Verzlunartíðindi - 01.05.1996, Qupperneq 15

Verzlunartíðindi - 01.05.1996, Qupperneq 15
RAFBUÐ 30 ARA A ÞESSU ARI Gildi 02 áhrif lýs- ingar ort vanmetin senn hafi haft í för með sér betri lýsingu og spamað í raforkunotkun. Þannig hafi flúr-lýsing breyst mik- ið, ljósgjafamir sjálfir minnkað og nú séu komnar á markaðinn el- ektrónískar straumfestur, sem bæði nota minna rafmagn og auka end- ingu á flúrpípunum. “Ég er enn mjög hallur undir flúr-ljósin, finnst þau vera besti og hagkvæmasti kosturinn til grunnlýsingar. Með þeim færðu mesta lýsingu fyrir minnstan pening. Halógen-ljós eru frábær sem áherslulýsing bæði í verslunum, á söfnum og á heim- ilum, en þau hafa jafnvel verið ofnotuð sums staðar. Til að ná því besta fram þarf að hafa þetta allt í "Það margborgar sig fyrir fyrirtæki að fá faglega ráðgjöf um lýsingu, kaupa góða lampa og góðar per- ur. Með því sparast rafmagn og viðhald. Og svo má ekki gleyma þvi að góð lýsing eru söluörvandi", segir Gunnar Guðmundsson raftækjasali. ó þrjátíu ár séu ekki langur tími, þá hafa síðustu þrír áratugir skilað ger- breyttu umhverfi í verslun hér á landi. I fáum greinum er meiri hreyfmg og endurnýjun og því er það afrek út af fyrir sig, að reka sömu verslunina í þrjátíu ár. Það hefur Gunnar Guðmundsson í Rafbúð hins vegar gert. Raftækjaverslunum hefur fækkað talsvert á þessum tíma og dreifingin hefur breyst. Nú sjá t.d. stórmarkaðir að stórum hluta um sölu á heimilislýsingu, en eftir stendur sérhæfð þjónusta í þeim verslunum sem einbeita sér fyrir vikið að faglegri þjón- ustu við stofnanir, fyrirtæki og reyndar ein- staklinga einnig. Og verslun Gunnars er ein af þeim. í SAMSTARFI VIÐ HÖIMNUÐI “Við hófum verslunarreksturinn í Domus Medica árið 1966 og tókst strax í upphafi að skapa okkur talsverða sérstöðu á markaðin- um. Ahersla var lögð á sérhannaða lampa og ljósgjafa, teiknaða af arkitektum og lýsing- arhönnuðum á Norðurlöndunum og í Þýska- landi. Einnig létum við framleiða lampa eftir hönnun íslenskra arkitekta, s.s. Finns P. Fróðasonar og Péturs Lútherssonar. Þá seld- um við verðlaunalampa Péturs og Jóns Olafssonar sem var framleiddur í Danmörku og seldist vel. I gegnum þetta myndaðist strax gott samband við arkitekta hér á landi og við höfum alla tíð síðan unnið náið með þeim. Áhersla á heimilislýsingu hefur minnkað í gegnum árin; í staðinn höfum við einbeitt okkur að stofnunum og fyrirtækj- um.” Allnokkur tímamót urðu árið 1970 þegar Rafbúð fékk umboð fyrir sænska fyrirtækið A/S Fagerbult sem er einn stærsti framleið- andi flúrlýsingar. Þetta fyrirtæki er ennþá ein meginstoðin í versluninni, ásamt finnska fyrirtækinu Lival og þýska fyrirtækinu Hoff- meister. KALLAR Á MIKLA ÞJÓNUSTU Sala inn á stofnanamarkaðinn kallar á mikla þjónustu, enda segir Gunnar langmesta vinnu fara í ráðgjöf og þjónustu við verktaka og fyrirtæki. “Við vinnum teikningar og reiknum út lýsingarþörf, gefum ráð um rétta staðsetningu lýsingar og aðrar þeir leiðbein- ingar sem nauðsynlegar eru. I því felst ein- nig að fara út í fyrirtækin með beina ráðgjöf. Snemma fengum við lýsingarforrit sem reik- naði út lýsingarþörf og bestu staðsetningu lampanna og munu við hafa verið fyrstu lampasalamir sem buðu slíka þjónustu. Þetta