Verzlunartíðindi - 01.05.1996, Síða 4
TVÆR ÓLÍKAR VERÐKANNANIR
FJARÐARKAUP GEFA EKKERT EFTIR
Maqga vill
ball!
Hér í eina tíð voru
árshátíðir kaupmanna
einhverjar glæsilegustu
samkomursem haldnar
voru í Reykjavík. Þeir
sem nú stunda verslun
þekkja fæstir slíkt nema
af afspurn enda ár og
dagar síðan þessi hefð
var lögð niður. Nú
heyrast hins vegar æ
háværari raddir um að
þessi siður verði tekinn
upp að nýju, enda sé
kaupmönnum nauðsyn-
legt að efla tengslin -
ekki síst á félagslegum
nótum. Hugmyndin
mun m.a. hafa verið
reifuð á stjórnarfundi
Kaupmannasamtakanna
aðfrumkvæði Margrét-
ar Pálsdóttur og jafnvel
náð svo langt að ritari
stjórnar, Þórhallur
Steingrímsson, lét fara
sem síðustu bókun
fundar: "Magga vill
ball". Ekki hefurfrést af
frekari áformum.
Glæsihús við
Laugaveginn
Eins og fram hefur
komið er mikil eftir-
spurn eftir verslunar-
húsnæði við Lauga-
veginn, enda er verslun
sögð hafa aukist þar
verulega og fá færri en
vilja. í því samhengi
verður forvitnilegt að
fylgjast með tveimur
glæsilegum byggingum
sem væntanlega losna
innan tíðar. Annars veg-
ar er húsnæði íslands-
banka við Bankastræti,
en útibúið þar mun flyt-
ja á Kirkjusand með
haustinu. Húsið í Banka-
stræti var upphaflega
byggt sem verslunarhús
og hýsti m.a. glæsilega
skóverslun Lárusar
Fjeldsted um árabil.
Annað hús sem vænt-
anlega losnar innan
tíðar er hús Kristjáns
Siggeirssonar á Lauga-
vegi 13, þar sem Habitat
er nú til húsa. Allar líkur
eru taldar á að verslun-
inni þar verði lokað um
áramót, enda ráðgert að
Habitat opni 800 fer-
metra verslun í Borgar-
kringlu í haust. Við
heyrum að einn af
stærri skókaupmönnum
bæjarins renni nú hýru
augu á Laugaveg 13.
Tvær nokkuð ítarlegar verð-
kannanir hafa verið gerðar á
undanfömum vikum. Annars
vegar er könnun sem Samkeppnis-
stofnun gerði í 22 stórverslunum
víðs vegar um landið í marsmánuði
og hins vegar könnun Neytenda-
samtakanna í samvinnu við verka-
lýðsfélag, en sú könnun náði til 57
verslana um land allt og var unnin í
mars og apríl. Fyrmefnda könnunin
náði til 85 vörutegunda en í þeirri
síðari voru 137 vörutegundir til
samanburðar. Samkeppnisstofnun
tók ekki afsláttarverslanir með í sína
könnun. Það gerðu hins vegar
Neytendasamtökin, sem skekkir
niðurstöðu þeirrar könnunar talsvert.
VERÐIÐ KEYRT í BOTN
Hvað mesta athygli vekur árangur
Skagfirðingabúðar, eða Kaupfélags
Skagfirðinga á Sauðárkróki. Meðal-
verð þar mælist í könnun Neytenda-
samtakanna 85,9, en til samanburðar
var Bónus með 72,3, KEA Nettó
með 77,1 og KASKO í Reykjnesbæ
með 83,9. Skagfirðingabúð er með
fjölþætta verslun, auk dagvöru, sem
velti þó yfir 350 milljónum á síðasta
ári. Markaðssvæðið er, að mati
Ómars Braga Stefánssonar verslun-
arstjóra, um 5 þúsund manns í
Skagafirði og nágrenni. Lágt verð-
lag segir Ómar vera meðvitaða
ákvörðun um að keyra sig eins langt
niður og hægt sé, ekki síst til að efla
verslunina heima fyrir. Sú stefna
hafi skilað aukinni veltu og einnig
jákvæðara viðhorfi, sem ekki sé
síður mikilvægt. Henni verður fram
haldið og liður í því er að endur-
skoða vöruval um þessar mundir, í
þeim tilgangi að minnka birgðahald
og auka veltuhraða.
SNÝST UM AÐ
LEGGJA MINNA Á
Sé litið framhjá slíkum verslunum
eru Fjarðarkaup með lægsta vöru-
verð á höfuðborgarsvæðinu. I könn-
un Neytendasamtakanna mælist
verð þar 89% af meðalverði en hjá
Samkeppnisstofnun 91,4%.
