, sem olli því, að ríkisstjórnin taldi rétt að taka vísitölufyrirkomulagið nú upp aftur. bramtíðarþróunin er öll komin undir því, að nú takist að varðveita jafnvægi milli kaupgjaldsþró- t'narinnar og verðlagsþróunarinnar, þ. e. a. s. að kaupgjaldið hækki í samræmi við framleiðni- aukninguna, hvorki meira né minna. Þá ætti verð- ^ag í landinu að geta haldizt nokkurn veginn stöðugt. Og þá ætti vísitölutryggingin ekki að ljurfa að hafa skaðleg áhrif. En hún gæti hins vegar stuðlað að því, að samtök launþega yrðu iúsari en ella til skynsamlegri samninga um VERZLUNARTÍÐINDIN launahækkanir, sem takmarkaðar væru við raun- verulega framleiðniaukningu þjóðarbúsins. Og ef svo væri, þá stuðlaði vísitölufyrirkomulagið að jafnvægi í kaupgjalds og verðlagsmálunum og gerði þannig gagn, gagnstætt þeim skaða, sem það olli, meðan algjört jafnvægisleysi og raunar ringulreið ríkti í launa- og verðlagsmálum. I þessu sambandi er þó rétt að geta mjög mik- ilvægs atriðis, sem mér vitanlega hefur ekki verið vakin athygli á opinberlega fram til þessa. Þýð- ing vísitöluákvæðanna í launasamkomulaginu lýtur ekki aðeins þvi, að kaupgjald launþega á framvegis að breytast x hlutfalli við bieytingar á framfærslukostnaði, þannig að kaupmáttur teknanna sé tryggður, lieldur ekki síður á hinu, að núverandi lífskjör ber að tryggja. A s.l. ári hækkaði almennt kaupgjald um sem svarar 30%. í kjölfar þessa og aukinna framkvæmda sigldi að sjálfsögðu svo mikil kaupmáttaraukning, að hjá því gat ekki íarið, að verulegur halli yxði á greiðsluviðskiptunum við útlönd, enda varð hallinn, eins og ég gat um áðan, um það bil 250 millj. kr. Kaupmátturinn innanlands jókst m. ö. o. á s.l. ári mun meira en framleiðsluaukning þjóðarbúsins nam, og kom það fram í greiðslu- hallanum gagnvart útlöndum. Ástæða þess, að 250 millj. kr. greiðsluhalli í utanríkisviðskiptun- um olli ekki rýrnun gjaldeyrisstöðunnar, sem þvert á móti batnaði um 160 millj. kr., var sú, að tekin voru erlendis lán til langs tíma umiram afborganir. Námu erlendar lántökur til langs tíma á s.l. ári 392 millj. kr. umfram endurgreiðsl- ur, en stutt erlend vörukaupalán hækkuðu um tæpar 70 millj. kr. Enn er útlit fyrir greiðsluhalla á þessu ári vegna hins mikla innlenda kaupmátt- ai', og þennan halla verður að sjálfsögðu að jafna. Við getum ekki nema að nokkru haldið áfram að jafna hann með eilendum lántökum, jafnvel þó við eigum kost á þeim til langs tíma. Gera vei'ð- ur því ráðstafanir til þess að jafna greiðsluhall- ann með því að laga eftirspurnina eftir raun- verulegri þjóðarframleiðslu. Eitt mikilvægasta atriði launasamkomulagsins eða öllu heldur ákvæðis þess um vísitöluuppbót- ina er einmitt fólgið í því, að það skuldbindur þjóðarheildina til þess að jafna greiðsluhallann við útlönd, þ. e. a. s. takmarka eftirspurnina inn- anlands, án þess að rýra kaupmátt launa laun- þega. En ef kaupmáttur launa launþega á að haldast óbreyttur, en greiðsluhallinn við útlönd engu að síður að jafnast, þá er ekki til þess önnur leið en sú að draga nokkuð úr fjárfestingu. Þetta verður öllum aðilum að vera ljóst. Ríkisstjórnin mun ekki grípa til neins konar fjárfestingareftir- lits í þessu skyni, heldur mun það verða hlutverk bankakerfisins og fjármálastjórnar ríkisins að 39

x

Verzlunartíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verzlunartíðindi
https://timarit.is/publication/1845

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.