forrit létum við svo rafhönnuðina hafa ókeypis til að vinna eftir.” Gunnar segir mikla þróun hafa orðið í ljósabúnaði á þessum árum, þróun sem í huga.” GÆDI ÚTUNDAN í KREPPUNNI Samdrátturinn undanfarin ár hefur víða sett mark sitt og einnig á sölu ljósabúnaðar. Gunnar segist hafa merkt minni kröfur hjá verkkaupum; þar hafi gæðin því miður þurft að víkja. Þetta sé þó heldur að mjakast í rétta átt að nýju. “Gæðin skipta máli, þannig kemstu kannski af með 8 lampa í stað 10, til að ná sama ljósmagni. Lakari gæði kalla líka á meira viðhald og örari endumýjun, þannig að sparnaðurinn er hæpinn.” Gunnar Guðmundsson ásamt konu sinni. Hallfríði Guðmundsdóttur, fyrír framan Rafbúð í Domus Medica á fyrstu árunum “Of margir líta bara á lampa og ljós sem hvern annan búnað, en vanmeta gildi og áhrif lýsingar. Það margborgar sig fyrir fyr- irtæki að fá faglega ráðgjöf um lýsingu, kaupa góða lampa og góðar pemr. Með því sparast rafmagn og viðhald. Og svo má ekki gleyma því að góð lýsing eru söluörvandi, það skiptir ekki svo litlu máli fyrir verslan- ir.” BREYTINGAR Á UMHVERFI Nokkur ár eru síðan Gunnar flutti Rafbúð vegna þrengsla úr Domus Medica í núver- andi húsnæði að Bíldshöfða 16. Nú segir hann það pláss hins vegar vera orðið í stærra lagi, enda hafi allar forsendur breyst. “Sam- göngur hafa gjörbreyst, sem og annað um- hverfi; þess vegna er ekki nauðsynlegt að liggja með stóran lager eins og áður var.” Og hann nefnir fleiri breytingar, sem nánast jaðra frekar við byltingu. Til dæmis banka- þjónustu. Hann man glöggt þá tíð þegar bíða þurfti tímunum saman í biðröð eftir banka- stjóranum í óvissu um hvort víxlamir fengj- ust keyptir. Og gjaman var beðið um milljón þegar vantaði hálfa; þannig voru viðhorfin þá. En nú er öldin önnur. Símtólinu er lyft fyrirhafnarlítið og þjónustan veitt möglunar- laust, jafnvel svo að bankar keppast um að fá að lána traustum viðskiptavinum. Svipuð breyting hefur orðið í innflutningsumhverf- inu, gjaldeyrismál hafa gjörbreyst á skömm- um tíma og þjónustan í tollinum er ólík því sem áður var. Það eina sem varpar skugga á þann þáttinn eru vörugjöldin, “ákaflega ósanngjörn skattlagning og fáránleg mis- munun sem í þeim felst. En það stefnir von- andi í rétta átt”, segir Gunnar. Hann hefur líka fylgst vel með þróun mála og verið mjög virkur í félagsstarfi í fagi sínu, rafvirkjun, sem stjómarmaður og formaður Landssambands íslenskra rafverk- taka, auk annarra trúnaðarstarfa. Þá var Gunnar um árabil formaður í Félagi raf- tækjasala og situr nú í framkvæmdastjórn Kaupmannasamtaka íslands. Það er því enn mikil starfsorka sem Gunn- ar býr yfir, þrátt fyrir að tæp þrjú ár séu síð- an hann náði löggildingu ellilífeyrisþegans. I Rafbúð er hann með tvo faglærða starfs- menn, sem annast að mestu sölu og þjónustu við viðskiptavinina, svo og stúlku er annast bókhald og útskrift reikninga. Annan rekstur annast Gunnar sjálfur og hefur lítið hægt á. Segist þó vera farinn að horfa fram á breyt- ingar innan einhverra árA. VERSLUNARTÍDINDI MAÍ 1996 15

x

Verzlunartíðindi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verzlunartíðindi
https://timarit.is/publication/1845

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.