Verzlunartíðindi - 01.05.1996, Qupperneq 22
SUNNUSÍTRA
OG SÓLRÍKUR
Það er ósvikin sumarstemning yfir
Sól hf. þessa dagana þegar kynntir
eru tveir nýir ávaxtadrykkir. Annars
vegar er Sunnu eplasítra, kolsýrður
drykkur með 12% hreinum eplasafa.
Auk þess eru í honum ávaxtasykur,
þrúgusykur, sítrónusýra og
bragðefni. Þetta er ferskur og Ijúfur
drykkur í 1 lítra flöskum, en drykkir
á borð með eplasítruna njóta vax-
andi vinsælda víða um heim. Hinn
drykkurinn er Sólríkur, nýr appel-
sínudrykkur sem inniheldur 49,9%
af hreinum ávaxtasafa. í hann er
eingöngu notaður náttúrulegur
ávaxtasykur og þrúgusykur og eng-
in rotvarnarnefni eru í vörunni.
Sólríkur kemur í 1,5 lítra litríkum
fernum.
snakk frá
Kims sem ugglaust á eftir að fá
góðar undirtektar í sumar. í
pokanum er blanda af skrúfum,
hanakömbum og hringjum,
skemmtilega krydduðu snakki sem
lífgar upp á tilveruna. Umbúðirnar
eru litríkar og auka enn á freisting-
arnar í hillunum.
MEXÍKÓSKT
FRÁ HEINZ
HEINZ tómatvörurnar frá
Bergdal þarf varla að
kynna. Nú er boðið upp á
skemmtilega tilbreytingu
við hina sígildu tómatsósu:
Heinz Mexican Ketchup,
sem er með mexíkóskum bragðau-
ka og hentar vel bæði út á fisk, með
pylsum og sem bragðauki í sósur
o.fl. Fyrir aðdáendur mexíkóskrar
matargerðar bjóðast einnig Heinz
Salsa sósur í glerkrukkum. Þær fást
bæði mildar, "mild medium" og
sterkar, "medium hot".
NASSAU IÐNAÐARHURÐIR
HENTA
HVAR
SEMER
Nassau huröirnar
hafa reynst vel viö
íslenskar aöstæöur
T eitið nánan
upplPinga
Idex
Sundaborg 7-9 • 104 Reykjavík • Sími: 91-688104 • Fax: 91-688672