Verzlunartíðindi - 01.06.1964, Síða 15
Hvað svo sem annars má segja um dóminn, þá
tel ég þó, að okkur beri fyrst og fremst að fagna
því sem er jákvætt við hann, en það er sá friður,
sem hann skapar á vinnumarkaðinum.
Verðlagsmál:
Það hefur ekki farið hjá því nú frekar en und-
aníarið að við ættum í stríði við verðlagsstjóra
og Framleiðsluráð landbúnaðarins en nú hefur
þó sem betur fer orðið all góður árangur af því
starfi og ber þar sérstaklega að þakka þeim, sem
forgöngu hafa átt urn það efni fyrir okkar hönd
og þá sérstaklega stjórn Kaupmannasamtakanna,
og ennfremur skilningi félagsmanna og virkri
þátttöku þeirra í baráttunni fyrir þessum mál-
um, sérstaklega vel unnu og skipulögðu starfi
verðlagsmálanefndar íélagsins, sem var sameigin-
leg með Félagi kjötverzlana og aðstoð Ólafs J.
Ólafssonar endurskoðanda.
Á því er enginn vafi, að þau gögn og þær
skýrslur, sem félagsmenn beittu sér fyrir að unn-
ar væru, til þess að sýna rekstursafkomu fyrir-
tækjanna að undanförnu hafa átt drjúgan þátt
í þeim árangri, sem náðist. En það er ennfremur
álit stjórnar félagsins, að sá vísir að normtölum,
sem skýrslur þessar eru, hafi verið bráðnauðsyn-
legur liður í allri þeirri baráttu sem háð var.
En félagsmenn verða líka að gera sér Ijósa grein
fyrir því, að í framtíðinni megum við aldrei láta
það henda okkur að hafa ekki á takteinum slík
gögn, ef við þyrftum á ný að kljást við verðlags-
yfirvöld. En það er ekki einasta gagnvart verð-
lagsyfirvöldum, sem slíkar skýrslur eru nauðsyn-
legar, heldur eru þær kannski fyrst og fremst
gagnlegar okkur sjálfum í sambandi við rekstur
okkar á fyrirtækjunum. Það er því áskorun okkar
til félagsmanna, að þeir búi nii strax út skýrslu-
form þau, sem Ólafur J. Ólafsson liefur látið
gera fyrir okkur, og korni þeim síðan útfylltum
til úrvinnslu til þess að upplýsingar um rekstur
fyrirtækjanna síðastliðið ár liggi sem allra fyrst
fyrir, okkur öllum til hags.
Ég hef hér að framan einungis drepið á nokk-
l*r af þeim helztu málum, sem efst liafa verið
á baugi í félaginu á síðastliðnu starfsári, en að
sjálfsögðu er urmull af rnálum sem félagið hefur
talað um á fundum sínum og rætt, auk þess sem
€mstakar nefndir hafa verið starfandi að ýmsum
sermálum. Þannig gat ég um „bjargráðanefnd-
tna“ í upphafi niáls míns. Hún sat nokkra fundi
°g á hennar vegum var sent úr umburðarbréf
til allra félagsmanna, til Jress að kanna það, hvort
almennt myndi vera um fjárhagsleg vandræði að
tæða hjá verzluninni, og þeim gefinn kostur á
sem vildu, að nefndin hefði meðalgcingu um
samninga, sem nauðsynlegir væru taldir vegna
VERZLUNARTÍÐINDIN
slíkrar greiðslu eða fjárhagsvandræða. Fkki mun
þó hafa komið nein beiðni til nefndarinnar um
slíka meðalgöngu.
Ávaxtanefnd hefur verið starfandi nú eins og
að undanförnu undir forustu Bernhards Arnar
og má segja, að starf þessarar nefndar sé nú ekki
síður veigamikið en áður var, þó að álagning á
ávexti hafi verið gefin frjáls. Ég vil flytja Bern-
hardi Arnar sérstakar þakkir félagsins fyrir starf
hans í þágu nefndarinnar að undanförnu og ég
vil sérstaklega nota Jretta tækifæri til þess að
bera fram ósk um að við megum sem lengst
njóta starfa Bernhards í málum þessum, um leið
og ég vil flytja honum árnaðaróskir í tilefni sex-
tugsafmælis hans sem hann átti á síðastliðnu
starfsári.
Ég mun nú ekki hafa þessi orð fleiri að sinni
en mun að sjálfsögðu svara fyrirspurnum ef ein-
hverjar kvnnu fram að koma.
Ég vil að endingu þakka samstjórnarmönnum
mínum fyrir ánægjulegt, óeigingjarnt og fjörugt
samstarf á liðnu starfsári og félagsmönnum öll-
um fyrir þann jákvæða skerf, sem þeir hafa lagt
okkur sem í stjórninni erttm í baráttunni fyrir
hagsmunamálum félagsins.
Auk þess vil ég alveg sérstaklega þakka Sveini
Snorrasyni framkvædastjóra Kaupmannasamtak-
anna, fyrir gott samstarf á liðnu starfsári en hann
var tilbúinn með holl ráð og aðstoð sína hvenær
sem á þurfti að halda.
Samheldni og virkri þátttöku félaganna, já-
kvæaðri gagnrýni, en fullkominni tillitsemi til
hagsmuna heildarinnar og réttlátu mati á því
hvað heildinni er fyrir beztu getum við þakkað
Jrað sem árangur hefur borið, en sundrungu,
ósamlyndi, neikvæðri gagnrýni og tillitsleysi við
náungann getum við kennt um það sem miður
hefur tekizt. Þessi er mín reynsla af störfum mín-
um fyrir félagið undanfarin tvö ár. Þessari reynslu
er ég nú ríkari en áður en ég tók að mér starf
Jretta. Fyrir Jressa reynslu vil ég nú þakka.
------->■>
! Hefar Jjú skilað skýrslum
til Ólafs J. Óíalssonar
j
endurskoðanda?
j
! Félaé niaívörukaupmanna.
47