Bókasafnið - 01.01.2000, Blaðsíða 34

Bókasafnið - 01.01.2000, Blaðsíða 34
sem erfitt er fyrir bókasafns- og upplýsingafræðinga að klifra upp metorðastigann þar sem kunnátta þeirra að mati stjórn- enda fyrirtækja er oft talin „einskorðast við bókasöfn", f námi bókasafns- og upplýsingafræðinga er ekki lögð mikil áhersla á stjórnunarkunnáttu. Þar gildir nánast lögmálið að henda sér ósyndur út í laugina og reyna með einhverjum hætti að ná að bakka. Stjórnunarkunnátta forstöðumanna safnanna er því oftast byggð að mestum hluta á reynslu. Kröfur um stjórnunarþekkingu forstöðumanna safna eru þó sífellt að aukast í takt við auknar kröfur þjóðfélagsins til stjórnenda almennt, Það er helst að einstaklingar geti þróast ( starfi með því að sérhæfa sig og þá aðallega á stærri söfnunum eða með því að vinna á sérfræði- eða rannsóknarsöfnum. Einnig geta einstaklingar notið starfsþróunar á vissan hátt með því að fá tækifæri til þess að takast á við fjölbreytt og krefjandi sérverkefni af ýmsum toga. Líklega er fjölbreytni starfsins og samskiptin við alla þá einstaklinga sem til safnanna leita það sem hefur haldið stéttinni gangandi og gert starfið eins áhugavert og það er um þessar mundir, en ekki launakjörin, Launakjör Við þekkjum líka vel launakjör bókasafnsfræðinga. Þau eru léleg og alls ekki í takt við þá sérfræðiþekkingu sem við höfum eða eigum að hafa til að bera. Launakjörin eru að hluta til svona slæm af því að við höfum sætt okkur við þau en einnig vegna þess að starfið gefur ekki neitt sjáanlega „arðbært" af sér - heldur eingöngu verið kostnaður fyrir þá sem reka bókasöfn og því erfiðara fyrir vikið að sýna fram á forsendur þess að laun eigi að vera hærri. Því spyr ég hvort við sem stétt ætlum að sætta okkur við þetta og gera okkur ánægð með það starfssvið, launakjör og þá takmörkuðu starfsþróunarmöguleika sem við búum við eins og er - eða ætlum við okkur að hafa áhrif á framvinduna og skella okkur f slaginn. Við skulum líta nánar á starfs- umhverfið eins og það blasir við okkur. Breytt starfsumhverfi í stuttu máli má segja að starfsumhverfi okkar hafi tekið og sé að taka miklum breytingum. Bókasöfn eru ekki endilega áþreifanleg og safnefnið langt í frá áþreifanlegt eins og áður er getið. í upphafi er samt nauðsynlegt að gera sér grein fyrir því hvað við erum að vinna með, hver er munurinn á gögnum, upplýsingum og þekkingu og hvert er samhengið, Lítum betur á skilgreiningar, Gögn (data), til dæmis texti eða tölur, hafa enga þýðingu sem slík, þau eru aðeins hráefni upplýsinga. Upplýsingar (information) eru gögn sem hafa fengið merkingu með því að unnið hefur verið með þau á einhvern hátt, Upplýsingar eru sfðan túlkaðar og mynda þannig þekkingu (knowledge). Þekk- ing getur verið skráð, til dæmis í skjöl, skýrslur, bækur, tímarit og fleira en hún getur líka verið óskráð, það er huglæg í formi reynslu, kunnáttu, skilnings, viðhorfa eða annars konar vit- neskju. En lítum betur á í hverju breytingarnar eru fólgnar: • fjölbreyttari gögn • tölvuþróun upplýsingatækninnar (tækni/ forrit/vélbúnaður/ ódýrari) • gögn á rafrænu formi • netið/vefurinn (Internetið/Metadata/XMLy höfundarréttur og fleira) • innranet • meiri hraði • kröfur notenda hafa breyst • magn upplýsinga margfaldast • þróun fjarskiptatækninnar (GSM/ WAP net- tengingastaðallinn) • virði upplýsinga (upplýsingar sem auðlind) • nýjar stjórnunaraðferðir (til dæmis þekkingarstjórnun) • breyttar áherslur í þjóðfélaginu og atvinnulífinu Allt þetta og fleira til hefur áhrif á starf okkar og starfsumhverfi, þar með talda þá sem starf okkar snýst um að þjóna, það er notendur. Aukin þekking og kröfur notenda Tölvuþróun, netþróun, rafræn gögn og þróun fjarskiptatækn- innar valda því að notendur hafa í síauknum mæli beinan aðgang að upplýsingum á skjánum, hvort sem er í vinnu, heima eða á förnum vegi. Notendur koma mun sjaldnar á bókasöfnin og kröfur og þarfir þeirra hafa aukist og breyst. Kröfumar hafa aukist hvað varðar hraða á afgreiðslu - þeir vilja fá gögn og upplýsingar strax. Þeir hafa margir ofurtrú á netum og ofmeta leitarvélar og færni sfna í notkun þeirra, Magn upplýsinga er orðið svo mikið - þó svo að einungis sé um 2% upplýsinga í heiminum til nú á rafrænu formi en fer vaxandi1 - að þeir eiga oft á tfðum í vandræðum með að sía út það sem að gagni kemur. Þar af leiðir að þarfirnar eru að breytast - og þá þarf þjónusta safnanna að breytast og þar með starf okkar. Breytt hugsun bókasafns- og upplýsingafræðinga Til að sinna þessum breyttu þörfum notendanna þurfum við að breyta afstöðu okkar til starfsins sem við erum að sinna, endurskoða öll þessi vanabundnu verk með tilliti til breyttra 3IBLIOTHEK \m -ESEZIMMER Eur AQDERNE LITERATUP 32 Bókasafnið 24. árg. 2000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.