Bókasafnið - 01.01.2000, Page 52
sem urðu að taka námskeíðið sem skyldunámskeið) hafi litið á
Internetið sem hluta af „framtíðinni". Þeir virtust hlakka til að
nota það fremur en þeim væru efst í huga atriði sem gætu
hindrað notkun þeirra.
Félagsleg áhrif á notkun Internetsins og á viðhorf til notkun-
ar þess breyttust á rannsóknartímabilinu. Sérstaklega jukust
áhrif fjölmiðla, fjölskyldu og vina á árunum 1994 til 1995, jafnt
sem tilfinning fólks fyrir að „allir" væru að nota eða tala um
Internetið. Nokkrum þátttakendum (11 eða 14,9%) fannst
notkunar Internetsins vera krafist á faglegum vettvangi þeirra.
Sérstaklega þótti nemendum í bókasafns- og upplýsingafræði
þetta vera fagleg krafa.
Einn nemandi í bóka-
safns- og upplýsingafræði
orðaði það svo (þann 19.
september 1995): „Ég vil
vita meira um Internetið
vegna þess að í fram-
tíðinni verður þess vænst
af mér sem bókasafns-
fræðingi að vita um þessa
hluti." Þessi óbeini faglegi
þrýstingur jókst á rann-
sóknartímabilinu.
Þátttakendur höfðu
mismikla reynslu af notk-
un Internetsins, hæfni og
þekkingu áður en þeir
komu á námskeiðin.
60,5 prósent allra þátt-
takenda sögðust ekki
hafa haft reynslu af Internetinu fyrir námskeiðin en 19,1
prósent höfðu reynslu eða mjög mikla reynslu af Internetinu
(reynslu byggða á langtíma notkun eða tíðri notkun) (sjá töflu
2). Á rannsóknartímabilinu komu fram nokkrar breytingar (
mynstri svara þátttakenda um fyrri reynslu sína af Internetinu. í
námskeiðum sem haldin voru á fyrri helmingi ársins 1994 var
hlutfall þátttakenda með reynslu af notkun Internetsins hærra
en á síðari tímabilum rannsóknarinnar. Á næsta tímabili á eftir,
sem stóð fram á fyrri hluta ársins 1995, höfðu þátttakendur
haft miklu minni reynslu af Internetinu. Eftir það hækkaði þetta
hlutfall aftur og gætti þeirrar aukningar út rannsóknartímabilið.
Þetta bendir til þess að á fyrstu námskeiðunum hafi verið
nemendur sem höfðu kennt sér sjálfir á Internetið en vildu
öðlast formlega þekkingu, Þessi þörf virðist ekki hafa verið
lengur til staðar þegar komið var fram á fyrri hluta ársins
1995. Frá þeim tíma virðast námskeiðsþátttakendur hafa farið
að endurspegla í auknum mæli hinn hefðbundna „nýja not-
anda", Eftir því sem Internetnotkun varð algengari á árunum
1995 og 1996 jókst hlutfall þátttakenda sem höfðu notað
Internetið fyrir námskeiðið á átján mánaða tímabili. Þessarar
þróunar gætir enn,
Vísbendingar frá árunum 1998 til 1999
Langtímarannsókn á Internetnemum á íslandi lauk í október
1996, Meginástæðan var að greining á gögnum söfnuðum
fram að þeim tíma hafði leitt til breytinga á námskeiðunum,
bæði endurmenntunarnámskeiðum og formlegum námskeið-
um sem voru skyldu-
námskeið til B.A.-prófs.
Til að mæta þörfum,
sem komu meðal
annars fram í gögnun-
um um mismunandi
ástæður fólks fyrir að
skrá sig á Internetnám-
skeið, voru endur-
menntunarnámskeiðin
gerð sérhæfðari. Áhersl-
an var lögð á ákveðna
þætti í leitum á Inter-
netinu og hönnun
heimasíðna, Samtímis
þessu var kynning á raf-
rænum pósti felld niður í
Internetnámskeiðum og
veitt sem hluti af vinnu-
lagsnámskeiðum (ef
þörf var á). Var þetta gert vegna almennt mikillar tölvuleikni og
Internetþekkingar nýnema í háskólanámi (og breyttra
væntinga þem voru sýnilegar í svörum við spurningalistum). Af
þessum ástæðum var ekki lengur hægt að safna gögnum
með sama hætti og áður, það er að segja í gegnum raf-
rænan póst sem væri hluti af hefðbundnu mótandi þróun-
arferli í námskeiði. Jafnframt vildu höfundar ekki búa til gervi-
gagnasöfnunarkerfi sem eingöngu yki á vinnu nemenda.
Svo virðist sem greining á gögnum, sem safnað var á ís-
landi árin 1998 til 1999, gefi til kynna að þróun sem kom
fram í langtímarannsókninni haldi áfram og gangi jafnvel hraðar
fyrir sig. Frá árinu 1997 hafa tvö Internetnámskeið verið kennd
samtímis í bókasafns- og uþplýsingafræðiskor Fláskóla ís-
lands: Internetið fyrir bókasafns- og upplýsingafræði (þriggja
eininga námskeið) og Internetið fyrir rannsóknir (tveggja ein-
inga námskeið fyrir nemendur sem eru ekki skráðir í bóka-
Tafla 1:
Yfirlit yfir námskeið eftir staðsetningu og tegund, 1993-1996
TEGUND NAMSKEIÐS Reykjavík Akureyri Bifröst SAMTALS
Prófgráða: 3 7 1 11
Bókasafns- og upplýsingafræði 3 - - 3
Kennslufræði - 4 - 4
Viðskiptafræði - 3 i 4
Endurmennfun 15 4 i 20
Bókasafnsfræðingar 2 - - 2
Starfsmenn Háskóla 1 2 i 4
Aðrir 12 2 - 14
Samtals námskeið: 18 11 2 31
Taíla 2:
Intemetnotkun þátttakenda fyrir námskeið, 1993-1996 -
Reynsla
Fjöldi %
Hefur aldrei notað áður 256 60,5%
Byrjandi: 1 eða 2 skipti 85 20,1%
Reyndur 50 11,8%
Sérfræðingur: langíma notandi eða tíður notandi 31 7,3%
Ekki hægt að kóða I 0,2%
SAMTALS 423 100,0%
50
Bókasafnið 24. Arg. 2000