Verzlunartíðindi - 01.05.1996, Page 3
LEIÐARI
Gjaldþrota áður en rekstur hefst
Það eru ekki nýjar fréttir að verslun er áhættusöm atvinnu-
grein. í eðli hennar liggur að fyrirtæki koma og fara, enda fáar
greinar háðari sveiflum í umhverfinu. Það er hins vegar orðið
umhugsunaratriði þegar annað og þriðja hvert fyrirtæki í
ákveðnum greinum verslunar verður gjaldþrota. Slíkt verður
ekki eingöngu skýrt með utanaðkomandi aðstæðum.
Sérstaðan í verslun er sú að fyrirtæki eiga oft mikil viðskipti
innbyrðis. Þannig er keðjan fljót að fara af stað þegar halla fer
undan fæti, ekki síst þegar stórir aðilar eiga í hlut. Árangurslítið
hefur verið reynt að tryggja rétt birgja með því að heimila þeim
veðsetningu í lager. Það gæti gjörþreytt útkomunni hjá fjöl-
mörgum þrotabúum.
Hitt stendur þó óbreytt eftir, eins og kemur fram í
Verzlunartíðindum að þessu sinni, að alltof algengt er að farið
sé út í rekstur og stofnað til umtalsverðra skulda, án þess að
nokkrar eignir séu að baki rekstrinum. Þannig eru fjölmörg
fyrirtæki í raun gjaldþrota um leið og þau hefja rekstur.
Stór gjaldþrotamál undanfarinna ára hafa leitt til þess að
aukinnar varkárni gætir í viðskiptum. Sú krafa verður æ
háværari að fyrirtækjum sé veittur greiðari aðgangur að mikil-
vægum upplýsingum um lánshæfismat viðskiptaaðila. Slíkar
upplýsingar ætti ekki að vera hægt að fela í Ijósi bankaleyndar.
VERZLUN ARTÍÐINDI
2.TBL. 46. ÁRG. 1996
Útgefandi:
Framtíðarsýn ehf.
Þverholti 9, 105 Reykjavík
Sími 511 6622; Fax 511 6692
í samstarfi við
ÍSLENSKA VERSLUN
Ritstjóri:
Jóhanna Birgisdóttir
Auglýsingastjóri:
Gylfi Þór Þorsteinsson
Auglýsingafulltrúar:
Sverrir Heimisson
Jónas Marteinsson
Ritnefnd:
Jónas Þór Steinarsson
Sigurður Jónsson
Stefán S. Guðjónsson
Prentun:
(safold
Verzlunartíðindi koma út sex sinnum á ári.
Blaðið fjallar um verslun á breiðum grundvelli.
Því er dreift til allra áskrifenda
Viðskiptablaðsins og félagsmanna
neðangreindra samtaka.
m
ÍSLENSK
VERSLUN
BÍLGREINASAMBANDIÐ FÉIAG ÍSLENSKRA STÓRKAUPMANNA KAUEUANNASAHIðK tSLANDS
oq vet
VÍð ERUM þRJAR hRESSAR
í ÞÍNqhollSSTRÆIÍ 6 oq VÍð EÍqUM oq REkuM eIsIU SÍlkipRENIUN IflNdsÍNS.
Fyrirtækið heitir Fjölprent og er framleiðsla þess
ó alls konar fónum, flöggum, veifum og öðrum auglýsingaborðum
löngu landskunn þó aðalsmerki Fjölprents hafi i gegnum tíðina
óvallt verið framleiðsla ó borðfónum.
Okkur finnst gaman að þjóna viðskiptavinum okkar. Vanti þig fóna
eða veifur til þess að auglýsa vöru, þjónustu eða fyrirtæki hafðu
þó samband við okkur og við finnum leið til þess að gera þig að
enn einum ónægðum viðskiptavini.
i'ER/ximWimiG
KGYK'IAYÍKUK
LP n ENT
Hofíðatfánar, útif<
'anar
ELSTA SILKIPRENTUN LANDSINS
ÞINGHOLTSSTRÆTI 6 - P.O.DOX 1231-121 REYKJAVIK
SIMI: 551-9909 - FAX: 551-9969