Fjarðarkaup hafa reyndar alltaf
komið mjög vel út úr verðkönnun-
um og aðspurður um hvemig þeir
fari að, segir Sveinn Sigurbergsson
svarið einfalt: “Maður leggur bara
minna á en hinir.” Fjarðarkaup eru
gróin verslun, um 2 þús. fermetrar
að stærð, vel staðsett og aðgengileg,
en sker sig um margt frá þeirri
þróun sem orðið hefur í verslun
undanfarin ár. Þannig er nú fyrst
veríð að tölvuvæða verslunina,
nokkuð sem ýmsir hafa talið for-
sendu nauðsynlegrar hagræðingar.
Þá hafa þeir feðgar ekki farið í inn-
kaupasamstarf við önnur fyrirtæki,
þrátt fyrir ýmis gylliboð þar um.
“Við höfum ekki enn séð að
kostimir séu fleiri en gallarnir og
horfum þar meðal annars á vöruúr-
val og samsetningu innkaupa”.
í SAMRÆMI VIÐ
MARKMIÐIN
í báðum könnunum lendir 10/11 í
öðru sæti á höfuðborgarsvæðinu.
Eiríkur Sigurðsson kveðst ánægður
með þá útkomu; stefnan hafi frá
upphafi verið að verðleggja sig á
milli Bónus og Hagkaups og þessar
kannanir staðfesti að sú stefna gangi
enn eftir.
HÖLDUM STÓR-
MARKAÐSVERÐINU
Þorsteinn Pálsson framkvæmdastjóri
KA tekur í sama streng og segir
yfirlýsta stefnu KA að bjóða upp á
svipað verð og stórmarkaðir á
Reykjavíkursvæðinu, en KA rekur 9
verslanir víðs vegar um Suðurland
og býður sama verð í þeim öllum. í
könnun Samkeppnisstofnunar fékk
KÁ 100,7, en í könnun Neytenda-
samtakanna um 96. Þorsteinn kveðst
hins vegar ósáttur við þegar afslátt-
arverslanir séu teknar með; það
skekki myndina mjög. “Verðkann-
anir eru af hinu góða, en þær þarf að
vinna í góðu samráði aðila þannig
að allir geti sæst á þá aðferðafræði
sem er notuð”, segir Þorsteinn.
BEIN ÁSKORUN
Benedikt Kristjánsson hjá Vöruvali
á ísafirði er semi-dúxinn í könnun
Samkeppnisstofnunar; aðeins sam-
keppnisaðilinn, Kaupfélag Isfirð-
inga er hærri. I könnun Neytenda-
samtakanna, fær Vöruval hins vegar
útkomuna 104,1, miðað við meðal-
verð 100. Þar er þó vert að ítreka að
afsláttarverslanir eru taldar með.
Benedikt segir þetta beina áskorun
um að gera enn betur. Þegar hafi
náðst verðlækkun auk þess sem
kappkostað sé að halda sama vöru-
verði í öllum verslununum þremur -
á ísafirði, Hnífsdal og Bolungarvík.
Ljóst sé hins vegar að betur megi ef
duga skal. “Ég ætla mér ekki að
verma þetta vafasama sæti lengur.”
SKELLTILÁSI' BORGARKHINGLUII í SUMAR?
Nú styttist í að fram-
kvæmdir hefjist í
Borgarkringlunni eftir
að samkomulag tókst um að
Kringlan yfirtæki rekstur þar.
Enn er þó allt á huldu um
framtíð fjölmargra fyrirtækja
sem þar hafa verið í rekstri og
forsvarsmenn gefa ekki upp
hvað sé á teikniborðinu.
Þó liggur fyrir að Habitat,
sem nú er í eigu BYKO, opni
verslun í suðurendanum og fái
þar til umráða um 800 fm.
Sömuleiðis mun ráðgert að
Verslunin Sautján fái um 350
fm í norðurenda og óstaðfestar
heimildir herma að Garðar
Siggeirsson í Herragarðinum
hafi einnig tryggt sér gott
pláss í Borgarlo-inglunni.
Margir núverandi leigutaka,
sem flestir eru með lausa
samninga um þessar mundir,
vita hins vegar lítið um fram-
tíðarmöguleika sína í húsinu
og er lítil kátína með hvemig
staðið er að breytingunum.
Nýjustu fregnir herma að
Borgarkringlunni verði lokað
frá 1. júlí fram á haust vegna
breytinganna. Þetta fékkst þó
ekki staðfest hjá Einari Hall-
dórssyni sem hefur yfimmsjón
með breytingunum í Borgar-
kringlunni.
4 VERSLUNARTÍÐINDI MAÍ 1996