Verzlunartíðindi - 01.05.1996, Síða 14
LYKILTOLUR I REKSTRI FYRIRTÆKJA
Einföld tæki til að byrgja brunninn
Arður af hlutafé 1996
Fjárbinding í viöskiptakröfum
1992 1993 1994 1995 Áætlun 1996
Ai
Fjárbinding í birgðum
1992 1993 1994 199S Áætlun 1996
Ár
Helsta stjórntækið hjá mörgum ís-
lenskum fyrirtækjum er tékkheftið.
Fyrirtækjum er stjórnað frá degi til
dags eftir stöðu heftisins og allir eru ánægðir
ef hægt er að borga skuldir og rekstrarút-
gjöld. Nauðsynlegt er að fylgjast vel með og
stýra sjóðstreyminu, en í nútíma atvinnu-
rekstri verður auk þess að vinna skipulega að
stefnumótun og áætlanagerð.
Margir eigendur fyrirtækja hafa því miður
vaknað upp við vondan draum þegar fyrir-
tækið þeirra, sem fyrir nokkrum árum stóð
vel, er skyndilega komið í harða samkeppni
og hallað hefur undan fæti. Stöðugt þarf að
bjarga heftinu með lántökum sem síðan leið-
ir til þess að fjármagnskostnaðurinn einn
sligar fyrirtækið. Ekki þarf að rekja þessa
sögu frekar því flestir þekkja dæmi um
stöndug fyrirtæki sem lenda í rekstrarstöðv-
un, lánadrottnar yfirtaka reksturinn eða þau
verða gjaldþrota.
f bókinni Lykiltölur, eftir þá Bjöm Gunnar
Karlsson og Gunnar Pál Þórisson, er á ein-
faldan hátt fjallað um hvemig nýta má fjár-
hagslegar kennitölur til markmiðasetningar
og eftirlits. Með því að þekkja lykiltölur um
arðsemi, fjárhagsnýtingu, greiðsluhæfi og
ýmislegt annað sem yfirleitt stendur ekki
bemm orðum í bókhaldi, ársreikningum eða
áætlunum má mæla rekstrarárangur jafnóð-
um og spá fyrir um framtíðina á einfaldan og
skýran hátt.
Með bókinni fylgja disklingar með tölvu-
líkönum í Microsoft Excel sem reikna allar
helstu kennitölur og birta fjárhagslegar upp-
lýsingar á aðgengilegu, myndrænu formi.
Einungis þarf að skrá örfáar rekstrar- og
efnahagsstærðir og síðan sjá líkönin um alla
úrvinnslu.
Það sem verslunarfyrirtæki horfa sérstak-
lega á em kennitölur um fjármagnsnýtingu,
þ.e. fjárbinding í birgðum og viðskiptakröf-
um, veltuhraði eigna og fastafjármuna. Slík-
ar upplýsingar má auðveldlega kalla fram
með því að nota lykiltölur síðustu ára, ásamt
rekstraráætlun yfirstandandi árs til saman-
burðar. Þeir sem komnir em upp á lag með
að nýta sér þetta efni gera fyrirtækið upp
mánaðarlega og/eða ársfjórðungslega, bæði
rekstur og efnahag. Þannig er hægt að gera
sér grein fyrir stöðunni jafnóðum og grípa til
viðeigandi ráðstafana. Einnig má leika sér
örlítið og skoða hvaða áhrif breytingar á hin-
um ýmsu forsendum hafa.
Það er Framtíðarsýn ehf. sem gefur út
bókina Lykiltölur.
14 VERSLUNARTÍÐINDI MAÍ 1996