Verzlunartíðindi - 01.06.1964, Page 24

Verzlunartíðindi - 01.06.1964, Page 24
r Ný verzlun hefur verið opnuð á Húsavík. Ber hún nafnið Hringey og er til húsa við Garðars- braut 20. Hringey verzlar aðallega með tilbúinn fatnað karla og kvenna, svo og snyrtivörur. Eigandi verzlunarinnar er Stefán Benediktsson, áður afgreiðsfumaður. ▼ Danskur vísindamaður, magister Uff Kjær- Hansen, var hér á íerðinni snemma í vor, í boði viðskiptadeildar Háskóla Isíands. Flutti hann tvo ffokka fyrirlestra. Hinn fyrri var um notkun fjölmiðlunartækja (massekommunikationsmidler) í nútima þjóðfélagi. Hinn síðari fjallaði um gerð augfýsinga og nothæfni þeirra í sölustarfseminni. Verzlunartíðindin hafa fengið leyfi til að birta síðari flokkinn, og mun hann koma í næstu blöðum. ▼ Kristinn Reyr, kaupmaður í Keffavík, er auk þess að vera ljóðskáld, einnig tónskáld. Á 20 ára afmæli lýðveldis á íslandi gaf hann út sérprentað ljóð og lag, sem hann nefnir: Frjálsa Island. Kvæðið sendi hann Verzlunartíðindunum og birtum við það á öðrum stað hér í blaðinu, en því miður gátum við ekki látið lagið fylgja með. ▼ Þorgeir bóndi í Gufunesi var í útreiðartúr með Sigurði Ólafssyni, söngvara, og riðu þeir upp Mosfellsheiði og upp í Vötn. Þorgeir var á jarpri skeiðhryssu, hinum mesta kjörgrip. Er þeir korna í Vatnaásinn æja þeir hjá sælu- húskofanum og verður Þorgeiri litið yfir Sand- skeiðið. „Hér er fallegur skeiðvöllur og gaman væri að leggja hana hér þá Jörpu.“ „Og draga ekki af henni," bætir Sigurður við. Snarast Þorgeir þá á bak merinni og svo mikil er reiðin, að Sigurði finnst fíkjast flugtaki frekar en skeiðspretti. Hylst nú völlurinn jóreik og maður og hross hverfa í mökkinn. Þegar skeiðið er runnið rofar til og sér þá Sig- urður að knapinn og sú jarpa hafa endastungizt út í móa. En Þorgeir er enginn aukvisi, hann snarast aftur á bak hryssunni og kallar til Sig- urðar: „Ja, nú var ég heppinn að merin skyldi ekki hálsbrotna og ég drepa mig, því þá heíði ég orð- ið að ganga heim.“ 56 VERZLUNART ÍÐINDIN

x

Verzlunartíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verzlunartíðindi
https://timarit.is/publication/1845

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.